Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Rafíþróttarisinn PGL hefur opinberað að næsta stórmót þeirra, PGL Astana 2026, verður með verðlaunapott upp á 1,6 milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar um það bil 224 milljónum íslenskra króna. Þetta er stærsti verðlaunapottur í sögu Counter-Strike 2 (CS2) frá því að leikurinn tók við af CS:GO. Mótið og fyrirkomulag PGL Astana 2026 fer fram dagana 7.–18. maí 2026 í Barys Arena í höfuðborg Kasakstan, Astana. Um er að ræða fyrsta stórmótið í CS2 sem haldið er í landinu, og marka þessi áform mikilvægt skref í alþjóðavæðingu CS2-senunnar. Keppnin verður skipulögð með eftirfarandi hætti: Opið undankeppniskerfi verður haldið 14.–17. febrúar 2026. Tvæt…
Umdeild bannalda í skotleiknum Marvel Rivals hefur vakið hörð viðbrögð úr leikjasamfélaginu eftir að fjölmargir leikmenn voru tímabundið útilokaðir frá leiknum, að því er virðist fyrir gagnrýni og pólitíska skírskotun fremur en óæskilega hegðun í leik. Uppþotið hófst þegar vinsæll streamer, sem gengur undir nafninu Panda, var bannaður í fjóra daga eftir að hafa birt myndband þar sem hann notar setninguna „Taiwan number one“. Þessi setning hefur lengi verið notuð í háðsglensi gagnvart kínverskum netnotendum og tengist kröfum um sjálfstæði Taívans, sem kínversk stjórnvöld líta á sem árásargjarna áróður. Í frétt á VideoGamer kemur fram að í kjölfarið stigu aðrir…
CageConnor hefur hafið nýja þáttaröð á YouTube þar sem hann leiðir áhorfendur inn í gjörbreyttan heim Subnautica. Með viðbótum sem breyta öllum forsendum leiksins hefur Subnautica fengið nýtt líf, framandi, drungalegt og ómótstæðilegt í senn. Í fyrsta þætti hrapar aðalpersónan niður á ókunnuga hafheima fjarlægrar plánetu. En eitthvað er öðruvísi. Heimurinn sem áður var vel þekktur virðist hafa verið endurforritaður. „The world’s been rewritten… and it’s watching,“ segir CageConnor á áhrifaríkan hátt við upphaf þáttarins og undirstrikar þar með þá ógn og spennu sem svífur yfir vötnum í þessari útgáfu leiksins. Viðbæturnar sem nýta má í gegnum mod eru fjölbreyttar:…
NCFC eSports hélt glæsilegt sumarafmælismót í PUBG: Battlegrounds í gærkvöldi, þar sem vinir og félagar komu saman til að heiðra afmælisdrenginn Alex „Exik0n“. Mótið fór fram sunnudagskvöldið 20. júlí og hófst stundvíslega klukkan 20:00. Þátttakan var góð, enda var mótið opið öllum og aðgangur ókeypis. Ellefu lið skráðu sig til leiks og var andrúmsloftið létt, en keppnin engu að síður hörð og spennandi allt til loka. Enginn komst með tærnar þar sem Omni hafði hælana Það var lið Omni sem stóð uppi sem sigurvegari að loknum átökum kvöldsin. Í öðru sæti hafnaði NLG BLUE og í þriðja sæti endaði lið…
Arc Games hefur staðfest að hinn langþráði tölvuleikur Frosthaven, byggður á samnefndu og margverðlaunuðu borðspili frá Cephalofair Games, komi út í prufuútgáfu á PC (Steam og Epic Games Store) þann 31. júlí. Leikurinn verður fáanlegur á 38,99 evrur og verður jafnframt hægt að kaupa sérstakan pakka með bæði Frosthaven og Gloomhaven Digital. Frá borðspili yfir í tölvuleikjaupplifun Frosthaven er RPG leikur og er þróaður af búlgarska leikjaframleiðandanum Snapshot Games undir stjórn Julian Gollop, höfunda upprunalegu X-COM-leikjanna. Höfundur borðspilsins sjálfs, Isaac Childres, kemur að þróuninni sem ráðgjafi. Leikurinn býður upp á samstarf, þar sem bæði nýliðar og þaulreyndir leikmenn geta notið…
