Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Íslandsmeistaramótinu í PUBG: Battlegrounds lauk um helgina eftir harða og spennandi keppni þar sem bestu lið landsins börðust um titilinn. Mótið markaði lokahnykk deildarkeppni GameTíví sem fór fram í vetur, en 16 efstu lið deildarinnar tryggðu sér sæti á Íslandsmeistaramótinu. Úrslitin í mótinu réðust um helgina eftir keppni sem staðið hafði yfir tvær síðastliðnar helgar. Alls voru spilaðir sex leikir nú um helgina í FPP-formati og var keppt á kortunum Miramar, sem var spilað tvisvar, Taego, Rondo og Erangel sem einnig var spilað tvisvar. Omni tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn Mikil spenna ríkti allt fram á lokamínútur mótsins þar sem liðin börðust…

Lesa meira

Íslenska Gran Turismo Samfélagið hélt lokahóf sitt í gær, 8. maí, í húsakynnum Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði þar sem meðlimir samfélagsins komu saman og fögnuðu tímabilinu með góðri kvöldstund. eSports.is hefur áður fjallað um samheldið samfélag íslenskra Gran Turismo áhugamanna sem hefur byggt upp öflugan kjarna í kringum akstursherma og keppnir hér á landi. Húsið opnaði klukkan 19:00 og stóð dagskráin fram eftir kvöldi, en lokað var klukkan 01:00. Boðið var upp á veislu að hætti GTSI þar sem 150 gramma steikarborgarar og drykkir voru í boði fyrir gesti. Allur ágóði af sölunni rann beint til samfélagsins og starfsemi þess. Miðaverð…

Lesa meira

Stjórnendateymi CCP Games hefur náð samkomulagi um kaup á félaginu af suðurkóreska leikjaframleiðandanum Pearl Abyss fyrir um 120 milljónir dala, jafnvirði nærri 15 milljarða króna. Frá þessu greinir Viðskiptablaðið og vísar meðal annars í kóreska miðilinn Inven Global. Gert er ráð fyrir að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri og einn stofnenda CCP, leiði kaupin. Með þeim færist eignarhaldið aftur til stjórnenda félagsins eftir að Pearl Abyss keypti CCP árið 2018 í einni stærstu fyrirtækjasölu íslensks viðskiptalífs. Samkvæmt umfjöllun Inven Global telja forsvarsmenn beggja félaga að þessi leið styrki samkeppnisstöðu þeirra til lengri tíma. Talsmaður Pearl Abyss segir að hagkvæmast hafi verið…

Lesa meira

Formúlu 4 deildin í hermikappakstri fer af stað á ný hér á landi þann 21. maí, þegar keppt verður í herminum iRacing. Um er að ræða annað skiptið sem deildin er haldin á Íslandi og ljóst að áhugi á hermikappakstri heldur áfram að vaxa. Mótið er skipulagt af Aðalbón Racing liðinu og verður streymt á YouTube rás GT Akademíunnar, þar sem keppninni verður lýst á íslensku. Keppendur taka þátt víðs vegar að, flestir úr heimahermum en einnig gefst kostur á að mæta í keppnissal GT Akademíunnar. Keppt verður bæði í einstaklings- og liðakeppni og eru alls sex umferðir á dagskrá.…

Lesa meira

Kia Íslandsmeistaramót Ungmenna í rafíþróttum fór fram um helgina í Next Level Gaming í Egilshöll. Fjöldi ungmenna frá níu félögum tókust á í Fortnite og Minecraft í spennandi keppni þar sem keppendur sýndu frábæra takta þrátt fyrir ungan aldur, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Rafíþróttasambandi Íslands. Mótinu lauk með verðlaunaafhendingu þar sem sigurvegarar tóku við bikar og allir keppendur hlutu medalíur. Fortnite Einstaklingskeppni (Solo) Í flokki eldri keppenda sýndi Brimir Leó Bjarnason (FH) mikla yfirburði, en hann lauk keppni með samtals 230 stig. Félagi hans úr Hafnarfirðinum, Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson (FH) tók annað sætið með 164 stig.…

