Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Reynslumikill framleiðandi úr herbúðum World of Warcraft hefur gengið til liðs við Riot Games og mun koma að þróun nýs MMO-leiks Riot Games, sem lítið hefur verið opinberað um. Um er að ræða Raymond Bartos, sem hefur gegnt hlutverki framleiðanda hjá World of Warcraft teyminu og tilkynnti um nýtt starf sitt í færslu á x.com. Í færslu sinni lýsir Bartos mikilli ánægju með fyrstu kynni sín af Riot Games og segir gildi fyrirtækisins hafa skinið skýrt í gegn strax í viðtalsferlinu. Hann nefnir sérstaklega virðingu, umhyggju og mannleg samskipti sem lykilþætti í menningu Riot og segist hlakka til að leggja…
Amazon Games hefur tilkynnt að rekstri New World Aeternum verði hætt og þar með lýkur stormasömu kaflaskilum í sögu þessa opna netleikjar. Í tilkynningu sem birt var á opinberri vefsíðu útgefandans kemur fram að þrátt fyrir stöðugar viðbætur, endurbætur og endurútgáfu á leikjatölvur hafi orðið sífellt erfiðara að halda úti reglulegu nýju efni með sjálfbærum hætti. Rekstri New World Aeternum lýkur „Eftir vandlega yfirferð á rekstri leiksins og framtíðarhorfum hans höfum við komist að þeirri niðurstöðu að áframhaldandi þróun sé ekki lengur fjárhagslega raunhæf,“ segir í tilkynningu Amazon Games. Þar er jafnframt tekið fram að leikmenn sem hafa keypt leikinn…
Nýr yfirþjálfari Arena ráðinn til starfa – „Stuðningur foreldra skiptir öllu máli,“ segir Patrekur
Arena Gaming hefur, í samstarfi við rafíþróttadeildir Breiðablik, HK, FH og Fylkir, ráðið Patrek Gunnlaugsson í starf yfirþjálfara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, sem er til húsa í Turninum á Smáratorgi 3. Patrekur hefur þegar hafið störf nú í upphafi nýs árs. Patrekur er ættaður frá Húsavík og býr yfir langri og fjölbreyttri reynslu í rafíþróttum. Hann hefur spilað tölvuleiki frá barnsaldri og var um árabil meðal fremstu spilara landsins í Counter-Strike, þar sem hann keppti undir nickinu Pat. Samhliða keppnisferlinum hefur hann byggt upp öflugan feril sem þjálfari og leiðtogi, meðal annars í starfi með börnum og…
Stemningin í kringum Arc Raiders hefur tekið snarpa beygju eftir áramót. Leikurinn var fram að þessu nánast óumdeilt uppáhald meðal nördanna, að undanskilinni umdeildri notkun á gervigreindarröddum, hefur umræðan nú færst yfir í sívaxandi vandamál tengd svindli. Þróunarteymið hjá Embark Studios virðist þó vera komið með nóg og hefur gripið til mun harðari aðgerða en áður. Shroud missti þolinmæðina „whats the point of f*ckin playing?“ shroud on the state of cheaters in ARC Raiders… pic.twitter.com/8uzpMiTLkB — Shroud Updates (@ShroudUpdate) January 6, 2026 Umræðan hitnaði verulega í kringum 6. janúar þegar streymarinn Shroud missti þolinmæðina í beinni útsendingu og spurði, með…
Í fyrstu útsendingu Ljósleiðaradeildarinnar á nýju ári veitti Rafíþróttasamband Íslands Einari Þórarinssyni, framkvæmdastjóra Ljósleiðarans, Gullmerki RÍSÍ fyrir umfangsmikið og óeigingjarnt framlag til uppbyggingar rafíþrótta á Íslandi. Viðurkenningin var afhent í beinni útsendingu í Ljósleiðaradeildinni og markar mikilvægan áfanga í samstarfi fjarskipta og rafíþróttahreyfingarinnar. Í rökstuðningi Rafíþróttasambands Íslands kemur fram að Einar hafi með skýra framtíðarsýn og stöðuga elju verið drifkraftur að baki því öfluga og langvarandi samstarfi sem byggst hefur upp milli Ljósleiðarans og íslensks rafíþróttasamfélags. Framlag hans hafi haft veruleg áhrif á fagmennsku, stöðugleika og vöxt greinarinnar, ekki síst með því að skapa traustan vettvang fyrir keppni, fyrirmyndir og…
