Hér reynir á samvinnu og heilasellur þegar Escape Simulator 2 fer í loftið í beinni útsendingu á Gametíví í kvöld klukkan 20. Leikurinn byggir á samstarfi þar sem þátttakendur þurfa að leysa fjölbreyttar þrautir, finna vísbendingar og vinna saman að því að sleppa úr flóknum herbergjum áður en tíminn rennur út.
Áhorfendur geta fylgst með beinni útsendingu á Twitch rás Gametíví, þar sem skemmtun og heilabrot fara saman. Escape Simulator 2 er nýr og metnaðarfullur leikur sem krefst bæði rökhugsunar og góðrar samskiptafærni. Spennandi kvöld framundan fyrir alla sem hafa gaman af þrautum og leikjum þar sem samvinna skiptir öllu máli.




