Close Menu
    Nýjar fréttir

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    1 2 3 … 350 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Tölvuleikir»330 þúsund svindlarar stöðvaðir í BF6: en þeir finna alltaf nýjar leiðir
    BF6 - Battlefield 6
    Tölvuleikir

    330 þúsund svindlarar stöðvaðir í BF6: en þeir finna alltaf nýjar leiðir

    By Chef-Jack12.08.20252 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    BF6 - Battlefield 6

    Þegar leikmenn stigu inn í opna prufu Battlefield 6 nú um helgina, 9. – 10. ágúst, stöðvaði nýtt öryggiskerfi EA, Javelin, í samspili við Secure Boot, yfir 330 þúsund tilraunir til svindls eða afskipta af öryggisstillingum. Þar á meðal voru tilraunir til að breyta leikjaskrám, keyra óleyfileg forrit eða framhjá öryggisprófum.

    BF6 - Battlefield 6

    Leikmenn greindu frá meira en 44 þúsund grunsamlegum atvikum fyrsta daginn, og þegar tveimur sólarhringum var lokið hafði talan rokið yfir 100 þúsund tilkynningar. Starfsmenn Battlefield Studio og teymi EA vinna nú að því að greina þessi mál og útiloka svindlara úr leiknum.

    The literal first day of open beta an we are already getting cheaters on this game promoting cheating discords. The guy is even bragging about kills while cheating it doesn’t get more pathetic than this. Proof in VOD#Battlefield6 #BattlefieldBeta @BattlefieldComm @Battlefield pic.twitter.com/JBiT4iJQ7N

    — ☆Supers☆ (@ISupersI) August 9, 2025

    Þrátt fyrir árangurinn hefur Javelin ekki náð að halda öllum svindlurum frá. Leikmenn hafa þegar greint frá wallhacks, aimbot og öðrum földum svindlforritum sem sleppa í gegnum netið. Þetta sýnir að jafnvel með Secure Boot öryggiskerfinu er baráttan við svindl í sífelldri þróun.

    Auk þess hafa komið upp vandamál þar sem Javelin rekst á önnur svindlvarnarkerfi, einkum Vanguard úr Valorant. Slík kerfi hafa valdið villuboðum um öryggisbrest og sumir leikmenn neyðst til að fjarlægja Valorant til að geta spilað Battlefield 6. Þetta hefur vakið umræðu um hversu íþyngjandi slíkar lausnir geta verið, sérstaklega þegar tvö öryggiskerfi reyna að starfa samtímis á sama tölvukerfi.

    Cheating is incredibly difficult to manage. But if you make a multiplayer/competitive FPS game you have to take it as an absolute top priority. This is what Valorant does (requires secure boot as well), etc.

    Glad to see DICE doing it as well. Nothing is bulletproof but love the… https://t.co/vrbcxkwGfM

    — Mike Ybarra 😇 (@Qwik) August 9, 2025

    Battlefield 6 stendur frammi fyrir endalausri baráttu við svindlara.  Annars vegar er markmiðið að tryggja sanngjarna og örugga leikjaupplifun, hins vegar krafan um að leikurinn gangi hnökralaust fyrir alla, án þess að skerða notendafrelsi. Hvort Javelin verði lykillinn að því jafnvægi eða aðeins fyrsta skrefið í lengra stríði mun tíminn einn leiða í ljós.

    Mynd: facebook / Battlefield

    battlefield Battlefield 6 PC leikur
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Íslenska Gran Turismo Samfélagið fagnaði tímabilinu á lokahófi í Hafnarfirði

    09.05.2026

    Kaupa CCP fyrir nærri 15 milljarða

    04.05.2026

    Microsoft slær á Xbox orðróm

    22.04.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar
      Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar
      25.05.2026
    • Verðlaunahátíðin Rafíþróttamaður ársins
      Finnsi rafíþróttamaður ársins
      27.05.2026
    • Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans
      Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans
      29.05.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.