Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

16 landslið kepptu í meistarakeppninni PUBG Nations Cup 2024 en mótið var haldið í höfuðborg Suður-Kóreu, Seúl. Mótið hófst 6. september s.l. og lauk í gær 8. september og keppt var í leiknum PUBG – PlayerUnknown’s Battlegrounds. Landsliðið frá Kóreu hreppti 1. sætið, en liðið sigraði einnig mótið í fyrra, fjórða sætið árið 2022 og annað sætið árið 2019. Í öðru sæti var Bandaríkin en þar voru meðal annars spilrarnir og SQ heimsmeistarnir Shrimzy og Kickstart, en vinur þeirra SQ TGLNT keppti fyrir hönd Ástralíu. Í þriðja sæti varð landsliðið frá Taílandi. Þau lið sem tóku þátt voru: Argentína Ástralía…

Lesa meira

Community kvöld í World of Warcraft: The War within fimmtudaginn 12. september klukkan 20:00 í Next Level Gaming í Egilshöll, „Community kvöld hjá okkur er fyrir alla sem spila World of Warcraft: The War Within! Markmið kvöldsins er að kynnast öðrum TWW spilurum, hafa gaman og miðla reynslu í okkar ástkæra tölvuleik. Kahoot byrjar klukkan 20:15 og eru veglegir vinningar í boði fyrir sigurvegara. Á kvöldið kostar 2.990 kr.- og inn í því er þátttaka í Kahoot + spilatími til lokunar 01:00.  Happy hour á skít köldum á krana! 1090 kr.-“ segir í tilkynningu. Mynd: facebook / Next Level Gaming

Lesa meira

Ný stikla fyrir bíómyndina Minecraft er komin út, en þar má sjá stórleikarana Jack Black og Jason Momoa í aðalhlutverkum. Í myndinni eru einnig Emma Myers („Wednesday“), Danielle Brooks („The Color Purple“), Sebastian Eugene Hansen („Just Mercy, „Lisey’s Story“) og Jennifer Coolidge. Jack Black er ekki alveg ókunnugur þegar kemur að leika í bíómyndum tengt leikjum, var í Jumanji bíómyndunum, raddaði Bowser í Super Mario Bros og Claptrap í Borderlands. Minecraft bíómyndin verður sýnd á næsta ári í apríl 2025. Horfið á stikluna hér að neðan, sjón er sögu ríkari: https://www.youtube.com/watch?v=zxGBZCshYCI Myndir: skjáskot úr myndbandi

Lesa meira

60 ára gömul amma nýtur mikilla vinsælda á streymisveitum og samfélagsmiðlum þar sem hún streymir leikjaspilun sína ásamt annarri afþreyingu í beinni útsendingu, birtir myndbönd omfl. Hún kallar sig TacticalGramma og er með rúmlegta 400 þúsund fylgjendur á instagram, 51 þúsund áskrifendur á youtube, 93 þúsund á twitch og tæp 2 milljón fylgjendur á Tik tok, vel gert hjá þeirri gömlu. Hér að neðan eru nokkrar skemmtilegar klippur frá ömmunni: View this post on Instagram A post shared by TacticalGramma (@tacticalgramma) View this post on Instagram A post shared by TacticalGramma (@tacticalgramma) View this post…

Lesa meira

Sony hefur ákveðið að taka Concord, nýjasta PlayStation-leikinn þeirra niður þann 6. september næstkomandi vegna slæmra sölu á leiknum. Hér er um að ræða fyrstu persónu skotleikurinn sem kom eingöngu á PS5 og PC 23. ágúst s.l. Concord náði einungis 697 spilara til að spila leikinn á sama tíma á Steam, sem er töluvert lægra en leikurinn Hringadróttinssögu: Gollum þegar hann kom út, en hann fékk á sínum tíma þann hræðilega titil, versti leikur ársins 2023. „Við höfum ákveðið að taka leikinn niður frá og með 6. september 2024 og kanna þá valkosti hvort hægt sé að ná betur til…

Lesa meira

Nú í ágúst fór fram lanmótið HRingurinn sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík. Keppt var í ýmsum leikjum og voru veglegir vinningar í boði. Úrslit voru eftirfarandi. Counter-Strike 2: Dusty League of Legends: Ghost emoji Shash ultimate doubles: Frosti Hlífar Ragnarsson og Erlingur Atli Pálmarsson Street Fighter 6: Óskar Snær Halldórsson Super Smash Bros Ultimate: Hlynur Snær Eysteinsson Tekken 8: Ronloyd Tryggvi Quiamco Leona Rivals of Aether: Skúli Bárðarson Guilty Gear Strive: Egill Askur Eineborg Með fylgja myndir frá lanmótinu: Myndir: facebook / HRingurinn

Lesa meira

Í gær fór fram online mót í tölvuleiknum PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) 4 manna lið, í fyrstu persónu (FPS), og hófst mótið klukkan  20:00.  Það hafa ekki verið mörg íslensk mót haldin í þessum tölvuleik og var almenn ánægja hjá keppendum sem greinilega vilja fleiri slík mót. Úrslit urðu þannig að PNGR hrepptu 1. sætið með 79 stig, Team Iceland lenti í öðru sæti með 62 stig og gömlu Oldies kallarnir í þriðja sætið með 62 stig.  PNGR Jengah iamsyntex JonCjr maNiiic  Team Iceland Gazzman2k namano_10 Alb_Mco Kongurinn8  Oldies: tveirmetrar Thorgeir Biker4life JellyFizhH Keppt var í kortunum Erangel, Miramar og Taigo. …

Lesa meira

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, á tveggja áratuga starf að baki hjá fyrirtækinu, en lítur svo á að hann sé rétt að byrja. Þróun er hafin á nýjum tölvuleik, sem gerist í sama umhverfi og EVE Online, en þar sem fjármálakerfið verður byggt á bálkakeðjutækni. Peningarnir verða með öðrum orðum í sömu mynd og Bitcoin. „Við erum alveg á brúninni með því að vera of snemma að gera þetta,“ segir Hilmar Veigar í samtali við Ísland í dag. Stefnan er að hanna „nýja upplifun, byggða ofan á þessari bálkakeðjusýn sem gengur út á að kerfið sé ekki miðstýrt, heldur að…

Lesa meira

Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur lokið stórum þróunaráfanga fyrir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers, og er hann núna öllum aðgengilegur í snjalltækjaverslunum Apple og Google (e. app store). Hér er um að ræða fyrsta skrefið í útgáfuferli leiksins. Gögn um hegðun spilara verða notuð til að þróa og fínstilla leikinn svo að hann nái tilskildum viðmiðunarmörkum varðandi tekjur og spilatíma hvers notanda. Þegar þessum markmiðum hefur verið náð er næsti stóri áfangi félagsins endanleg útgáfa leiksins. Starborne Frontiers er hannaður fyrir snjalltæki en einnig verður hægt að spila hann í PC-útgáfu á næstu misserum. Um er að ræða hlutverkaleik þar…

Lesa meira

Nýjasta útgáfan af Call of Duty leikjunum, Modern Warfare 2, hefur verið streymt yfir 5 milljóna klukkustunda á Twitch í nóvember, samkvæmt upplýsingum frá Statista. Leikurinn Valorant er í öðru sæti með 2,9 milljónir og til samanburðar þá hefur streymistundum á Overwatch 2 fækkað um 29% frá október til nóvember 2022. Mynd: callofduty.com

Lesa meira