Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Í dag tilkynnti Mennta- og barnamálaráðuneytið að frá og með haustinu 2025 verði eSports kennt sem skyldufag í öllum grunnskólum landsins. Meðal annars munu nemendur læra strategíu, teamwork og rage management í leikjum eins og Fortnite, League of Legends og CS2. Að auki var kynnt sérstakt „Aðlögunarpróf í Minecraft“ fyrir þá sem vilja komast inn í Menntaskólann við Sund (MS). Prófverkið felur í sér að byggja Hallgrímskirkju á undir 3 klukkustundum í „Survival Mode“. „Við viljum tryggja að íslenskir nemendur séu ekki bara vel menntaðir í stærðfræði og íslensku – heldur einnig í smíði, PvP og map awareness,“ sagði ráðherra…
Góð ástæða fyrir því að önnur stikla úr GTA 6 hefur ekki verið birt – Þögn Rockstar er hluti af snjallri markaðsáætlun
Það er liðið rúmlega eitt ár síðan Rockstar Games gaf út fyrstu – og hingað til einu – stikluna fyrir Grand Theft Auto 6 (GTA 6). Síðan þá hefur lítið sem ekkert heyrst frá leiknum, hvorki skjámyndir né nýtt kynningarefni. Þrátt fyrir langa bið hefur áhuginn á leiknum haldist ótrúlega mikill, sem kemur ekki á óvart þegar um er að ræða eitt stærsta leikjaheiti heims. Eins og kemur fram í umfjöllun DualShockers er þessi þögn ekki tilviljun. Hún er hluti af markaðsáætlun móðurfélags Rockstar Games, Take-Two Interactive. Ákveðin þögn byggir upp spennu Take-Two hefur meðvitað haldið aftur af frekari efni…
Þann 3. apríl næstkomandi fer fram óvenjulegur skólaviðburður í Fjölbrautaskólanum við Ármúla, þegar nemendur og gestir koma saman á Óðins LAN – rafíþróttaviðburð sem haldinn er til styrktar Barnaheillum. Aðgangseyrir er 2.000 krónur og rennur allur ágóði óskiptur til góðgerðarmála. Viðburðurinn er bæði keppni og skemmtun þar sem markmiðið er að sameina áhugafólk um tölvuleiki og styðja gott málefni. Keppendur fá tækifæri til að spreyta sig í vinsælum rafíþróttaleikjum, bæði á borðtölvum og PlayStation. Keppnisgreinar kvöldsins eru eftirfarandi: Borðtölvur: Counter-Strike 2 og Rocket League PlayStation: Tekken og FIFA Tölvuver skólans verður opnað klukkan 18:00 og tekið verður á móti gestum…
Esports World Cup Foundation (EWCF) hefur opinberað val á 40 rafíþróttafélögum í samstarfsverkefni sitt fyrir árið 2025. Í fréttatilkynningu frá EWCF kemur fram að þetta frumkvæði miðar að því að styðja við sjálfbæran vöxt rafíþróttafélaga með fjárhagslegum stuðningi og markaðslegum aðgerðum. Heildarfjárfesting verkefnisins nemur 20 milljónum Bandaríkjadala, þar sem hvert félag getur fengið allt að 1 milljón dala til að framleiða skapandi efni og markaðsherferðir í aðdraganda og á meðan Esports World Cup 2025 fer fram. Esports World Cup Foundation (EWCF) er stofnun sem var stofnuð með það markmið að efla og styðja við rafíþróttasamfélagið á heimsvísu. Hún stendur meðal…
Saber Interactive, þekktir fyrir leiki eins og MudRunner og SnowRunner, vinna nú að þróun nýs hermileiks sem kallast RoadCraft. Í þessum leik stjórnar þú fyrirtæki sem sérhæfir sig í að endurbyggja innviði á svæðum sem hafa orðið fyrir náttúruhamförum. Verkefnin fela í sér að hreinsa brakið, skipta út skemmdum búnaði og endurbyggja vegi og brýr sem hafa orðið fyrir skemmdum vegna veðurs. Leikurinn býður upp á yfir 40 mismunandi vinnuvélar, þar á meðal jarðýtur, krana, valtara og vörubíla. Þú getur valið að spila einn eða í samstarfi við allt að þrjá vini í co-op. Framkvæmdirnar fara fram á átta…
