DeGen Rivals er nýr fríspilunarleikur fyrir PC og snjalltæki sem sameinar kart-kappakstur og Battle Royale í hraðskreiðri netringulreið fyrir allt að átta leikmenn. Leikurinn minnir á blöndu af Mario Kart 8 Deluxe og Fortnite, þar sem markmiðið er að vera síðasti bíllinn á hjólunum.
Sögusviðið er furðuheimur skapaður af klikkuðum vísindamanni sem blandar saman DNA úr ólíklegustu hráefnum, þar á meðal pizzu, uppvakningum og köttum. Úr verða svokallaðir DeGens sem takast á í hröðum viðureignum með sprengivopnum, power-up hlutum og sérútbúnum farartækjum sem nýta eðlisfræðina til að klessa andstæðinga úr leik.
Auk hefðbundins Battle Royale býður leikurinn upp á Demolition Party-leiki á borð við Cops n’ Robbers og Loot Smash. Þá geta leikmenn sérsniðið persónur sínar og farartæki með fjölbreyttum uppfærslum.
Hugmyndasmiðurinn er Josh Hassin, fyrrverandi yfirmaður hjá Sony Interactive Entertainment, sem sækir innblástur í klassík á borð við Twisted Metal.
DeGen Rivals kemur út í mars 2026 á Steam, App Store og Play Store. Demo útgáfa verður í boði á Steam í febrúar í tengslum við Steam Next Fest.
Myndir: aðsendar