Sterkasti maður Íslands hefur bætt nýrri áskorun við feril sinn. Hafþór Júlíus Björnsson, sem margir þekkja einnig sem „The Mountain“ úr Game of Thrones, keppir nú í fimmtu deild Rafíþróttasambands Íslands í Counter-Strike 2. Hafþór leikur með liðinu TurboStorm og spilar undir nickinu „The Mountain“. Með honum í liðinu eru Citru$, hopah, HitKillah og TurboDrake. TurboStorm er ekki nýtt metnaðarfullt lið í keppninni, því liðið tók einnig þátt í mótinu á síðasta tímabili og mætir því reynslumeira til leiks að þessu sinni. Upphaf tímabilsins lofar engu að síður góðu, þar sem TurboStorm hefur unnið báðar fyrstu viðureignir sínar og er…
Fyrsta mót GameTíví deildarinnar 2026 í PUBG: Battlegrounds fer fram sunnudaginn 18. janúar og hefst klukkan 20:00. Keppt verður í FPP og kvöldið keyrt samkvæmt hefðbundnu keppnisfyrirkomulagi sem ætti að vera kunnugt þeim sem fylgst hafa með deildinni undanfarin ár. Mótið markar upphaf deildarkeppni tímabilsins sem samanstendur af alls fimm mótum. Lið safna stigum yfir tímabilið en hvert mótskvöld telst engu að síður sem sjálfstæð keppni. Þátttaka er því sveigjanleg og engin krafa gerð um að lið taki þátt í öllum mótum deildarinnar. Deildarkeppnin fer fram 18. janúar, 8. febrúar, 1. mars, 22. mars og 12. apríl. Að lokinni deildarkeppni…
Þann 12. janúar fóru dularfull auglýsingaspjöld með áletruninni „We belong together“ að birtast í New York, Berlín, Manchester og víðar. Aðdáendur Harry Styles töldu þar vera á ferðinni fyrstu vísbendingu um nýja tónlist frá söngvaranum, sem hefur verið í hléi frá útgáfu í tæp fjögur ár. Myndefnið var sótt í síðustu heimsferð hans árið 2023 og kveikti strax miklar vangaveltur meðal aðdáenda. Harry Styles’ WE BELONG TOGETHER poster in NYC has already been covered by League Of Legends ads. pic.twitter.com/YgUVFZ35Gi — 🏁 (@concertleaks) January 12, 2026 Sama dag tóku að birtast veggspjöld tengd League of Legends sem í sumum tilfellum…
MonkaS er eitt þekktasta tilfinningatákn rafíþrótta- og streymismenningarinnar og hefur lengi verið fastur liður í spjalli á Twitch. Táknmyndin er gjarnan notuð þegar eitthvað spennandi, óþægilegt eða beinlínis stressandi er í þann mund að gerast, hvort sem um ræðir afgerandi augnablik í keppni eða vandræðalega stöðu í streymi. Uppruni MonkaS má rekja til Pepe the Frog, teiknimyndakarakters sem hefur verið grunnur að fjölmörgum netmímum í gegnum árin. Í þessu tilviki er Pepe sýndur sveittur og augljóslega kvíðinn, sem skýrir vel hvers vegna táknið festi sig í sessi sem sjónræn framsetning á spennu og taugaáfalli. Nafnið MonkaS er komið úr eldri…
UTmessan, þar sem allt tengist, fer fram dagana 6. og 7. febrúar 2026 í Harpa og lofar að verða ein stærsta og líflegasta tæknisamkoma ársins á Íslandi. Þar mætast áhugafólk, fagfólk og forvitnir gestir til að kynna sér það nýjasta sem er að gerast í tölvu og tækniheiminum og fá innsýn í framtíð greinarinnar. Dagskrá 2. til 5. febrúar Viðburðurinn spannar heila viku og hefst á svokallaðri UTmessuviku dagana 2. til 5. febrúar þegar tæknifyrirtæki víðs vegar um borgina bjóða upp á fróðlega viðburði, kynningar og opið hús. Dagskráin er fjölbreytt og miðar að ólíkum aldurshópum. Aðgangur er almennt ókeypis…
