Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Það er alveg ljóst að það er kynbundinn launamunur í eSports samfélaginu samkvæmt gögnum frá Esports Earnings. Tekinn hefur verið saman listi sem sjá má í meðfylgjandi frétt sem sýnir á svart og hvítu hve mikill munur er, en StarCraft 2 leikmaðurinn Sasha „Scarlett“ Hostyn er einungis með 333.456.35 dollara í tekjur. Á meðan tekjuhæsti Dota 2 leikmaðurinn Johan Sundstein, hefur 6.889.591,79 dali í tekjur. Mynd: esportsearnings.com
Íslenska landsliðið í Overwatch gerði sér lítið fyrir og sigruðu í Eurocup 2019 sem fram hefur farið s.l. daga. Ísland keppti á móti liðinu frá Danmörku í úrslitaleiknum sem endaði með 3 – 0 fyrir Ísland. Glæsilegur árangur og til hamingju. Hér að neðan er skemmtilegt kynningarmyndband af meðlimum í landsliðinu: https://www.youtube.com/watch?v=ql7ELP7qEg0 Leikinn er hægt að horfa á Twitch með því að smella hér. Watch Team Iceland vs Team Israel | Eurocup from teamnorwayow on www.twitch.tv Mynd: skjáskot úr Twitch útsendingu
Rafíþróttir, börn og heilbrigð nálgun – Arnar Hólm: „Það er engin lausn að banna Fortnite eða aðra tölvuleiki.“
Arnar Hólm Einarsson, eigandi Rafíþróttaskólans og yfirþjálfari Rafíþróttadeildar Ármanns skrifar fróðlegan og skemmtilegan pistil á visir.is, þar sem hann fer yfir hvað foreldrar geta gert til að búa til heilbrigðan farveg og umhverfi fyrir börnin sín sem sækja mikið í tölvuna og geta notið sín. Smellið hér til að lesa pistilinn frá Arnari. Mynd: úr safni
Stjórnendur hjá franska leikjaframleiðandanum Ubisoft eru lítið hrifnir af Steam, en þeir segja að markaðsaðferðir Steam séu „óraunhæfar“. „Núverandi viðskiptamódel þeirra er óraunhæft“, sagði Chris Early hjá Ubisoft í samtali við nytimes.com. „Steam endurspeglar ekki leikjasamfélagið í dag hvað varðar dreifingu leikja.“ Ubisoft selur að mestu leiki sína í gegnum Epic og UPlay og forðast Steam eins og heitan eld. Mynd: ubisoft.com
Það er ekki seinna vænna fyrir Borderlands aðdáendur að huga að tölvunni sinni og athuga hvort að tölvan höndli nýjasta Borderlands leikinn sem kemur út 13. september næstkomandi. Framleiðendur Borderlands 3 hafa gefið út hve mörg hestöfl þú þarft að hafa undir þér til að keyra leikinn. Lágmark: OS – Windows 7/8/10 (latest service pack) Processor – AMD FX-8350 (Intel i5-3570) Memory – 6GB RAM Graphics card – AMD Radeon HD 7970 (NVIDIA GeForce GTX 680 2GB) HDD – 75 GB Mælt er með: OS – Windows 7/8/10 (latest service pack) Processor – AMD Ryzen 5 2600 (Intel i7-4770) Memory…
Rafíþróttadeild Ármanns stendur fyrir kynningu á rafíþróttastarfinu sem hefst innan félagsins. Kynningafundur verður 25. ágúst næstkomandi, klukkan 14:00, á Ground Zero (GZ) Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á facebook hér. Mynd: facebook / Rafíþróttadeild Ármanns
Undanfarna mánuði hafa bestu lið landsins att kappi í leikjunum tveimur til að komast svona langt. Í League of Legends voru FH (sem áður hét Frozt) efstir í deildinni með 11 sigra og 1 tap. Á eftir þeim koma Dusty með 9 sigra og 3 töp. Bæði liðin komust frekar auðveldlega í gegnum undanúrslitin gegn KINGS og Old Dogs. Á bak við tjöldin hjá Dusty https://youtu.be/wKko0Q7_v2s Í Counter-Strike var HaFiÐ efst í deildinni með 12 sigra og 0 töp. Á eftir þeim, eftir harða baráttu við Tropadeleet og KR, koma Fylkir með 5 sigra og 7 töp. Bæði liðin sigruðu…
Síðastliðna helgi var haldin einn stærsti rafíþróttaviðburður Íslands sem fram fór í Laugardalshöllinni. Þar var keppt í leikjunum Fortnite, Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) og League of Legends (LoL) um titilinn Rafíþróttameistari Reykjavíkurleikanna. Fyrst var haldin undankeppni helgina áður og úrslitin voru spiluð uppi á sviði í Laugardalshöllinni fyrir framan áhorfendur. Úrslit Í League of Legends var það „Glanni Tæpur“ sem sigruðu og vann liðið sér inn keppnisrétt á “Nordic Championship” á Dreamhack í febrúar, en Dreamhack er stærsti LAN viðburður Evrópu. Hart var barist um fyrsta sætið í CS:GO og að endingu var það Hafið sem sigraði. Í Fortnite var…
Rafíþróttasamtök Íslands í samstarfi við Íþróttabandalag Reykjavíkur kynna með stolti stærsta rafíþróttaviðburð Íslands frá upphafi. Keppnin verður haldin í Laugardalshöll dagana 26. og 27. janúar 2019 en þar munu bestu lið landsins í Fortnite, Counter-Strike og League of Legends keppa um hver getur kallað sig rafíþróttameistara Reykjavíkurleikanna í fyrsta sinn. Úrslitin verða spiluð uppi á sviði í Laugardalshöllinni fyrir framan áhorfendur. Undanúrslit verða online, helgina 19. – 20. janúar næstkomandi. Þar að auki mun sigurvegari í League of Legends móti Reykjavíkurleikanna vinna sér inn keppnisrétt á “Nordic Championship” á Dreamhack í febrúar, en Dreamhack er stærsti LAN viðburður Evrópu. Nóg…
Með fylgja myndir af öllum sigurvegurum og verðlaunsætin í öllum leikjunum sem keppt var í á lanmótinu HRingurinn 2018. Myndir tók Galactic Deer.
