Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Í gærkvöldi fóru fram tveir leikir hjá almost extreme í online mótinu ESEA Open í Evrópu þar sem þeir tóku á móti ambition og GIANTS GAMING. Nær flawless sigur hjá ax á liðinu ambition eða 16 – 3 fyrir ax. Því miður náðu ax menn ekki sigur á GIANTS GAMING sem endaði með 16-5, en báðir leikirnir voru spilaðir í mappinu de_train_se. Með einu tapi og þrjá sigra eru strákarnir í ax dottnir niður í 12. sæti. Næsti leikur er 10. júní næstkomandi á móti liðinu Unbreakable-gaming sem er í 38. sæti sem er raun lítið að marka þar sem…
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá þegar sonurinn kennir mömmu sinni hvernig á að spila tölvuleikinn League of Legends. Ef marka má nickið YourMom48, þá má reikna með að hún sé 48 ára, fyndið myndband, sjón er sögu ríkari sem endar með því að mamman sendir soninn í straff:
Á miðvikudaginn 5. júní hefst online mót hjá Íslenska StarCraft 2 samfélaginu og komast 32 spilarar í mótið og er fyrirkomulagið í skráningunni, fyrstur kemur fyrstur fær. Núna eru 18 spilarar skráðir í mótið og keppnisfyrirkomulag er bo3 eða sá sigrar sem er undan að vinna tvo leiki og undanúrslit og úrslit verða á fimmtudeginum 6. júní klukkan 20:00. „Eins og staðan er núna er Kaldi líklegastur, en það eru samt margir spilarar á Íslandi sem geta unnið hann en það er einsog oft áður að menn eru hálf hræddir að takast á við aðra Íslendinga og vilja helst vera…
Í byrjun maí hófst online mót hjá íslenska Counter Strike 1.6 samfélaginu og skráning var ágæt eða átta lið eru skráð. Keppnisfyrirkomulagið er að hafa tvo riðla og tvö lið upp úr hvorum riðli, best of 3, en það reynist eitthvað erfiðlega að halda mótinu gangandi því að liðin eru ansi ódugleg að spila sína leiki. „Ætla ekki að lýsa því yfir að það sé beil á mótinu en ég efast um að allir leikir verði spilaðir“, sagði einn af skipuleggjendum mótsins í samtali við eSports.is.
Í gær keppti íslenska Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) almost extreme (ax) í mótinu ESEA Open á móti franska liðinu WaRLegenD og enduðu leikar með sigri ax og eru þar með komnir í þriðja sætið á mótinu. Fjölmargir leikir eru eftir og næsti leikur er á fimmtudaginn 6. júní næstkomandi á móti GIANTS GAMING og keppt verður í mappinu train_se. GIANTS GAMING eru nú í 97. sæti af 109 liðum og er með tvo ósigra á bakinu og engan sigur. Vonandi verður leikurinn einn fyrir ax að valta yfir GIANTS GAMING.
Núna stendur yfir skráning í online mót hjá Íslenska StarCraft 2 samfélaginu, en mótið sjálft hefst miðvikudaginn 5. júní og undanúrslit og úrslit verða á fimmtudeginum á sama tíma. 32 spilarar komast í mótið og það er um að gera að skrá sig sem fyrst, en nánari upplýsingar er að finna á facebook grúppu Íslenska StarCraft 2 samfélagsins hér.
Hér er gamalt og gott frag-myndband eftir Counter Strike 1.6 spilarann fræga Shine, en myndbandið heitir Icelandic Sensation sem sýnir helstu tilþrif hjá íslenskum spilurum Felix, Delusion, conker, gtr, varg svo eitthvað sé nefnt, sjón er sögu ríkari: Mynd: Skjáskot af myndbandi
Þeir sem hafa spilað í einhvern tíma ættu að muna eftir gömlu kempunum í Counter Strike 1.6 liðinu almost extreme (ax), en nú hafa þeir snúið sér alfarið að leiknum Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) og keppa nú í online mótinu ESEA Open í Evrópu. Ax eru nú í 7. sæti af 109 liðum í mótinu, en þeir kepptu í gær sinn fyrsta leik við norska liðið Verna-Wolfes sem hangir í 77. sæti og endaði leikar með sigri ax. Ax lineup: Birgir „Biggz“ Þórðarsson Rafn „kUBID“ Jónsson Jóhann „shine“ Guðmundsson Gylfi „suf“ Helgason Trausti „kutter“ Tryggvasson Næsti…
Strákarnir á xripton.us eru með umsjón yfir Dayz Origins server (Ip adress: 157.157.157.144 ) sem hýstur er í Amsterdam, en serverinn er whitelist og þarf að sækja um, en engar áhyggjur admin´s eru aldrei langt frá og eru fljótir að hleypa spilurum inn. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á heimasíðu þeirra hér.
Íslensku World of Warcraft samtökin Mercenary var eitt sinn ansi stórt og öflugt en með tímanum hefur spilamennskan dregið saman og upp á síðkastið hefur verið ansi dautt í herbúðum þeirra. Nokkrir Mercenary meðlimir hafa hug á því að efla samtökin og stefna á heimsyfirráð og bjóða öllum þeim sem vilja að spila með þeim. „Takmark okkar er að verða social, questing, leveling og pve/pvp raid guild. við erum komnir með fáa þannig allir eru velkomnir á hvaða leveli sem er“, segir Stubbur99 á spjallinu, en hægt er að lesa nánari upplýsingar með því að smella hér. Mynd: Skjáskot af…
