Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ísland kemur í Euro Truck Simulator 2 í nóvember

    30.10.2026

    Rafíþróttaliðið Dusty til sölu

    26.10.2026

    Íslenska PUBG deildin á leið í úrslitahelgi

    23.10.2026

    Adolf Kristjánsson leiðir Starbreeze inn í nýjan kafla

    21.10.2026
    1 2 3 … 357 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»PC leikir»DUST 514 lendir 22. janúar – opin prufukeyrsla hefst
    PC leikir

    DUST 514 lendir 22. janúar – opin prufukeyrsla hefst

    By Chef-Jack18.01.20132 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    EVE online DUST 514

    Nú styttist í að íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP opni fyrir spilun á nýjustu afurð sinni, fjölspilunarleiknum DUST 514. Sem kunnugt er verður leikurinn aðeins fáanlegur á PlayStation 3 leikjatölvunni og það gjaldfrjálst, en þetta kemur fram á fréttavefnum visir.is.

    Svokölluð Beta-útgáfa af DUST 514 fer í loftið þann 22. janúar næstkomandi. Síðustu ár hefur CCP unnið að þróun tölvuleiksins en hann markar að mörgu leyti tímamót í leikjasögunni.

    Síðustu mánuði hefur leikurinn verið í lokaðri spilun, nú er komið að því að hefja opna prufukeyrslu.

    Á dögunum var DUST 514, sem er fyrstu persónu skotleikur, tengdur við fjölspilunarleik CCP, EVE Online, en leikirnir tveir eiga sér stað í hinum eina og sama söguheimi. Þannig munu eigendur PlayStation 3 leikjatölvunnar og spilarar á PC eða Mac tölvum nú geta haft samskipti í fyrsta sinn.

    „Opin prufukeyrsla DUST 514 markar annað skref í átt að langtímamarkmiðum okkar er varða DUST 514 og EVE Online,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP. „En þetta er aðeins byrjunin. Rétt eins og við höfum gert með EVE Online þá munum við á næstu vikum og árum halda áfram að bæta og víkka við reynslu spilara af DUST 514.“

    Í fyrra myndbandinu hér fyrir neðan má sjá brot úr DUST 514 og myndbandið þar fyrir neðan er stutt kynningarmyndband sem leikjavefsíðan vinsæla IGN tók saman um tölvuleikinn.

    Greint frá á visir.is.

    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Adolf Kristjánsson leiðir Starbreeze inn í nýjan kafla

    21.10.2026

    Ace Combat 8 slær sölumet í sögu leikjaseríunnar

    18.10.2026

    WARDOGS Season 2 komin út með nýjum vopnum, farartækjum og veðurbreytingum

    15.10.2026

    Nýr skotleikur selst í þrjár milljónir eintaka á aðeins 16 dögum

    10.10.2026
    Við mælum með

    Rafíþróttaliðið Dusty til sölu

    26.10.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    • Dusty - Logo
      Rafíþróttaliðið Dusty til sölu
      26.10.2026
    • Ísland kemur í Euro Truck Simulator 2 í nóvember
      Ísland kemur í Euro Truck Simulator 2 í nóvember
      30.10.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.