Close Menu
    Nýjar fréttir

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    1 2 3 … 354 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»FIA sameinar karting og rafíþróttir á heimsmeistaramótinu 2025
    FIA sameinar karting og rafíþróttir á heimsmeistaramótinu 2025
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    FIA sameinar karting og rafíþróttir á heimsmeistaramótinu 2025

    By Chef-Jack26.08.20252 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    FIA sameinar karting og rafíþróttir á heimsmeistaramótinu 2025

    FIA, Alþjóðlega akstursíþróttasambandið, hefur tilkynnt að heimsmeistaramót FIA í karting, betur þekkt sem gokart á Íslandi, árið 2025 verði í fyrsta sinn með rafíþróttaviðburð á dagskrá. Viðburðurinn verður haldinn í Kristianstad í Svíþjóð dagana 11. til 14. september 2025 og er skipulagður af sænska akstursíþróttasambandinu.

    Markmiðið er að sýna fram á hvernig keppni í hermibúnaði geti verið raunhæfur farvegur inn í akstursíþróttir, en keppt verður á iRacing kerfinu í sýndarútgáfum af FIA F4 kappakstursbílum. Þeir hafa þegar sannað sig í rafíþróttum, meðal annars í FIA F4 Global Esports Championship sem sneri aftur síðastliðið sumar.

    Keppnin er opin öllum sem hafa náð 14 ára aldri og eru handhafar alþjóðlegs akstursíþróttaleyfis. Með þessu móti er ætlunin að auka aðgengi, sem er lykilatriði í Global Karting Plan áætlun FIA.

    „Að sameina karting og rafíþróttir á heimsmeistaramótinu 2025 undirstrikar skuldbindingu FIA við að fjárfesta í grasrótinni og víkka út möguleika fólks til að tengjast akstursíþróttum,“

    sagði Vincent Caro, yfirmaður grasrótarstarfs á brautum hjá FIA.

    Hann benti á að þetta væri nýtt skref í rétta átt í að fjölga þátttakendum og skapa nýjar leiðir inn í íþróttina.

    Viðbót rafíþrótta við heimsmeistaramót FIA er hluti af stærri stefnu sambandsins. Í desember 2024 samþykkti FIA nýtt regluverk fyrir rafíþróttakeppnir sem gerir bæði alþjóðleg og innlend mót kleift að fara fram á skýrum lagalegum grunni.

    Jessica Bjurström, formaður Svenska Bilsportförbundet, segir að mikill spenningur ríki fyrir viðburðinum í Svíþjóð í haust.

    „Við erum ótrúlega ánægð að fá tækifæri til að hýsa rafíþróttakeppni samhliða heimsmeistaramótinu í karting í Kristianstad í september,“

    sagði hún.

    „Rafíþróttir eru ört stækkandi grein og þetta er frábært tækifæri fyrir fleiri að kynnast spennunni í akstursíþróttum, hvort sem það er á brautinni eða í gegnum skjáinn.“

    Þrátt fyrir að sim racing hafi misst nokkuð afl eftir uppsveiflu á tímum heimsfaraldursins er vonast til að áhuginn taki kipp á ný undir lok ársins. Þá snýr Le Mans Virtual Series aftur eftir tveggja ára hlé og verða undankeppnir fyrir þá röð haldnar á síðari hluta ársins 2025.

    Mynd: fia.com

    FIA - The Fédération Internationale de l'Automobile Sim racing
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.