Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Strauss Zelnick, forstjóri Take-Two Interactive, lýsir yfir gríðarlegum metnaði Rockstar Games með væntanlegan leik: „Við viljum búa til það besta sem hefur sést í afþreyingu, ekki aðeins tölvuleikjum.“ Í nýlegu viðtali við CNBC fjallaði Strauss Zelnick, forstjóri bandaríska leikjafyrirtækisins Take-Two Interactive, um væntanlegan leik Rockstar Games, Grand Theft Auto VI, sem hann kallar „metnaðarfyllsta afþreyingarverkefni sem nokkru sinni hefur verið unnið að“. Zelnick greindi frá því að þó útgáfu leiksins hafi verið seinkað um fáeina mánuði, sé það gert til að tryggja að lokaafurðin verði einstök og brjóti blað í sögu afþreyingar. „Rockstar Games er að reyna að skapa það…

Lesa meira

BB Team hefur unnið sér sess á meðal fremstu liða í rafíþróttum með því að tryggja sér sigur í PUBG Global Series 8 (PGS 8), sem lauk 18. maí 2025. Þessi sigur markar hápunkt í frammistöðu liðsins á keppnistímabilinu, þar sem þeir höfðu áður náð 2. sæti í PUBG EMEA Championship 2025: Spring og 4. sæti í PGS 7. Frammistaða BB Team í PGS 8 Með stöðugleika og einbeitingu náði BB Team að skara fram úr í samkeppni við bestu lið heims. Þeir sýndu fram á yfirburði sína með því að nýta sér reynslu og liðsheild til að tryggja sér…

Lesa meira

Rafíþróttafélagið Fnatic hefur staðfest þátttöku sína í Esports World Cup 2025 með átta keppnisliðum í mismunandi leikjum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Fnatic. Mótið fer fram í Riyadh, Sádi-Arabíu, frá 7. júlí til 24. ágúst 2025 og er með heildarverðlaunafé upp á 70 milljónir dollara, sem gerir það að stærsta viðburði sinnar tegundar í sögu rafíþrótta. Liðsskipan Fnatic fyrir EWC 2025 Fnatic mun keppa í eftirfarandi leikjum: Apex Legends: Yuga „YukaF“ Horie, Haruto „Kernel garcia“ Seki og Manato „Lible_Ace“ Asada. Counter-Strike 2: Freddy „KRIMZ“ Johansson, Matúš „matys“ Šimko, Benjamin „blameF“ Bremer, Rodion „fear“ Smyk og Dmytro „jambo“…

Lesa meira

Í óvæntum og eftirminnilegum úrslitum á Finnish Game Awards 2025 hlaut tölvuleikurinn Pax Dei titilinn „Leikur ársins 2024“. Leikurinn er afurð íslensk-finnska leikjafyrirtækisins Mainframe Industries og ruddi sér til rúms á kostnað stórfyrirtækja á borð við Supercell og Remedy. Pax Dei er metnaðarfullur fjölspilunarleikur á netinu sem hönnuðurinn lýsir sem „félagslegum Sandbox-tölvuleikur“ þar sem leikmenn hafa algjört frelsi til að móta og byggja upp eigin veröld. Kjarninn í leiknum felst í samskiptum og samvinnu notenda sem mynda samfélög, skiptast á gögnum og takast á við sameiginleg verkefni. Fyrir þá sem þrá meira spennustig býður leikurinn upp á opinn heim þar…

Lesa meira

Það þarf ekki nema eitt andartak í stiklunni fyrir Grand Theft Auto VI til að netheimar fari á hliðina – og það andartak tilheyrði Jason Duval. Með sólgleraugu, derhúfu á hnakkanum og þykkan suðurríkjakynþokka í svitanum, hefur þessi aðalpersóna GTA-heimsins orðið að átrúnaðargoði vegna útlits, löngu áður en leikurinn sjálfur hefur litið dagsins ljós. Duval, sem hefur verið kynntur sem annar aðalpersónanna í væntanlegum leik Rockstar Games, hefur nú þegar verið krýndur af aðdáendum sem stælgæi skjásins – blanda af sveittum flóttamanni og tískufyrirmynd með Miami Vice-blæ. Það hjálpar ekki til að hann gengur um ber að ofan í stiklunni,…

