Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Ríkisstjórn Sádi Arabíu hefur samþykkt að breyta nafni Esports World Cup Foundation, samtakanna sem standa að baki Esports World Cup og Esports Nations Cup. Eftir breytinguna mun stofnunin bera heitið Esports Foundation. Á fundi ríkisstjórnar Sádi Arabíu fyrr í vikunni var samþykkt að gera formlega breytingu á skipulagsskrá stofnunarinnar. Þar með var nafni hennar breytt úr Esports World Cup Foundation í Esports Foundation. Breytingin fór fram án mikillar umræðu og var aðeins einn liður í annasömum fundi þar sem fjöldi samkomulaga og verkefna, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, hlaut samþykki. Ekki liggur fyrir hvenær nýja heitið verður tekið formlega í…

Lesa meira

Ævintýraleikurinn Echoes of the End frá íslenska leikjastúdíóinu Myrkur Games er nú aðgengilegur í PlayStation Plus fyrir Extra og Premium áskrifendur. Ásamt því hefur leikurinn fengið nýja uppfærslu, samhliða nýrri stiklu. Leikurinn hefur notið vinsælda á PlayStation, en er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur tölvuleikur verður hluti af þessari áskriftarþjónustu. Þar geta áskrifendur þjónustunnar fengið aðgang að safni leikja gegn mánaðarlegu gjaldi, svipað og hjá streymisveitum sjónvarpsefnis, á borð við Netflix og Disney+. „Það að Echoes of the End sé kominn á PlayStation Plus er risastór áfangi fyrir okkur. Þetta gefur leiknum mikinn meðbyr, þar sem hann verður nú…

Lesa meira

FaZe Clan eru heimsmeistarar í Rainbow Six Siege annað árið í röð eftir sigur á Team Secret í úrslitaleik Rainbow Six Invitational 2026 sem fram fór á sunnudag síðastliðinn.  Með sigrinum verja þeir titilinn og festa sig enn frekar í sessi sem eitt sterkasta lið í sögu leiksins. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Rainbow Six Siege sem lið tekst að verja Invitational titilinn. FaZe skrifa þar með nýjan kafla í sögubækurnar og hefja tímabilið 2026 á toppi heimslistans. HISTORY HAS BEEN FORGED🔨@FaZeEsports CLAIM THEIR SECOND HAMMER pic.twitter.com/yY5qgFNWIL — Rainbow Six Esports (@R6esports) February 15, 2026 Úrslitaleikurinn bar þess…

Lesa meira

DUO mót fer fram í PUBG: Battlegrounds föstudaginn 20. febrúar klukkan 20:00. Leikið verður í FPP samkvæmt esports reglum. Skráningargjald er 1.000 krónur á lið og rennur það óskipt beint í vinningspottinn. Fyrsta sæti fær 50 prósent, annað sæti 30 prósent og þriðja sæti 20 prósent af heildarupphæðinni. Mótið er opið bæði reyndum liðum og nýjum spilurum sem vilja reyna sig í skipulögðu keppnisumhverfi. Skráning fer fram hér og nánari upplýsingar má finna í Facebook hópnum Íslenska PUBG samfélagið.

Lesa meira

DeGen Rivals er nýr fríspilunarleikur fyrir PC og snjalltæki sem sameinar kart-kappakstur og Battle Royale í hraðskreiðri netringulreið fyrir allt að átta leikmenn. Leikurinn minnir á blöndu af Mario Kart 8 Deluxe og Fortnite, þar sem markmiðið er að vera síðasti bíllinn á hjólunum. Sögusviðið er furðuheimur skapaður af klikkuðum vísindamanni sem blandar saman DNA úr ólíklegustu hráefnum, þar á meðal pizzu, uppvakningum og köttum. Úr verða svokallaðir DeGens sem takast á í hröðum viðureignum með sprengivopnum, power-up hlutum og sérútbúnum farartækjum sem nýta eðlisfræðina til að klessa andstæðinga úr leik. Auk hefðbundins Battle Royale býður leikurinn upp á Demolition…

