Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Ástsæla YouTube-stjarnan Shirley Curry, betur þekkt sem Skyrim-amma, hefur sent út tilkynningu um að hætta allri myndbandagerð sem hún hefur gert í um níu ár. Shirley, sem er orðin 88 ára, er með 1,29 milljón fylgjendur á youtube og hefur gert yfir 2.300 myndbönd. Tilkynninguna er hægt að horfa á hér: https://www.youtube.com/watch?v=jNGH8o3LDBo Hér að neðan eru nokkur vinsæl myndbönd sem hún hefur gert: https://www.youtube.com/watch?v=ICZhLMAT-Pg https://www.youtube.com/watch?v=e-28gqNRhgk https://www.youtube.com/watch?v=u5adYlqzNUg Mynd: skjáskot úr myndbandi
Steam hefur enn og aftur slegið met sitt yfir flesta tölvuspilara sem spila samtímis í gegnum Steam eða 38.366.479 spilara. Þessi tala, sem náðist 22. september 2024, er milljón hærri en fyrra met sem sett var í síðasta mánuði. Topp 5 mest spiluðu leikinir á Steam eru Counter-Strike 2, Dota 2, PUBG, Banana (úfff… já, þetta er rétt, en Banana leikurinn er einfaldur clicker Game) og Black Myth: Wukong. Nú er spurningin hvort Steam nái 40 milljón múrnum þegar Call of Duty: Black Ops 6 kemur út í í næsta mánuði? Myndir: skjáskot / steampowered.com
Í gær fór fram online mót í leiknum PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) hjá íslenska Pubg samfélaginu. 17 lið skráðu sig til leiks sem ætti að teljast gott á sunnudagskvöldi. Sex kort voru spiluð en þau voru 2x Miramar, 2x, Taigo og 2x Erangel og í þessari röð. Liðin sem kepptu voru eftirfarandi: 354esports a7x Barbie Bird House Chaos Crew FresH NA legends Nic cage fan club Old Goats Oldies Omni PNGR Strike force alpha Team Iceland Trúðalestin 1 Úlfr War Machines Íslenska liðið kom, sá og sigraði Virkilega skemmtilegt mót og þó svo nokkrir hnökrar voru, þá var mótið vel heppnað.…
Í kvöld, sunnudaginn 22. september kl. 20:00, fer fram online mót í leiknum PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) hjá íslenska Pubg samfélaginu. 17 lið eru skráð í mótið og skipuleggjendur búast við hörkukeppni. Spilað verða sex kort, þ.e.: 2x Miramar, 2x, Taigo og 2x Erangel í þessari röð. Liðin sem keppa eru eftirfarandi: Iceland PNGR Omni Oldies Trúðalestin 1 a7x FresH Old Goats Nic cage fan club Strike force alpha Úlfr Chaos Crew War Machines Barbie 354esports Bird House NA legends Fylgstu með í beinni frá Next Level Gaming í Egilshöll á twitch 354community rásinni hér þar sem Steypa og Snapster munu…
Twitch ráðstefnan TwitchCon er haldin nú um helgina 20. til 22. september og að þessu sinni í borginni San Diego. Dan Clancy, forstjóri Twitch, hélt ræðu við opnun á ráðstefnunni, en þar sagði hann meðal annars að breytingar verða á lokun á aðgangi streymara á Twitch. Um leið og aðgangi streymara á Twitch verður lokaður þá gefa Twitch stjórnendur út ástæður þess. Að auki verður tekið harðari á því að að loka á aðgangi streymara í styttri tíma. „Við viljum gefa þér þessar upplýsingar svo að þú getur séð hvað þú gerðir, hvaða reglur voru brotnar og ef þér finnst…
Íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress tryggði sér á dögunum þriggja milljóna dollara fjárfestingu, eða um 410 milljóna króna, fyrir þróun á ótilkynntum leik fyrirtækisins. Á árinu hefur starfsmönnum fjölgað úr fjórum í fjórtán. Í fréttatilkynningu þess efnis sem að visir.is vekur athygli á, segir að á bak við fjárfestinguna séu Behold Ventures, Brunnur og Crowberry Capital. Porcelain Fortress hafi áður gefið út tölvuleikinn No Time to Relax sem selst hafi í um 350 þúsund eintökum. Söluhæsti mánuður leiksins hafi í ágúst á þessu ári, fimm árum eftir að leikurinn kom á markað. Leikurinn hafi verið þýddur á tíu tungumálum, þar á…
Eins og kunnugt er þá hefur íslenski tölvuleikjaframeiðandinn CCP boðað útgáfu á nýjum tölvuleik sem heitir EVE Frontier. CCP býður nú spilurum í lokaða leikprófun á leiknum í lok mánaðarins, en hægt er að sækja um hér. EVE Frontier stikla https://www.youtube.com/watch?v=Fgw44m1AdKc Mynd: evefrontier.com
Starborne Frontiers, tölvuleikur íslenska tölvuleikjaframleiðandans Solid Clouds er á leiðinni á Steam leikjaveituna. Áhugasamir geta sett Starborne: Frontiers á óskalista (e. wishlist) en leikurinn verður aðgengilegur fyrir notendur á veitunni í byrjun október. Fyrir þá sem þekkja ekki Steam, þá er Steam stærsta PC tölvuleikjaveita heims, með einn milljarð flettinga á dag og 132 milljónir virkra mánaðarlegra spilara. Að vera á Steam opnar nýjar dyr fyrir Starborne: Frontiers, og tryggir að leikurinn verður í boði fyrir breiðari hóp spilara sem eru ekki að spila í snjalltækjum. Þetta þýðir að Starborne: Frontiers verður aðgengilegur á bæði PC og í snjalltækjum. Sjá…
Íslenska PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) samfélagið er heldur betur að vakna til lífs síns með móthald, en online mót verður haldið sunnudaginn 22. september nææstkomandi. Síðasta mót var haldið 1. september s.l. þar sem Pungarnir hrepptu 1. sætið. Alls tóku 15 lið þátt í mótinu og er stefnan tekin á 18 lið á sunnudaginn nk. Sjá einnig: Pungarnir sigruðu í íslenska PUBG mótinu Fyrirkomulagið á skráningu liða er fyrstir koma fyrstir fá og er hægt að skrá liðið með því að smella hér. Fyrirkomulagið verður að öllu líkindum svipað og síðast, en verður hækkað í 6 kort. Hægt er að fylgjast…
Nörd Norðursins í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands ætlar að gefa tvo miða á tölvuleikjatónleika í Hörpu. Til að taka þátt er nóg að líka við þessa færslu á facebook og kommenta nafnið þeim tölvuleik sem inniheldur þína uppáhalds tölvuleikjatónlist. Um tónleikana Tölvuleikir eru gróskumikill og litskrúðugur geiri menningarlífsins þar sem tónlistin leikur oftar en ekki mikilvægt hlutverk. Hún á ríkan þátt í að skapa veröld þar sem leikurinn á sér stað, tónlistin mótar andrúmsloft leiksins og framvindu — og tilfinningalegt ástand spilarans um leið. Tónleikar þar sem sinfóníuhljómsveitir leika þekkta og vinsæla tónlist úr tölvuleikjum hafa notið mikilla vinsælda um…
