Íslenska landsliðið „Litlir Menn“ keppti um síðustu helgi í ALGS Esports Nation Cup 2026 í Apex Legends og vakti athygli með frábærri frammistöðu í fyrstu umferð mótsins.
Liðið skipa Novak1r, Binniyaga og MrJon96, sem kepptu fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum vettvangi.

Í fyrstu umferðinni léku Íslendingarnir fjóra leiki og gerðu sér lítið fyrir og enduðu efstir í sínum riðli með 90 stig. Með því tryggðu þeir sér sæti í annarri umferð mótsins.

Þar beið þeirra öllu erfiðara verkefni og voru fjölmargir af sterkustu leikmönnum EMEA-svæðisins meðal keppenda. Þar á meðal voru atvinnumenn sem hafa mikla reynslu af stærstu Apex Legends-mótum heims.
Íslenska liðið náði í stig í tveimur af fyrstu fjórum leikjunum en síðari tveir leikirnir gengu ekki eins vel og vonast var til. Litlir Menn enduðu að lokum í 12. sæti riðilsins með 13 stig.
Efstu tíu liðin komust áfram í þriðju umferð og munaði aðeins sjö stigum að íslenska liðið næði áfram.
„Þrátt fyrir að þeirra þátttöku á mótinu hafi lokið þar náðu þeir góðum árangri og sérstaklega þegar horft er til þess að liðið var að keppa á móti mörgum af sterkustu atvinnuleikmönnum Evrópu og eru nýlega byrjaðir að æfa og spila saman sem lið,“
sagði Melína Kolka, mótastjórnandi Apex Island, í samtali við esports.is.
Hún segir þátttöku liðsins jafnframt mikilvægan áfanga fyrir íslenska Apex Legends-samfélagið.
„Liðið sýndi strax í fyrstu umferð að íslenskir leikmenn taka pláss og láta finna fyrir sér í rafíþróttum á alþjóðavettvangi,“
Mættu sterkum atvinnumönnum

Á meðal þeirra sem Litlir Menn mættu voru GG Zaine og GG Blasts hjá Gaimin Gladiators ásamt Yanzz.
GG Zaine er einn af sterkustu controller-leikmönnum EMEA-svæðisins og atvinnumaður hjá Gaimin Gladiators, en GG Blasts er einn reynslumesti Apex Legends-keppandi Evrópu og hefur meðal annars hafnað í öðru sæti á ALGS Playoffs.

Yanzz hefur einnig mikla reynslu af atvinnumennsku og hefur keppt í Pro League auk þess að taka reglulega þátt í Apex Legends-keppnum á hæsta stigi.
Stigatafla og gjöf voru tekin saman af Durgy.
Úrslit fyrri og seinni umferðar má sjá á meðfylgjandi myndum.
Myndir: aðsendar