Edens Zero er 3D hasarhlutverkaleikur byggður á samnefndri manga-seríu Hiro Mashima, höfundar Fairy Tail og Rave Master. Leikurinn fylgir ævintýrum Shiki Granbell og vina hans í leit að hinni almáttugu gyðju, Mother, um borð í geimskipinu Edens Zero. Á ferðalagi sínu heimsækja þau fjölbreyttar plánetur, kynnast nýjum persónum og takast á við öfluga óvini. Edens Zero er væntanlegur fyrir PlayStation 5 þann 15. júlí 2025. Nánari upplýsingar og ítarlega umfjöllun má finna á psfrettir.com. Mynd: konami.com
Nýi Assassin’s Creed-leikurinn vekur athygli – og deilur: Blökkumaður sem japanskur samúraí
Það er fátt sem vekur jafn miklar tilfinningar á netinu og vinsæl leikjasería með nýja nálgun. Tölvuleikjafyrirtækið Ubisoft gaf út nýverið (20. mars s.l.) næsta kafla í Assassin’s Creed-seríunni, sem ber nafnið Shadows, og að þessu sinni færist leikurinn til Japan á tímum samúræja og ninja. En það sem flestir virðast tala um er ekki glæsileg grafíkin eða ný tækni – heldur Yasuke, einn af tveimur aðalpersónum leiksins. Yasuke er blökkumaður sem kom til Japans á 16. öld og varð samúraí í þjónustu Oda Nobunaga, eins áhrifamesta leiðtoga þess tíma. Þó að margir fögnuðu þessari sögulegu og óvenjulegu persónu í…
Þrjár stúlkur í námi við Verzlunarskóla Íslands vinna nú að lokaverkefni í áfanganum Tölvunotkun, þar sem þær beina sjónum sínum að tölvuleikjaspilun og mögulegum kynjamun í tengslum við hana. Í því samhengi hafa þær sett saman stutta, nafnlausa könnun sem tekur einungis 1–3 mínútur að svara. Markmið könnunarinnar er að varpa ljósi á hversu algengt það er að ungmenni spili tölvuleiki, hversu miklum tíma þau verja í spilun, og hver viðhorf þeirra eru til hlutverks kynja í þessum vinsæla frítíma. Könnunin er nafnlaus og ekki hægt að rekja svör til einstaklinga. Þær hvetja alla sem hafa áhuga á tölvuleikjum –…
Leikjaiðnaðurinn þarf ekki fleiri hvítar hetjur – Allar raddir skipta máli – líka í tölvuleikjum
Annabel Ashalley-Anthony, stofnandi og framkvæmdastjóri Melanin Gamers, hefur verið valin í Ensemble 2025 hópinn á London Games Festival. Ensemble er áætlun sem varpar ljósi á einstaklinga af svörtum, asískum og öðrum minnihlutahópum sem starfa í breskum tölvuleikjaiðnaði. Annabel, einnig þekkt sem Anzy, hefur unnið með stórfyrirtækjum eins og EA, Ubisoft, Square Enix og ZA/UM Studio til að efla fjölbreytni í leikjaiðnaðinum. Hún hefur einnig komið fram fyrir hönd Melanin Gamers á viðburðum eins og Insomnia og samkomum Esports News UK. Auk þess er hún sendiherra Women in Games og starfar með Ghana Esports Federation í alþjóðlegum samskiptum. Ensemble sýningin verður…
Það styttist í að leikmenn á PlayStation 5 fái að upplifa ævintýri fornleifafræðingsins fræga, Indiana Jones. Microsoft stúdíóið Bethesda hefur nú staðfest að Indiana Jones and the Great Circle komi út á PS5 í næsta mánuði, eftir að hafa áður verið aðeins fáanlegur á Xbox Series X/S og PC, að því er fram kemur á psfrettir.com. Leikurinn kom fyrst út í lok síðasta árs og hlaut þá afar góðar viðtökur gagnrýnenda og leikjaspilara, sem hrósuðu einkum spennandi frásögn, grafískri útfærslu og kvikmyndaupplifun. Í Indiana Jones and the Great Circle fær leikmaðurinn að stíga beint inn í hlutverk goðsagnakennda ævintýramannsins í…
