Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Stofnað hefur verið nýtt tölvuleikjafyrirtæki með tveggja milljón evra fjármögnun, en félagið sem heitir Mainframe verður með starfsstöðvar í Helsinki í Finnlandi og í Reykjavík. Meðal stofnenda eru reynsluboltar úr tölvuleikjaiðnaðinum sem hafa unnið hjá CCP, Remedy og Next games og hafa unnið að leikjunum EVE Online, Alan Wake og The Walking Dead: No man‘s land. Markmið fyrirtækisins er að skapa fyrsta opna fjölnotendaheiminn (social sand­box MMO) sem byggður er frá grunni til að spilast í skýinu, að því er fram kemur á mbl.is. „Möguleikinn fyrir Mainframe að geta boðið upp á sömu gæði upplifunar á hverskyns farsímum og sjónvarpstækjum,…

Lesa meira

„Það er óhætt að segja að ég hafi skemmt mér ágætlega yfir Borderlands. Það er skemmtilegur húmor í honum og augljóst að maður á ekki að taka honum alvarlega, þar sem allar persónur hans er snar-klikkaðar. Ég kem þó skemmtilega ferskur inn í Borderlands 3 þar sem ég hef ekki spilað Borderlands 1 og Borderlands 2. Bara alls ekki.“ Sjá einnig: Hvað þarf tölvan þín að vera öflug til að keyra Borderlands 3? „Í Borderlands setja spilarar sig í spor eins af fjórum aðilum sem kallast „Vault hunters“ (nokkurs konar málaliðar) og er markmiðið að finna hvelfingu sem inniheldur tækni…

Lesa meira

Eftirfarandi auglýsing var birt í facebook grúppuna Íslenska WoW samfélagið ásamt meðfylgjandi mynd: „Hæ elsku samfélag Ertu á götunni og vantar nýtt heimili? Bjarnabófar á Sylvanas alliance er með pláss fyrir þig! Við erum 3/8M og raidum tvö kvöld í viku (Fimmtudag + Sunnudag – Off kvöld á mánudögum) frá 21:00. Hentar vel fyrir Pabbana, mömmurnar, frænkur og frændur. Allir velkomnir til okkar og flestir í mythic raids. Dundum okkar samt mikið í m+, rbg’s og classic líka saman. Einnig er hópurinn duglegur að hittast utan leiksins og gera eitthvað skemmtilegt. Partý, keila, lunch, brunch ofl.“ Fyrir áhugasama spilara sem…

Lesa meira

Í morgun átti Ólafur Hrafn Steinarsson formaður Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ) fund með Guðna TH. Jóhannessyni forseta Íslands.  Þar voru rafíþróttir ræddar og sammælst um það að mikilvægt væri að standa vel að rafíþróttum á Íslandi og byggja þær upp til að veita áhugamönnum um rafíþróttir og tölvuleiki tækifæri á að upplifa sig sem hluta af liðsheild, iðka sitt áhugamál í skipulögðu starfi og eigi möguleika á að skara framúr á alþjóðavettvangi, að því er fram kemur í tilkynnningu frá RÍSÍ á facebook. Þá væri mikilvægt að gæta þess að hugað væri að líkamlegri og andlegri heilsu og vellíðan þegar kemur…

Lesa meira

Lenovo deildin hóf göngu sína aftur um s.l. helgi, þar sem keppt er í leikjunum League of Legends (LoL) og Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) Eftirtaldir eru umsjónarmenn mótsins: Ólafur Nils “Some0ne” Sigurðsson – Yfir umsjónarmaður CS:GO Hafliði Örn “Flati” Ólafsson – Yfir umsjónarmaður LoL Benjamín Björn Hinriksson – Umsjónarmaður CS:GO Riðlar og leikdagar er hægt að sjá nánar með því að smella hér. Lenovo deildin var haldin í vor s.l. þar sem úrslitin voru svo að lokum haldin 7. júlí 2019 í Smárabíó fyrir fullum sal áhorfenda. Mynd: facebook / Lenovo deildin

Lesa meira

KSÍ býður til súpufundar um eFótbolta í höfuðstöðvum KSÍ að Laugardalsvelli (3. hæð), í dag fimmtudaginn 26. september kl. 12:15. Á fundinum mun KSÍ kynna fyrirætlanir á sviði eFótbolta og þau verkefni sem eru framundan, m.a. Íslandsmót og þátttöku landsliðs í mótum á vegum UEFA og FIFA, að því er fram kemur á heimasíðu ksi.is.  Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) mun kynna sína starfsemi og hvernig samtökin geta aðstoðað félög við uppbyggingu rafíþróttastarfs.  Þá mun rafíþróttadeild Fylkis segja frá sinni reynslu af uppbyggingu deildarinnar. Viðburðurinn er sýndur í beinni útsendingu á Youtube-rás KSÍ. Mynd: skjáskot úr útsendingu

Lesa meira

KR.eSports leitar logandi ljósi að þjálfara sem hefur góða reynslu af Counter-Strike Global Offensive. Þjálfarinn þarf að vera með góða kunnáttu á CS:GO og geta mætt með liðinu á æfingar 3 til 4 sinnum í viku og í keppnis leiki í Lenovo deildinni og ESEA-IM. Ásamt því að vinna skemmtileg verkefni með leikmönnum liðsins. Fyrir áhugasama er hægt að senda á netfangið [email protected] Mynd: úr safni

Lesa meira

GreedFall er hlutverkaleikur af gamla skólanum þar sem spilarar eru settir í spor erindreka á dularfullri og kyngimagnaðri eyju þar sem nýlenduveldi og innfæddir berjast um yfirráð. Þetta skrifar Samúel Karl Ólason á visir.is en þar segir hann jafnframt að það er margt sem Greedfall gerir rétt og það er mjög auðvelt að finna keim af (gamla) Bioware í leiknum, þó hann sé gerður af hinu tiltölulega smáa fyrirtæki, Spiders. Greedfall er þó nokkuð grófur og bardakerfið er oftar en ekki einsleitt. Hægt er að lesa alla umfjöllina með því að smella hér. GreedFall Gameplay https://www.youtube.com/watch?v=CFKoFQ4MDnU Mynd: greedfall.com

Lesa meira

Tölvuleikjamót Tuddans sem hefur fengið nafnið Kubburinn 2019 er á næsta leiti, en lanmótið verður haldið helgina 11. til 13. október í Íþróttahúsinu Digranes. Keppt verður í eftirfarandi leikjum: Counter-Strike League of Legends PUBG Starcraft Rocket League Einnig verður í boði fyrir hópa og einstaklinga að skrá sig utan keppni og vera með í rafmagnaðri stemmingu alla helgina. Skráning fer fram hér. Mynd: skjáskot af 1337.is

Lesa meira