Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Það er ekkert launungarmál að forums er í undanhaldi eftir að facebook varð viral og er spjallið hér á eSports.is engin undantekning þar á.  Lýsandi dæmi sem að facebook hefur drepið spjallsvæði, þá þarf ekki að horfa lengra en á Hugi.is sem var ein vinsælasta spjallsíða í mörg ár til sælla minningar. Þó svo að spjallið sé ennþá up and running á bakslóð og admin´s fylgjast með því, þá verður það ekki aðgengilegt frá forsíðunni. Mynd: samsett mynd af netinu.

Lesa meira

Awesome Games Done Quick 2014 hófst í gær og stendur fram til 11. janúar næstkomandi.  Hér er um að ræða árlegan viðburð um speedrunning tölvuleiki. Mælum með því að horfa á steaming frá þeim félögum með því að smella hér og jú það er líka hægt að fylgjast með umræðunni á irc rás þeirra #sdamarathon á QuakeNet fyrir þá sem vilja. Mynd: Skjáskot af streaming AGDQ 2014.

Lesa meira

Tölvuaukahlutaframleiðandinn Roccat kynnti á síðasta ári nýja tækni sem þeir kalla Power-Grid og er alveg frí.  Power-Grid er forrit sem er sótt í tölvuna, forritið talar síðan við smáforrit í Apple eða Android snjallsíma, að því er fram kemur á vefsíðu ormsson.is Power-Grid tekur snjallsímann þinn og breytir honum í fullkomna stjórnstöð fyrir tölvuna þína. Í Power-Grid skiptist í nokkra flokka  eins og „Incoming Center“ þar geturu fylgst með hlutum eins og Facebook, Twitter, Skype, TeamSpeak og RSS. Nánari upplýsingar er hægt að lesa með því að smella hér. Mynd: Skjáskot af myndbandi.

Lesa meira