Discord stendur frammi fyrir gagnrýni vegna fyrirhugaðrar aldurstakmörkunar á efni sem er ætlað fullorðnum. Hún gæti krafist þess að notendur sanni aldur sinn með andlitsgreiningu eða með því að hlaða upp opinberum skilríkjum til að fá aðgang að slíku efni.
Aðgerðin er sögð svar við hertum lagaákvæðum, meðal annars í Bretlandi, en hefur vakið áhyggjur um persónuvernd og meðferð viðkvæmra gagna.
Við innleiðinguna var leitað til auðkenningarfyrirtækisins Persona. Athygli vakti að fjárfestingasjóðurinn Founders Fund, sem tengist fjárfestinum Peter Thiel, hefur fjármagnað Persona. Peter er jafnframt meðal stofnenda Palantir, sem um árabil hefur verið umdeilt vegna starfsemi sinnar á sviði gagnagreiningar. Þótt engar vísbendingar séu um beina aðkomu Palantir að verkefninu hafa tengslin ýtt undir tortryggni meðal notenda.
Discord brást við gagnrýninni og sagði samstarfið við Persona hafa verið takmarkaða tilraun, en ekki víðtæka og varanlega innleiðingu. Fyrirtækið lagði jafnframt áherslu á að aldursmat yrði í mörgum tilvikum sjálfvirkt og að einungis í undantekningartilvikum þyrfti að grípa til ítarlegrar auðkenningar. Það breytir þó ekki því að umræðan um jafnvægið milli öryggis og friðhelgi einkalífs er komin á fullt skrið.
We’ve seen some questions about our age assurance update and we want to share more clarity. We know how important these changes are to our community.
Here’s what we want you to know:
‣‣‣ 𝗗𝗶𝘀𝗰𝗼𝗿𝗱 𝗶𝘀 𝗻𝗼𝘁 𝗿𝗲𝗾𝘂𝗶𝗿𝗶𝗻𝗴 𝗲𝘃𝗲𝗿𝘆𝗼𝗻𝗲 𝘁𝗼 𝗰𝗼𝗺𝗽𝗹𝗲𝘁𝗲 𝗮… https://t.co/IdjRn06c5A— Discord (@discord) February 10, 2026




