Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Framleiðendur EVE Online, í samvinnu við Hadean, PlayFab og Steam, stefna á heimsmet í leiknum þar sem 10 þúsund leikmenn spila samtímis. Viðburðinn verður á laugardaginn 23. nóvember klukkan 20:00 á UTC tíma. Fyrir þá sem ekki vita, þá er EVE Online ókeypis á Steam hér. Tvö verðlaun verða veitt, þ.e. þeim flugmanni sem nær mestum gjaldmiðli leiksins (ZPC) á meðan á viðburðinum stendur yfir og hin verða gefin öðrum heppnum flugmanni af handahófi. Sigurvegararnir tveir fá hvort tveggja tvo miða á EVE Fanfest 2020 í Reykjavík, þar á meðal greitt fyrir flug og hótel. Að auki munu sigurvegarar fá…
Foreldrar 11 ára drengs með raskanir ánægð með rafíþróttirnar á Íslandi – „Hann er glaðlyndari, sjálfsöruggari, opnari og félagslyndari“
Reynslusaga foreldra af 11 ára dreng sem greindur hefur með raskanir var birt á facebook síðu Rafíþróttadeildar Ármanns. Þar segir meðal annars að starfið hjá Rafíþróttadeild Ármanns hefur á þann hátt rofið hans félagslegu einangrun og styrkt hann félagslega og gefið honum aukið sjálfstraust sem hann hefur nýtt sér á öðrum sviðum í sínu lífi. Hér eftirfarandi er pistillinn: „Sonur minn er 11 ára og byrjaði að æfa með Rafíþróttadeild Ármanns þegar hún var stofnuð nú í haust 2019. Hann er greindur með raskanir sem eru hamlandi fyrir hann svo hann tekst á við ýmsar áskoranir í sínu daglega lífi.…
Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að setja tímamörk á tölvuleikjanotkun barna. Munu allir undir 18 ára aldri ekki getað spilað netleiki frá klukkan 22.00 á kvöldin til 8.00 á morgnana. Þá verður netleikjanotkun takmörkuð við 90 mínútur á hverjum virkum degi og í 180 mínútur á helgardögum og opinberum frídögum. Þá verður einnig sett þak á hversu miklum peningum börn og ungmenni mega verja til tölvuleikjanotkunar. Börn að 16 ára aldri mega aðeins eyða 200 júönum á mánuði, eða um 3.500 krónum, en 16 og 17 ára börn mega eyða tvöfaldri þeirri upphæð, að því er fram kemur á visir.is…
YouTube-stjarna, með rúmlega tvær milljónir fylgjenda, hefur verið settur í lífstíðarbann hjá tölvuleiknum Fortnite eftir að upp komst að hann hafði svindlað í leiknum. FaZe Jarvis, sem er hluti rafíþróttahópsins FaZe Clan, notaðist við svokallaða „aimbots“ í leik sem hann streymdi beint á YouTube-rás sinni, að því er fram kemur á visir.is sem fjallar nánar um málið hér. https://www.youtube.com/watch?v=iN3ttHug-BU Mynd: skjáskot úr myndbandi
Íslenska Overwatch landsliðið keppti nú á dögunum í heimsmeistaramótinu í Los Angeles. Ísland vann sér inn þátttökurétt í heimsmeistaramótinu eftir að landsliðið sigraði í Eurocup 2019. Sjá einnig: Íslenska Overwatch landsliðið sigraði í Eurocup 2019 Landsliðið byrjaði á því að sigra Írska landsliðið og lentu þar með á móti Bretlandi sem endaði með tapi. Þar með komst íslenska landsliðið því miður ekki áfram í ár. Það var Bandaríska landsliðið sem hreppti 1. sætið og þar með urðu Overwatch heimsmeistarar 2019. Fleiri fréttir af Íslenska Overwatch landsliðinu hér. Myndir: facebook / Team Iceland Overwatch
Eins og kunnugt er þá er Íslenska Overwatch landsliðið staðsett í Los Angeles þessa dagana þar sem það mun taka þátt í heimsmeistaramótinu sem haldið er þar í landi. Mótið fer fram 31. október næstkomandi, á sjálfum hrekkjavöku deginum, frá klukkan 16:00 til 00:00. Sjá einnig: Íslenska Overwatch landsliðið keppir í heimsmeistaramótinu í Los Angeles Hægt verður að fylgjast með landsliðinu í Bíó Paradís. Húsið opnar 16 og verða leikjum Íslands og annarra landa streymt á skjánum til miðnættis. Aðgangur er ókeypis! Það má með sanni segja að það ríkir óbeislaður kynþokki hjá landsliðinu eins og sjá má á meðfylgjandi…
Þá er komið að árlegum leik Óla Jóels hjá Game Tíví og Tryggva í Fifa. Óli átti frábæra takta í síðasta leik sem endaði 6-1 fyrir Óla. Skyldi Tryggvi vera búinn að rífa sig í gang eða er hann ennþá með allt niðrum sig? Sjón er sögu ríkari. https://www.facebook.com/watch/?v=737078140089504 Mynd: skjáskot úr myndbandi
Íslenska Overwatch landsliðið keppir í heimsmeistaramótinu í Los Angeles – Bíó Paradís verður með beina útsendingu
Íslenska Overwatch landsliðið mun keppa í heimsmeistaramótinu í Los Angeles 31. október næstkomandi frá klukkan 16:00 til 23:59. Ísland vann sér inn þátttökurétt í heimsmeistaramótinu eftir að landsliðið sigraði í Eurocup 2019. Sjá einnig: Íslenska Overwatch landsliðið sigraði í Eurocup 2019 Hægt verður að fylgjast með landsliðinu í Bíó Paradís. Húsið opnar 16 og verða leikjum Íslands og annarra landa streymt á skjánum til miðnættis. Aðgangur er ókeypis! Landsliðið er skipað sjö leikmönnum og er þetta í fyrsta sinn sem það fer út og keppir fyrir hönd Íslands. Liðið hefur náð frábærum árangri en á dögunum sigraði það Evrópumótið í…
Activision Blizzard hefur á undanförnum vikum og dögum verið sakað um undirlægjuhátt gagnvart Kommúnistaflokki Kína. Það var eftir að Chung Ng Wai frá Hong Kong mót í leiknum Hearthstone sem haldið var í Taívan fyrr í mánuðinum. Í útsendingu í kjölfar sigur hans, kallaði hann: „Frelsum Hong Kong, bylting okkar tíma“ sem er slagorð sem tengist mótmælunum í Hong Kong. Blizzard svipti hann meistaratitilinn, meinaði honum að keppa í Hearthstone í heilt ár og neituðu að afhenda honum verðlaunaféð sem hann hafði unnið á mótinu. Þar að auki voru kynnar mótsins, sem gerðu ekkert annað en að ræða við Chung,…
Ef þú myndir taka alla leiki Ubisoft og henda þeim í blandara, væri ekki ólíklegt að útkoman væri Ghost Recon Breakpoint, framhald Ghost Recon Wildlands. Það má finna keim allra leikja fyrirtækisins í Breakpoint, hvort sem það er Assassins Creed, Far Cry, Division og jafnvel Watch Dogs. Svona hefst inngangur á ítarlegri umfjöllun á visir.is um leikinn Ghost Recon Breakpoint. Það var Samúel Karl Ólason sem tók saman þennan skemmtilega pistil sem hægt er að lesa með því að smella hér. https://www.youtube.com/watch?v=U5e1ThK_le4 Mynd: ubisoft.com
