Nýjar fréttir
Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Þann 19. nóvember mun Lúðrasveitin Svanur flytja úrval laga úr hinum ýmsu tölvuleikjum í Norðurljósasal Hörpu. Farið verður í ferðalag frá grænum grasbölum Hyrule til margbrotins landslags Tamriel og þaðan út í nístingskulda geimsins. Komið verður við hjá heimsþekktum karakterum á borð við píparann Mario, galvaska hermanninn Master Chief, ískaldan Arthas og hinn síkáta Pikachu. Af verkum tónleikanna má helst nefna glænýja útsetningu af þemum Elder Scrolls leikjanna, lög úr World of Warcraft og syrpu úr íslenska netleiknum EVE Online, en hún samanstendur af lúðrasveitarútsetningum hluta þeirra laga sem Sinfóníuhljómsveit Íslands spilaði nýverið fyrir æsta aðdáendur leiksins. Miða má nálgast…
Stofnuð hefur verið facebook grúppa fyrir alla Battlefield spilara á Íslandi. Hvetjum alla þá sem áhuga á leiknum Battlefield að óska eftir að komast í grúppuna.
Í gærkvöldi fór fram landsleikur Íslands og Noregs í ESEC í Counter-Strike:Global Offensive (CS:GO). Spilað var þrjú möpp (bo3) og fyrsta mappið var Dust2 sem byrjaði fyrri hálfleikur ansi brösulega hjá íslenska landsliðinu (.is) sem endaði með sigri Noregs 10-5. Nú var ekkert annað eftir nema að bretta upp ermar sem .is gerði svo sannarlega og náðu sigri 11-1 og sigur í höfn í fyrsta mappi hjá .is 16-11. Næsta mapp var mirage en þar náði Noregur rétt svo sigri eða 16-14 og var þá staðan jöfn 1-1. Þá kom síðasta mappið Inferno og þar var .is ekki alveg á…
Í kvöld sunnudaginn 22. september klukkan 19:00 keppir íslenska landsliðið í Counter-Strike:Global Offensive (CS:GO) við landslið Noregs og er þetta annar leikur landsliðsins í qualification í ESEC, en fyrsti leikur var gegn Ísrael þar sem Ísland fór þar með öruggan sigur. Það eru 24 lönd sem keppa í QR2 og komast 12 lið áfram. Ekki er enn búið að ákveða hvaða möpp verða spiluð í kvöld, en þeir sem spila fyrir hönd Ísland eru: dannoz kutter Skipid ofvirkur dripz Leikurinn verður sýndur í beinni á twitch rás dannoz hér.
Þeir sem þekkja til í Íslenska Counter Strike:Source samfélaginu ættu að kannast við spilarann með nickið Care bear. 14. september 2010 kom afmæliskveðja á spjallið, en þar var Css spilarinn cosMic að óska félaga sínum Care bear til hamingju með daginn. Ári síðar eða árið 2011 sagði Care bear; „ég mun halda þessum þræði lifandi svo lengi sem esports lifir“ Síðan hefur Care bear staðið við þau orð og nú 14. september s.l. bump-aði meistarinn þráðinn enn og aftur, allra flottastur. Það verður spennandi að vita hvort að Care bear komi til með að standa við þessa ákvörðun sína um…
Öruggur sigur hjá Íslenska CS:GO landsliðinu þegar þeir kepptu við Ísrael í kvöld. Fyrirkomulagið var bo3 og var fyrst tekið mappið mirage_ce og sigraði Ísland 16:6 og 1-0 í höfn. Næsta mapp var inferno_se og þurftu Ísrael að ná sigur í þessum leik ef þeir áttu ekki á hættu að detta úr leik, en allt kom fyrir ekki, og Ísland hreinlega valtaði yfir þá og sigraði 16:3 og stigin 2-0 í höfn og þar með duttu Ísrael út úr keppni. Þeir sem kepptu í kvöld fyrir hönd Ísland voru: shine kutter skipid dripz suf Landsliðið keppir í ESEC, en nánari…
Nú er að hefjast klukkan 19:00 leikur Íslenska landsliðsins í Counter-Strike: Global Offensive (CS: GO) gegn Ísrael og er þessi leikur mikilvægur þar sem tapliðið dettur úr keppni. Þeir sem keppa fyrir hönd Ísland eru: shine kutter skipid dripz suf Nánari upplýsingar á hltv.org hér. Mynd: Skjáskot af vef hltv.org.
Það verður nú að segjast að Japanir setja lansetur á ansi hærra plan en aðrir, sjón er sögu ríkari: Mynd: skjáskot úr myndbandi.
Hingað til hefur íslenska Defense of the Ancients (DotA2) samfélagið ekki verið virkt sem slíkt og nær einungis er spilað mikið af inhouse leikjum. Nú er hinsvegar allt annað upp á teningnum því að online mót er komið á fullt og eru þrettán lið skráð til leiks og eru 5 manns í hverju liði. Keppnisfyrirkomulagið er að liðin hafa eina viku til að klára eina umferð og eru sjö umferðir sem eiga að klárast 13. október næstkomandi og efstu fjögur liðin í hvorum riðli enda svo í útsláttarkeppni. Flott framtak hjá strákunum á IS-DOTA og að sjálfsögðu mun eSports.is fylgjast…
Enginn skíta komment takk, ef þú hefur ekkert gott að segja er best að þegja | ICEZ auglýsir eftir fleiri spilurum
Íslenska leikjasamfélagið Icelandz Elitez Gaming (ICEZ) auglýsir nú á spjallinu eftir enn fleiri spilurum en samfélagið var stofnað árið 2010 og hefur síðan frá því stækkað ört og er núna eitt stærsta og virkasta leikjasamfélag á íslandi með rúmlega 200 meðlimi. „Enginn skíta komment takk, ef þú hefur ekkert gott að segja er best að þegja“, segir Hjorleifsson stjórnandi ICEZ á spjallinu, en þeir sem hafa áhuga á nánari upplýsingum er bent á að smella hér. Mynd: frá spjallinu.
