
Rafíþróttaliðið TurboStorm tryggði sér meistaratitilinn í 4. deild Áhugamannadeilda Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ) í Counter-Strike 2 eftir öruggan 2–0 sigur á Undrahundunum í úrslitaleik sem fram fór miðvikudaginn 11. nóvember.
TurboStorm hafði mikla yfirburði í úrslitaleiknum og vann fyrra kortið, Cache, 13–8 og það síðara, Nuke, 13–4. Þriðja kortið þurfti því ekki að spila.
Yfirburðir í deildarkeppninni
TurboStorm hafði einnig sýnt styrk sinn í deildarkeppninni í haust þar sem liðið vann sjö af átta leikjum sínum. Alls vann liðið 14 kort og tapaði aðeins þremur, en lotumunurinn var +56, sá langbesti í deildinni.
Undrahundarnir höfnuðu í öðru sæti deildarkeppninnar með fimm sigra og þrjú töp, en Leðurbökuljón með bjór og FlowwerPowwer fylgdu þar á eftir með þrjá sigra hvort lið.
Fjögur efstu liðin tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni sem hófst 4. nóvember, en úrslitaleikurinn fór fram viku síðar.
Frá fimmtu deild til meistaratitils
Árangur TurboStorm er sérstaklega eftirtektarverður í ljósi þess að liðið keppti í fimmtu deild síðastliðið vor. Á aðeins nokkrum mánuðum hefur liðið því farið upp um deild og tryggt sér meistaratitilinn í þeirri fjórðu.
Í leikmannahópi TurboStorm er meðal annars kraftajötunninn Hafþór Júlíus Björnsson, betur þekktur sem The Mountain, en hann keppir undir nafninu TheMountain.
Hafþór lék með liðinu í fimmtu deild í janúar og er nú hluti af hópnum sem fagnar meistaratitli í fjórðu deild.
TurboDrake átti stórleik
TurboDrake var atkvæðamestur í úrslitaleiknum gegn Undrahundunum.
Leikmannahóp TurboStorm skipa citrus, Durgurinn, H3NN, HitKillah, hopah, TheMountain, TurboDrake og ZeroXool.
TurboStorm er rafíþróttalið frá Reykjavík sem var stofnað á LAN-móti árið 2025. Samkvæmt fréttatilkynningu liðsins var markmiðið frá upphafi að byggja upp sterka liðsheild og hjálpa öllum leikmönnum að bæta sig, fremur en að safna eingöngu saman þeim bestu.
Nánari upplýsingar um úrslit og lokastöðu deildarinnar má finna á mótavef Rafíþróttasambands Íslands.
Mynd: turbostorm.is


