Esports.is býður nú öllum klönum og liðum að eignast sitt eigið heimili á vefnum. Um er að ræða sérstaka undirsíðu þar sem helstu upplýsingar um liðið verða aðgengilegar, allt frá leikmönnum og myndum til tengla á samfélagsmiðla og helstu afrekum.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir lið sem vilja styrkja ímynd sína, verða sýnilegri í samfélaginu og eiga sér formlegt vefsvæði innan stærsta miðils landsins um rafíþróttir.
Sem dæmi má nefna að Oldies Samsteypan hefur þegar fengið sér undirsíðu, sem má skoða hér: Oldies Samsteypan
Lið sem hafa áhuga geta sent inn umsókn á netfangið [email protected] Þar nægir að gefa upp nafn liðs, upplýsingar um leikmenn og myndir, ásamt stuttri lýsingu á sögu eða markmiðum liðsins, og er það þeim að kostnaðarlausu.
Með þessu vill esports.is efla tengslanet íslenskrar rafíþróttamenningar og skapa vettvang þar sem lið geta komið sér á framfæri á faglegan og snyrtilegan hátt.




