Brasilíska stórveldið FURIA hefur loks lyft sínum fyrsta IEM-bikar eftir sannkallaðan sigurhring á IEM Chengdu 2025 um síðustu helgi. Liðið vann Team Vitality í úrslitaleik 3–0 og varð þar með fyrsta brasilíska liðið til að sigra á IEM-móti.
Sjá einnig: Stórliðin staðfest fyrir IEM Chengdu 2025
FURIA hefur verið á hraðri siglingu í gegnum árið, eftir að hafa risið hratt upp á Valve Regional Standings (VRS).
Úrslitaleikurinn gegn Team Vitality átti að verða hörkuspennandi endasprettur tveggja af bestu liðum heims. En FURIA mætti af hörku og gaf andstæðingunum lítinn séns.
.@FalleNCS is clutching again❗#IEM pic.twitter.com/NQBgrec31Z
— ESL Counter-Strike (@ESLCS) November 9, 2025
Á fyrsta kortinu, Ancient, náði liðið yfirburðastjórn á kortinu þrátt fyrir að Vitality hafi náð að halda sér inni í leiknum fram á síðustu mínútur. FURIA kláraði kortið 13–11.
Á Inferno virtist Vitality ætla að svara fyrir sig, en þrátt fyrir CT-megin tókst FURIA að brjóta varnir þeirra niður á T-hliðinni og sigra 13–10. Þar með voru Brasilíumenn einungis einu korti frá bikarnum.
Þriðja og síðasta kortið, Overpass, hófst illa fyrir FURIA. Vitality tók frumkvæðið og leiddi 8–4 eftir fyrri hálfleik. En á síðustu metrunum sýndi FURIA hvers vegna liðið er komið á toppinn. Þeir jöfnuðu 9–9 og lokuðu svo leiknum með 13–11 sigri og þar með 3–0 í heildina.
IT’S ALLLL OVER!!! @FURIA HAVE WON #IEM CHENGDU 2025
🇧🇷🇧🇷🇧🇷🇱🇻🇰🇿 pic.twitter.com/ISTa0CBglt
— ESL Counter-Strike (@ESLCS) November 9, 2025
Eina tapið í Chengdu kom gegn MOUZ
FURIA tapaði aðeins einum leik á öllu mótinu, gegn MOUZ í úrslitum riðils B. Þeir unnu sig hins vegar upp úr efri riðlakeppninni og tryggðu sér fljótlega sæti í úrslitum með stöðugum og skipulögðum leik.
Í þriðja sæti endaði Team Falcons sem vann MOUZ 2–1 í leik um bronsið. Falcons unnu Ancient með yfirburðum, 13–5, MOUZ náði að svara á Inferno með 13–11, en Falcons kláruðu dæmið á Mirage 13–6.
YOUR #IEM CHENGDU 2025 CHAMPIONS LIFT THE TROPHY
🏆@FURIA🏆 pic.twitter.com/N3J2hXKunA
— ESL Counter-Strike (@ESLCS) November 9, 2025
Þar með tryggðu Falcons, MOUZ, Vitality og FURIA sér öll beint sæti í næsta áfanga Starladder Budapest Major 2025.

Sigur FURIA í Chengdu markar mögulega upphaf nýrrar valdatíðar fyrir brasilískt Counter-Strike. Liðið hefur stimplað sig inn sem alvöru úrvalslið í mótinu og mun reyna að verja toppsætið í VRS á komandi Budapest Major.
😳@SpinxCS2 #IEM pic.twitter.com/TTxMCiA0nd
— ESL Counter-Strike (@ESLCS) November 9, 2025
Ef þeir halda áfram á þessari braut gæti árið 2025 endað sem árið sem skrifaði nýjan kafla í sögu brasilísks Counter-Strike með FURIA í fremstu víglínu.
Myndir: ESL




