Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Átta lið eru skráð í Counter Strike 1.6 online mótið sem ætti nú að teljast ansi gott miðað við allar þær raddir um að Íslenska Cs 1.6 samfélagið sé alveg dautt. Þau lið sem skráð eru: Eshock Dbsc KnV Helgast Tillar Magic GGWPBTEU Samskip Maplist: Inferno, Nuke, Train, Dust2, Tuscan og í fyrstu umferð verður mappið Nuke spilað. „Reynið að spila leikina sem fyrst svo þetta taki ekki forever“ segir einn af skipuleggjendum mótsins á facebook grúppunni #pcw.is og er mótið þar með byrjað.

Lesa meira

Nú fer að styttast í Eurovision-söngvakeppnina sem haldin er í Malmö í Svíþjóð en í kvöld fer fram fyrri undankeppni keppninnar og seinni á fimmtudaginn en þar mun framlag Íslands þetta árið „Ég á líf“ í flutningi Eyþórs Inga. Aðalkeppnin fer síðan fram laugardaginn 18. maí næstkomandi. Valgarður Uni hefur sett saman skemmtilegt myndband sem er þrívíddar animation af „Ég á líf“ í Minecraft útgáfu, en við það notaði hann forritin Blender 2.66 og Sony Vegas Pro 12. Sjón er sögu ríkari:

Lesa meira

Dýflissan, battlestation, stríðsvæðið mitt, 1337 pleisið og svona mætti lengi telja upp þau nöfn sem að tölvuleikjaspilarar nefna sína tölvuaðstöðu, en nýjasta æðið á facebook grúppu íslenska League of Legends samfélaginu er að birta myndir af sinni aðstöðu. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem birst hafa inn á facebook grúppu Íslenska LoL samfélagið: eSports.is hefur haldið nokkrar keppnir um bestu aðstöðuna sem hefur fengið fín viðbrögð hjá tölvuleikjaspilurum, spurning um að halda eitt slíkt mót á næstunni 🙂 Hver er besta aðstaðan í meðfylgjandi myndum að þínu mati?

Lesa meira

eSports barinn Meltdown sem hóf göngu sína í París í Frakklandi 3. maí 2012, hefur fengið gríðarlega góð viðbrögð og er nú þriðji Meltdown staðurinn í deiglunni í Bretlandi sem kemur til með að opna 1. júní næstkomandi og verður staðsettur við 342 Caledonian brautina í London.  Meltdown eSports staðirnir eru þá í þremur löndum, þ.e. í Frakklandi, Þýskalandi og nú í Bretlandi. Meltdown býður meðal annars upp á beina útsendingu, umfjöllun og lýsingu á völdum mótum sjö daga vikunnar, t.a.m. í tölvuleikjunum StarCraft2, League of Legends, DotA2 og Counter Strike. Heimild Meltdown á facebook: París Berlín London Ætli það…

Lesa meira

Alsjálfvirk bjórdæla og búnaður sem aðstoðar flutningabílstjóra við að bakka var á meðal þess sem verkfræðanemar Háskólans Íslands kynntu í gær, sem þeir hafa brasað við í námskeiðinu Tölvustýrður vélbúnaður. Ragnar, Sölvi, Valdimar og Starcraft 2 meistarinn Guðlaugur aka Gaulzi notuðu fjarstýrðan bíl til að útskýra hugmyndina eins og sjá má í fréttum Stöðvar 2 með því að smella hér. Og að sjálfsögðu var GEGT 1337 auglýst 🙂 Samsett mynd: Skjáskot af myndbandi.

Lesa meira

Hægt verður að spila leikinn Call of Duty: Black Ops II frítt nú um helgina.  Hægt er að niðurhala leiknum í gegnum Steam forritið. Meðfylgjandi myndband er án efa með þeim betri trailer-um sem hafa verið gefin út fyrir tölvuleik og eru um 40 milljón áhorf á myndbandið frá því það var fyrst birt í október 2012: Einnig er frítt að spila leikinn Sanctum nú um helgina.

Lesa meira

Enn heldur rifrildið áfram í Íslenska LoL samfélaginu, en flestir vita sem eru í LoL facebook grúppunni þá er endalaust spam af skjáskotum (screenshots) frá meðlimum grúppunnar sem fer greinilega fyrir brjóstið á sumum, Pro Tip: Það er öllum sama um statsana ykkar eftir leik ef win/loss hlutfallið ykkar er neikvætt. Case in point, svona síðustu 15 after game screenshots hérna inná , segir einn óánægður meðlimur. Annar meðlimur í Lol grúppunni er greinilega á öndverðu meiði og segir meðal annars: Allt þetta normals hate hérna, þannig að ef maður tekur beast ass leik sem maður er stoltur af, cappar…

Lesa meira

Reglulega poppa upp umræður hjá meðlimum á facebook grúppu Íslenska League of legends (LoL) samfélaginu um að meðalaldurinn er alltof lár og kvarta margir yfir barnalegri framkomu margra, en fjöldi meðlima í grúppunni er 2.454. er ekki kominn tími á að kicka litlu normal krökkunum? , segir einn af meðlimum grúppunnar á meðan aðrir spyrja sig hvort hægt yrði að fá grúppu með aldurstakmarki. Stofna nýja LoL grúppu eða hækka aldurstakmark er hugleiðing dagsins!!

Lesa meira