Lesa meira

Heroes of Newerth er í dag vart sjáanlegur á ratsjá rafíþrótta. Opinberir netþjónar lokuðu árið 2022 og flestir færðu sig yfir í aðra MOBA-leiki. En fyrir rúmum áratug var stemningin allt önnur. Árið 2013 fjölluðum við á esports.is um Malaysian National Championship í HoN þar sem Orange eSports tryggði sér sigur og tók heim 100.000 dollara í verðlaunafé. HoN er ekki lengur í fremstu röð rafíþrótta, en hann átti sitt gullna tímabil. Sjá einnig: 13 milljónir fyrir 1. sætið, ekki slæmt það Mynd: heroesofnewerth.com

Lesa meira

Discord stendur frammi fyrir gagnrýni vegna fyrirhugaðrar aldurstakmörkunar á efni sem er ætlað fullorðnum. Hún gæti krafist þess að notendur sanni aldur sinn með andlitsgreiningu eða með því að hlaða upp opinberum skilríkjum til að fá aðgang að slíku efni. Aðgerðin er sögð svar við hertum lagaákvæðum, meðal annars í Bretlandi, en hefur vakið áhyggjur um persónuvernd og meðferð viðkvæmra gagna. Við innleiðinguna var leitað til auðkenningarfyrirtækisins Persona. Athygli vakti að fjárfestingasjóðurinn Founders Fund, sem tengist fjárfestinum Peter Thiel, hefur fjármagnað Persona. Peter er jafnframt meðal stofnenda Palantir, sem um árabil hefur verið umdeilt vegna starfsemi sinnar á sviði gagnagreiningar.…

Lesa meira

Nýr tölvuleikur byggður á John Wick hefur verið tilkynntur. Á State of Play kynningu Sony tilkynntu Lionsgate og Saber Interactive nýjan AAA einspilunar hasarleik fyrir PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC. Leikurinn ber vinnuheitið Untitled John Wick Game og setur leikmenn í hlutverk aðalpersónunnar. Keanu Reeves snýr aftur í hlutverki sínu og leggur til bæði útlit og rödd persónunnar. Þá kemur leikstjórinn Chad Stahelski einnig að framleiðslu verkefnisins. Í tilkynningu frá Saber segir: „John Wick is one of the most iconic characters in action film history. Saber is honored to be working alongside Chad, Keanu and the Lionsgate team…

Lesa meira

Það stefnir í skemmtilegan og harðan slag í Úrvalsdeildinni í bridds. Nýtt mót hefst í kvöld í beinni útsendingu hjá Símanum. Verður hægt að fylgjast með valinni viðureign í viku hverri á föstudagskvöldum klukkan 19 sem og á youtube og Twitch. Sterkustu sveitir landsins taka þátt og eftir slembival verða eftirfarandi viðureignir í fyrstu umferð: Málning keppir við Betri ferðir. Sveit Gabríels Gíslasonar spilar við Selfoss. Grant Thornton leikur við Fæeyjar. Team Akureyri spilar gegn Vestanstormi. SFG spilar við Infocapital. Tíminn og vatnið leika gegn Snorra Karlssyni. Doktorinn leikur við Fiskmarkað Djúpavogs Kvennalandsliðið spilar við sveit Gunnlaugs Sævarssonar. Magnús Magnússon…

Lesa meira

Það er ýmislegt að gerast í herbúðum Mistfall Hunter og ljóst að teymið ætlar sér ekki að gefa út hálfsoðna útgáfu, en staðfest er að bæði prófanir og útgáfa frestist. Á móti kemur að leikurinn mun koma út samtímis á PS5, Xbox og PC í júlí 2026. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að nýjum klassa, Withered Knight, ásamt ýmsum kerfisbreytingum og lagfæringum byggðum á ábendingum úr fyrri prófunum. Stærsta breytingin snýr að bardagakerfinu, sem verður endurhannað til að gera spilunina frjálslegri og liprari. Samkvæmt þróunarteyminu hefur sú vinna reynst flóknari en búist var við, sérstaklega með tilliti til jafnvægis milli…

Lesa meira