Close Menu
    Nýjar fréttir

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»B2B skrifaði sig í sögubækurnar á Apex Legends mótinu á Skjálfta
    B2B skrifaði sig í sögubækurnar á Apex Legends mótinu á Skjálfta - Skjálfti 2025
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    B2B skrifaði sig í sögubækurnar á Apex Legends mótinu á Skjálfta

    By Chef-Jack03.10.2025Updated:03.10.20252 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    B2B skrifaði sig í sögubækurnar á Apex Legends mótinu á Skjálfta - Skjálfti 2025
    Spilarar sökktu sér í leiki og keppni langt fram á kvöld á Skjálfta 2025.

    Á Skjálfta 2025 sýndu Apex Legends spilarar að það er hægt að sameina taktík og skothríð í einstaka stemmningu. Mótið fór fram í íþróttahúsi HK í Digranesi í Kópavogi, þar sem íslenska Apex-samfélagið hélt áfram í sínum hefðbundna dúr, með match-point + sigur kerfinu sem byggir á blöndu af taktískum aga og banvænu innsæi.

    Streymi frá leikjunum fór fram á twitch.tv/gametiviis þar sem áhorfendur gátu fylgst með hverri hreyfingu í raun­tíma. Keppt var bæði á staðnum og remote, en aðeins leikmenn með búsetu á Íslandi fengu að taka þátt. Í leikjunum var gefið stig fyrir bæði endanlegt sæti og kills, sem áhorfendur fylgdust spenntir með safnast upp.

    B2B skrifaði sig í sögubækurnar á Apex Legends mótinu á Skjálfta - Skjálfti 2025
    Sigurvegarar Apex Legends á Skjálfta 2025.
    F.v. Nikulás Nikulásson (BIGMAYNE), Josh Friðriksson (YEEMAYNE) og Steinþór Gunnar Ellertsson (Stescolado).

    Sigurvegarar mótsins urðu liðsmenn B2B, sem tryggðu sér fyrsta sætið með sannkölluðum yfirburðum. Í liðinu spiluðu:

    Josh Friðriksson / YEEMAYNE

    Nikulás Nikulásson / BIGMAYNE

    Steinþór Gunnar Ellertsson / Stescolado

    B2B náði að sameina liðsfestu og persónuleg „clutch moment“ sem breyttu mótinu í þeirra leikvöll.

    B2B skrifaði sig í sögubækurnar á Apex Legends mótinu á Skjálfta - Skjálfti 2025
    B2B fagnar sigri í Apex Legends á Skjálfta 2025 og fær verðlaunin afhent með skipuleggjanda og fulltrúa RÍSÍ við hlið sér.
    F.v. Melína Kolka skipuleggjandi, Nikulás Nikulásson (BIGMAYNE), Josh Friðriksson (YEEMAYNE), Steinþór Gunnar Ellertsson (Stescolado), Kristofer McCollough mótastjóri Apex Íslands og Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands.

    Auk titilsins í Apex Legends náði Nikulás Nikulásson einnig að landa verðlaununum fyrir Besta setupið, þar sem dómnefnd horfði ekki aðeins á turninn sjálfan heldur líka á heildarásýnd tölvubúnaðarins, lyklaborð, skjá og mús. Það má því segja að BIGMAYNE hafi bæði hreinsað til á vígvellinum og hlotið viðurkenningu fyrir stílfengið „vopnabúr“ utan hans.

    Myndir: Atli / Rafíþróttasamband Íslands

    Apex Legends B2B Jökull „Kaldi“ Jóhannsson Josh "YEEMAYNE" Friðriksson Melína Kolka Nikulás "BIGMAYNE" Nikulásson Rafíþróttasamband Íslands Skjálfti Steinþór "Stescolado" Gunnar Ellertsson
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
      Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár
      14.06.2026
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.