Lesa meira

Suður-kóreska rafíþróttafélagið T1 hefur ráðist í talsverðar breytingar á Valorant-liði sínu eftir misjafnt gengi á tímabilinu. Markmiðið er að snúa vörn í sókn og styrkja hópinn fyrir næstu mót. Samkvæmt vlr.gg hafa nokkrir leikmenn verið leystir frá samningum eða færðir til innan félagsins, á meðan nýir leikmenn koma inn í liðið. Þessar breytingar eru hluti af endurskipulagningu sem á að bæta samspil og stöðugleika, en liðinu hefur gengið brösuglega að ná fótfestu gegn sterkustu liðum heims í Valorant. T1 hefur lengi verið eitt þekktasta nafn í rafíþróttum, en Valorant-verkefnið hefur ekki skilað sömu árangri og önnur lið félagsins. Með þessum…

Lesa meira

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) og Next Level Gaming ehf. hafa skrifað undir samstarfssamning um aukið og markvisst samstarf um framkvæmd rafíþróttaviðburða á Íslandi. Samstarfið nær meðal annars til ungmennamóta, úrslitaviðburða og annarra stærri viðburða á vegum sambandsins sem haldnir verða í aðstöðu Next Level Gaming í Egilshöll. Um helgina fór KIA Íslandsmót ungmenna í rafíþróttum fram í húsakynnum Next Level Gaming við góðar undirtektir. Viðburðurinn heppnaðist vel og undirstrikar mikilvægi þess að hafa góða og aðgengilega aðstöðu fyrir skipulagt mótahald í rafíþróttum. Jökull Jóhannsson framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands segir samstarfið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu rafíþróttastarfs á Íslandi. „Við erum mjög ánægð…

Lesa meira

Í gær fór fram íslenskt æfingamót í PUBG: Battlegrounds, þar sem leikið var í Squads, FPP. Alls skráðu 16 lið sig til leiks en tvö þeirra duttu út á síðustu metrunum, þannig að 14 lið mættu til leiks og kláruðu mótið. Mótið var svokallað scrim, æfingamót þar sem liðin stilla saman strengi fyrir komandi Íslandsmeistaramót sem fram fer dagana 3. og 10. maí. Það var því bæði spenna og ákveðin tilraunastarfsemi í gangi hjá liðunum, þar sem sum þeirra prófuðu nýjar uppstillingar og leikstíl. OMNI stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins með 80 stig, skammt á undan PNGR sem endaði með…

Lesa meira

Fyrsti ársfjórðungur 2026 er að baki og ný gögn varpa ljósi á hvaða rafíþróttalið hafa verið mest áberandi það sem af er ári. Samkvæmt tölum frá Esports Charts er það indónesíska liðið Alter Ego sem situr í efsta sæti, bæði þegar horft er til heildaráhorfs og meðalfjölda áhorfenda. Á eftir Alter Ego koma lið á borð við Aurora Gaming PH og Selangor Red Giants, sem hafa einnig náð mjög sterkum tölum. Þá er Team Liquid PH áberandi á listanum, sem undirstrikar hversu stór og áhrifamikill suðaustur-asíski markaðurinn er orðinn í rafíþróttum. Þegar horft er til heildaráhorfs yfir tímabilið má einnig…

Lesa meira

Orðrómur um næstu Xbox-leikjatölvu hefur verið á miklu flugi undanfarið. Vélin gengur undir vinnuheitinu Project Helix, en lítið hefur verið staðfest opinberlega hingað til. Nýlega fór af stað umræða um að Microsoft hygðist mögulega ekki framleiða tölvuna sjálft, heldur selja tæknina til annarra framleiðenda. Þeir gætu þá búið til sín eigin tæki, svipað og þegar tölvur koma frá mismunandi framleiðendum. Það varð til þess að Jason Ronald hjá Xbox steig fram og skýrði málið. Hann sagði skýrt að Project Helix verði hefðbundin Xbox-leikjatölva frá Microsoft sjálfu. Þar með var sá orðrómur sleginn út af borðinu. Hins vegar svaraði hann ekki…

Lesa meira