Atvikið sem vakti heimsathygli á kiss cam á Coldplay-tónleikum í Bandaríkjunum í júlí tengist í sjálfu sér ekki tölvuleikjafréttum – nema fyrir þær sakir að lítill retro tölvuleikur með gamaldags útliti hefur nú verið gerður í tilefni þess. Á tónleikunum, sem fóru fram í Massachusetts 15. júlí, var par sýnt kyssast á risaskjá tónleikagesta. Við nánari athugun kom í ljós að þar voru á ferð Andy Byron, þáverandi forstjóri gagnatæknifyrirtækisins Astronomer, og Kristin Cabot, mannauðsstjóri sama fyrirtækis – bæði í hjónabandi með öðrum. Myndband af atvikinu fór í dreifingu á samfélagsmiðlum og vakti harða gagnrýni, meðal annars frá fyrrverandi starfsfólki…
Valve bætir öryggi við viðskipti á Steam: Nýtt „Trade Reversal“ kerfi tekur gildi – byrjar með Counter-Strike 2
Valve hefur kynnt til leiks nýtt öryggiskerfi á Steam sem gerir notendum kleift að afturkalla viðskipti með stafræna hluti – kerfið tekur fyrst gildi í Counter-Strike 2. Í tilkynningu frá Valve hefur fyrirtækið opinberað nýtt kerfi sem kallast Trade Reversal Protection. Það gerir leikmönnum kleift að fá til baka stafræna hluti sem glatast í gegnum svik eða óheimilan aðgang. Þessi breyting hefur þegar verið virk í tengslum við Counter-Strike 2 og mun að líkindum ná til fleiri leikja á Steam með tímanum. Viðbrögð við aukinni svikastarfsemi Á síðustu árum hefur orðið sprenging í viðskiptum með skinn (e. skins) og vopnahluti…
Eldar fyrir hetjur rafíþróttanna – Einkakokkur T1 opinberar leyndarmál eldhússins – Vídeó
Bak við sigurgöngu eins frægasta rafíþróttaliðs heims, suðurkóreska liðsins T1, stendur maður sem starfar fjarri sviðsljósinu – en gegnir lykilhlutverki í árangri þess. Það er Alex Kim, yfirkokkur T1, sem ber ábyrgð á næringu og daglegum mat fyrir alla leikmenn félagsins – þar á meðal heimsþekkta leikmenn á borð við Faker, Keria, Zeus, Oner og Gumayusi sem keppa í leiknum League of Legends. Í myndbandi sem vakið hefur verðskuldaða athygli fá áhorfendur innsýn í störf Alex á höfuðstöðvum T1 í Gangnam-hverfinu í Seoul. Þar stjórnar hann eldhúsi sem þjónar ekki aðeins League of Legends-liðsins heldur einnig starfsfólki og öðrum deildum…
Tölvuleikurinn Echoes of the End, sem er þróaður af íslenska stúdíóinu Myrkur Games og gefinn út af Deep Silver, mun koma út 12. ágúst 2025 fyrir PC, PlayStation 5 og Xbox Series X|S. Leikurinn hefur vakið mikla athygli fyrir töfrandi heim, kvikmyndalega frásögn og leikvél sem dregur sterkan innblástur frá íslenskri náttúru. Sjá einnig: Myrkur Games sameinar íslenskt hugvit og hágæða tækni í stórleiknum Echoes of the End Í tilefni tilkynningu af útgáfudag leiksins var birt glænýtt 17 mínútna myndband þar sem leikmenn fá innsýn í heiminn Aemá – þar sem saga hetjunnar Ryn, fyrrverandi aðstoðarkonu krúnunnar, er sögð. Myndbandið…
Það er loksins komið að HRingnum, stærsta LAN-móti landsins! HRingurinn er árleg rafíþróttakeppni á vegum Tvíundar, nemendafélags tölvunarfræðinema við Háskóla Reykjavíkur, og fer að þessu sinni fram dagana 8.–10. ágúst 2025. Keppnin fer fram í eftirfarandi tölvuleikjum: Aðalgreinar (eSports): Counter-Strike 2 League of Legends Valorant Marvel Rivals Fighting-leikir: Super Smash Bros. Melee Super Smash Bros. Ultimate Super Smash Bros. Ultimate Doubles (2v2) Rivals of Aether Rivals of Aether 2 Guilty Gear Strive Tekken 8 Street Fighter 6 Þegar þetta er ritað hafa þrjú lið skráð sig til leiks í Counter-Strike 2, en enn er hægt að skrá lið í hinar…
