Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Eins og kunnugt er þá er Íslenska Overwatch landsliðið staðsett í Los Angeles þessa dagana þar sem það mun taka þátt í heimsmeistaramótinu sem haldið er þar í landi. Mótið fer fram 31. október næstkomandi, á sjálfum hrekkjavöku deginum, frá klukkan 16:00 til 00:00. Sjá einnig: Íslenska Overwatch landsliðið keppir í heimsmeistaramótinu í Los Angeles Hægt verður að fylgjast með landsliðinu í Bíó Paradís. Húsið opnar 16 og verða leikjum Íslands og annarra landa streymt á skjánum til miðnættis. Aðgangur er ókeypis! Það má með sanni segja að það ríkir óbeislaður kynþokki hjá landsliðinu eins og sjá má á meðfylgjandi…

Lesa meira

Íslenska Overwatch landsliðið mun keppa í heimsmeistaramótinu í Los Angeles 31. október næstkomandi frá klukkan 16:00 til 23:59. Ísland vann sér inn þátttökurétt í heimsmeistaramótinu eftir að landsliðið sigraði í Eurocup 2019. Sjá einnig: Íslenska Overwatch landsliðið sigraði í Eurocup 2019 Hægt verður að fylgjast með landsliðinu í Bíó Paradís. Húsið opnar 16 og verða leikjum Íslands og annarra landa streymt á skjánum til miðnættis. Aðgangur er ókeypis! Landsliðið er skipað sjö leikmönnum og er þetta í fyrsta sinn sem það fer út og keppir fyrir hönd Íslands. Liðið hefur náð frábærum árangri en á dögunum sigraði það Evrópumótið í…

Lesa meira

Activision Blizzard hefur á undanförnum vikum og dögum verið sakað um undirlægjuhátt gagnvart Kommúnistaflokki Kína. Það var eftir að Chung Ng Wai frá Hong Kong mót í leiknum Hearthstone sem haldið var í Taívan fyrr í mánuðinum. Í útsendingu í kjölfar sigur hans, kallaði hann: „Frelsum Hong Kong, bylting okkar tíma“ sem er slagorð sem tengist mótmælunum í Hong Kong. Blizzard svipti hann meistaratitilinn, meinaði honum að keppa í Hearthstone í heilt ár og neituðu að afhenda honum verðlaunaféð sem hann hafði unnið á mótinu. Þar að auki voru kynnar mótsins, sem gerðu ekkert annað en að ræða við Chung,…

Lesa meira

Ef þú myndir taka alla leiki Ubisoft og henda þeim í blandara, væri ekki ólíklegt að útkoman væri Ghost Recon Breakpoint, framhald Ghost Recon Wildlands. Það má finna keim allra leikja fyrirtækisins í Breakpoint, hvort sem það er Assassins Creed, Far Cry, Division og jafnvel Watch Dogs. Svona hefst inngangur á ítarlegri umfjöllun á visir.is um leikinn Ghost Recon Breakpoint. Það var Samúel Karl Ólason sem tók saman þennan skemmtilega pistil sem hægt er að lesa með því að smella hér. https://www.youtube.com/watch?v=U5e1ThK_le4 Mynd: ubisoft.com

Lesa meira

Tíundu seríu margmiðlunartölvuleiksins Fortnite lauk með því um helgina að smástirni sprengdi allt kortið í klessu og svarthol blasti við spilurum. Tölvuspilarar út um allan heim, sem margir hverjir eiga erfitt með að borða, sofa, klæða sig og sinna öðrum grunnþörfum fyrir utan tölvuleikinn, voru furðu lostnir, að því er fram kemur á K100 á mbl.is sem fjallar ítarlega um málið hér. Mynd: epicgames.com

Lesa meira

Það stefnir í endalausa gleði nú um helgina þegar fram fer lanmótið Kubburinn 2019. Sjá einnig: Skráning hafin á eitt stærsta tölvuleikjamót ársins Mótið verður haldið 11. til 13. október í Íþróttahúsinu Digranes og keppt verður í tölvuleikjunum Counter-Strike, League of Legends, PUBG, Starcraft og Rocket League. Nú þegar eru 180 manns skráðir. Það verður áhugavert að fylgjast með mótinu en mikill fjöldi af þekktum liðum og spilurum keppa um helgina. Mynd: úr safni

Lesa meira

Japanska raftækjafyrirtækið Sony tilkynnti í dag að næsta kynslóð Playstation leikjatölvunnar, Playstation 5, muni koma á markað fyrir jólavertíðina 2020. Hún mun leysa fjórðu kynslóð leikjatölvanna af hólmi, en Playstation 4 kom fyrst á markað árið 2013, að því er fram kemur á mbl.is sem fjallar nánar um leikjatölvuna. Mynd: Playstation.com

Lesa meira

Heimasíðan Nörd Norðursins birtir skemmtilegt og áhugavert viðtal við Daða Einarsson hjá Myrkur Games. Daði segir frá The Darken, sem er söguríkur ævintýraleikur og getur spilarinn haft áhrif á sögu leiksins með sínum ákvörðunum. https://www.youtube.com/watch?v=eWUeYMf86jU Myrkur Games er með sína eigin aðstöðu fyrir hreyfiföngun (motion capture) eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi hér að neðan.  Nú þegar hafa nokkrir leikarar verið ljósmyndaskannaðir sem munu fylla í a.m.k. sjö stærstu hlutverk leiksins, þar á meðal er Karl Ágúst Úlfsson sem fer með hlutverk Abram Finlay sem er einn af meira áberandi aukapersónum leiksins, að því er fram kemur á nordnordursins.is.…

Lesa meira