Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Hawken kemur út í opinni betu á morgun 12. desember 2012, en hér er á ferðinni fyrstu persónu skotleikur sem setur þig í sæti risastórra vélmenna þar sem þú þrammar um í fallegu og framandi landslagi í baráttu við önnur vélmenni og margt fleira og það besta af öllu er að HAWKEN er ókeypis. Hawken hefur fengið góðar viðtökur víðsvegar um heiminn og hefur meðal annars verið tilnefndur í top 5 hjá videogamewriters.com og eins tilnefndur hjá PC Gamer sem fyrstu persónu skotleikur. Kíkið á heimasíðu Hawken hér og takið þátt í opnu betunni á morgun.

Lesa meira

Búið er að setja upp allar upplýsingar á spjallið um jólamótið í leiknum Counter Strike:Source og er skráning formlega hafin. Meistarinn Kruzer kemur til með að stýra mótinu en hann er hokin af reynslu og ætti ekki að vera í vandræðum með að stjórna mótinu frá A til Ö. Getur þú aðstoðað? Eins og flest allir vita í íslenska css samfélaginu, þá hefur dregið ansi mikið saman í virkni í samfélaginu og nú ætlum við að sýna það og sanna að líf er enn í clönunum. ÞAÐ SKIPTIR MIKLU MÁLI AÐ ÞÚ AÐSTOÐAR OKKUR MEÐ ÞVÍ AÐ LÁTA AÐRA VITA…

Lesa meira

Íslenska liðið Romy and the Rest (RATR) keppir nú í einu stærsta online móti í leiknum Defense of the Ancients (DotA).  512 lið byrjuðu að keppa í mótinu og eru RATR komnir í 32 liða úrslit og eru þar núna með fullt hús stiga í Upper Bracket. Engin smá verðlaun eru í boði en sigurvegarar hljóta 20.000 þúsund dollarar eða rúmlega 2.5 milljónir íslenskar krónur.  eSports.is kemur til með að fylgjast með köppunum og flytja ykkur fréttir um velgengni þeirra í mótinu. Leikmenn RATR liðsins eru:  chroMium pandasaurusrex blr linkoo roMy

Lesa meira

Þá er komið að næsta hitting TeK manna í leiknum Battlefield 3, en hann verður haldin á sunnudaginn 2. desember 2012 um klukkan 20:00 til 21:00.  „Við ætlum að hafa þetta mjög klassískt, en okkur langar að byrja á Operation Firestorm, svo það verða allir að muna að mæta“, sagði Desidius í samtali við eSports.is. Munið að fylgjast með á facebook síðu TeK manna hér og á heimasíðu þeirra.

Lesa meira

Það er mikið um að vera í herbúðum íslenska leikjasamfélagsins IceEz þessa dagana, en ákveðið var að reka alla sem eru inactive þ.e. þeir sem ekki nota ICEZ tag eða eru ekki á TeamSpeak hjá samfélaginu. „Við vorum að ganga til liðs við Team Frostbite e-Sports [tF] og verðum Team Frostbite Iceland og planið er að taka þátt í ESL“, segir IceEz captain Hjorleifsson á spjallinu. Mynd: teamfrostbite.com

Lesa meira

whiMp hefur sett upp íslenskan Day Of Defeat 1.3 server og hefur hug á því að halda vikulega hitting á þessum gamla og klassíska leik. Ip: 46.239.219.107:27015 [.MadCat.]-[No-Bots]-[24/7]#1 Hittingur byrjar á næstkomandi sunnudag 25. nóvember klukkan 21:00 og fyrir þá sem vilja láta minna sig sjálfkrafa á hittinginn er bent á að joina eSports.is Steam grúppuna hér, en þar verður DoD-event sett upp vikulega. Mynd: Skjáskot af game-monitor.com

Lesa meira

Nokkrir íslenskir strákar halda úti hressandi og um leið sjokkerandi youtube rás, en þeir eru Hilden, JJ, Mousy, Bibbi, Elmo, Erazer og Mr. E.  Strákarnir sem allir eru um tvítugt, spila Amnesia: the dark descent custom story, The Hidden: source svo eitthvað sé nefnt og sitja við facecam og öskra af hryllingi. „Við stofnuðum hóp okkar seint árið 2010. En þá vorum við ekkert komnir langt út í tölvuleikja spilunina. Á þessum tíma hugsuðum við aðallega út í stuttmyndagerð og þessháttar. En Draazil varð ekki til formlega fyrr en 2012 þegar við ákveðum nafnið okkar og markmið“, sagði Bibbi í…

Lesa meira

Íslenska [TEK] Battlefield 3 clanið heldur hitting í kvöld (sunnudag 18. nóvember) um klukkan 20°° – 21°°.  „Reyna ná sem flestum svo við getum tekið gott 10v10 í það minnsta! Mig langar að fara spila meira en bara infantry“ segir Desidius á spjallinu. Reynt verður að taka stærri borð, t.a.m. með vehicles, en það ræðst allt á fjöldanum sem mætir. Fylgist með stöðunni á [TEK] leikjaþóninum hér. Mynd: Skjáskot af heimasíðu [TEK] manna.

Lesa meira

Al-Íslenskt World Of Warcraft guild Nocens Locus leitar nú af nokkrum spilurum sem eru til í hardcore raiding. „Við erum búnir með Heart of fear normal og 3/5 hc í mogu. Styttist í að við náum Spirit kings hc en við erum búnir að lenda mjög mikið eftirá vegna roster changes og fl.  Eins og staðan er í dag erum við held ég 11 raiders og 1-2 sem geta ekki raidað alla dagana sem við raidum“, segir Snapboogie the Undaunted á spjallinu. Þeir sem hafa áhuga geta smellt hér til að lesa nánar.

Lesa meira

Disguised Enemy Spy (DES) er íslenskur 15 ára strákur og er mikill Team Fortress 2 spilari.  Fréttamaður eSports.is var boðið að spila í nýju mappi ctf_des_pootis sem DES var að hanna fyrir leikinn Team Fortress 2 og leit mappið ansi vel út og lítið sem ekkert bögg í mappinu, en þetta er ekki hans fyrsta mapp sem hann hefur hannað, heldur er það surf_des_easyfun. DES spilar mest Pyro í TF2 og þar fast á eftir er Medic í uppáhaldi og jú að sjálfsögðu fær snillingurinn Heavy smá spilun hjá DES, en hann hefur náð 271 af 448 Achievements í Team…

Lesa meira