Lesa meira

Eftir meira en tvo áratugi af bið og vangaveltum virðist sem Half-Life 3, hinn goðsagnakenndi framhaldstitill frá Valve, sé loksins að verða að veruleika. Samkvæmt nýjustu sögusögnum er leikurinn nú fullspilandi frá upphafi til enda, og mögulegt er að hann verði kynntur opinberlega síðar á þessu ári, að því er fram kemur á fréttavefnum eurogamer.net. Framfarir í þróun og tilvísun í „HLX“ Upplýsingarnar koma frá Tyler McVicker, þekktum Valve-insider, sem hefur áður veitt áreiðanlegar upplýsingar um þróun Half-Life: Alyx. Í nýlegri útsendingu staðfesti McVicker að leikurinn, sem ber vinnuheitið „HLX“, sé nú fullspilandi frá upphafi til enda. Þetta þýðir að…

Lesa meira

Fyrirtækið Bungie hefur verið sakað um hugverkastuld, að því er fram kemur á psfrettir.com. Í fréttinni segir að Bungie hafi mögulega notað hugmyndir eða efni án leyfis frá öðrum aðilum, sem hefur vakið athygli og umræðu í leikjaiðnaðinum. Málið er enn í skoðun og hefur vakið mikla athygli meðal aðdáenda og sérfræðinga í greininni. Fyrir nánari upplýsingar og ítarlega umfjöllun um málið, er hægt að lesa með því að smella hér. Þetta mál bætist við erfitt ár fyrir Bungie, þar sem fyrrum framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Christopher Barrett, var rekinn vegna ásakana um óviðeigandi hegðun gagnvart kvenkyns starfsmönnum. Barrett hefur nú höfðað…

Lesa meira

Valve, eigandi og rekstraraðili leikjaplatformsins Steam, hefur gefið út yfirlýsingu þar sem fullyrt er að enginn öryggisbrestur hafi átt sér stað í kerfum fyrirtækisins, þrátt fyrir nýlegar fréttir um meinta sölu á gögnum 89 milljóna notenda á „dark“ vef. Samkvæmt Valve innihélt lekið gagnasafn einungis eldri SMS-skilaboð sem send voru til viðskiptavina Steam með kóðum sem voru eingöngu virkar í fimmtán mínútur. Þessar upplýsingar tengjast ekki neinum reikningum, lykilorðum, greiðsluupplýsingum eða öðrum persónulegum gögnum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Steam. As per Christopher Kunz: This alleged leak just contains SMS delivery logs with carrier metadata and phone…

Lesa meira

Það er nóg um að vera hjá PUBG samfélaginu þessa dagana. Fjölbreytt dagskrá einkennir næstu vikur með spennandi mótum, LAN-kvöldi og umfangsmikilli uppfærslu frá KRAFTON sem breytir leikupplifuninni á áhrifaríkan hátt. Hér er yfirlit yfir það helsta: 354 eSports sigraði helgarmótið Á sunnudaginn fór fram mót á vegum Íslenska PUBG samfélagsins þar sem 16 lið tóku þátt, þó að upphaflega hafi verið stefnt að 18 liðum. Keppnin reyndist bæði spennandi og vel skipulögð og stóð lið 354 eSports uppi sem sigurvegari. Þeir komu, sáu og sigruðu – og vöktu athygli fyrir öflugan leik og gott skipulag innan liðsins. Skráning hafin…

Lesa meira

Breska rafíþróttafélagið EXO Clan tilkynnti óvænt um lokun starfsemi sinnar á samfélagsmiðlum mánudaginn 12. maí 2025. Tilkynningin kom bæði stuðningsmönnum og meðlimum félagsins í opna skjöldu, þar sem stofnandi EXO Clan, Exodus, lýsti yfir undrun sinni og sagðist ekki hafa verið upplýstur um ákvörðunina. I had no say in whats happening with EXO right now. I didnt even know it was happening till I saw the leak.. Somehow my role in the discord was removed and therefore I didnt get the ping with the information. Nor was I approached at any point with the problems at hand. — EXO? Exodus…

Lesa meira