Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Í kvöld sunnudaginn 23. febrúar verða League of Legends LCS leikirnir sýndir á Glaumbar á stórum skjá. Herlegheitin hefjast klukkan 20:00 og þá spila stærstu nöfn Ameríku.  Það var Ingo sem hreppti síðustu verðlaunin og að sjálfsögðu verða happdrætti í kvöld fyrir Mystery Skin. Allar nánari upplýsingar er hægt að nágast á facebook event hér.

Lesa meira

Nú er komin íslensk facebook grúppa fyrir íslendinga fyrir tölvuleikinn Elder Scrolls Online.  Það eru meistararnir Draazil sem eiga veg og vanda að stofnun grúppunnar og það er ekki annað hægt að sjá en að þeir halda henni vel active, GJ. Búið er að setja „Íslenskt Elder Scrolls Online samfélag“ grúppuna á listann yfir Íslenskar Fb grúppur og hvetjum við alla að benda á fleiri Íslenskar tölvuleikja grúppur. Nú er um að gera að bjóða facebook vinum í íslenska Elder Scrolls Online samfélagið. Mynd: af facebook grúppu íslenska Elder Scrolls Online samfélagsins.

Lesa meira

Hér er heimildamynd um atvinnu Counter-Strike spilarann Jónatan ‘Devilwalk’ Lundberg sem spilar fyrir Fnatic.  Hér er farið yfir hvernig hans líf er sem atvinnuspilari og fylgt honum á eitt stærsta mót í heimi þar sem lið hans Fnatic keppti um peningaverðlaunin 100 þúsund dollara. Ef þú vilt vera atvinnu spilari í tölvuleik, þá þarftu að fórna fjölskyldunni og vinum segir Jónatan í heimildarmyndbandinu sem hægt er að horfa á hér að neðan: Mynd: skjáskot úr myndbandinu.

Lesa meira

Það er alltaf skemmtilegt að skella sér í einn skotheldan MMORPG leik, líkt og DC Universe Online (DCUO) tölvuleikinn þar sem söguhetjurnar Superman, Batman, hin flotta Wonder Woman koma við í sögu leiksins, svo fá eitt sé nefnt.  Leikurinn kom út í janúar 2011. Nokkrir strákar halda úti DCUO facebook grúppu og hvetjum við alla að joina og slást í för með þeim hörðustu DCUO spilurum á íslandi. Kíkið á grúppuna: Íslenska DCUO samfélagið. Mundu að senda okkur upplýsingar um þína fb-grúppu ef hún er ekki á listanum okkar. Myndir: dcuniverseonline.com

Lesa meira

Íslenskir DayZ spilarar eru búnir að koma sér fyrir á feisinu og stofnuð hefur verið facebook grúppa sem nefnist „Íslenska Day-z samfélagið“ og eru komnir nú þegar 100 meðlimir, en í lýsingu á hópnum segir: Hittingur fyrir alla gullmola íslands sem spila Day-Z modið fyrir Arma 2 eða standalone leikinn Day-Z Búið er að setja DayZ grúppuna á listann yfir Íslenskar Fb grúppur og hvetjum við alla að benda á fleiri Íslenskar tölvuleikja grúppur. Nú er um að gera að bjóða facebook vinum í Íslenska Day-z samfélagið. Mynd: Íslenska Day-z samfélagið

Lesa meira

Það má klárlega segja að Rust serverarnir koma á færibandi, en nýr server hefur litið dagsins ljós.  Það eru Íslensku spilararnir þeir Captainahab og j0ker sem bjóða upp á Rust++ server SnoopyPvP.heima.is:28015 ~50ms latency, Limited Sleepers (30 minutes) , Limited Decay, 33% CraftTime. Einnig hafa þeir félagar sett upp server fyrir Teamspeak 3 fyrir þá sem vilja: 212.30.235.137 Rust server: net.connetct SnoopyPvP.heima.is:28015 Go nutz 🙂 Mynd: playrust.com

Lesa meira

Íslenska clanið Nova Iceland hefur sett upp nýjan Rust server, en það er íslenski spilarinn Dapeton sem hefur veg og vanda að uppsetningu á servernum. Til að tengjast beint með IP töluna þá þarf að opna console í leiknum með því að smella á F1 í leiknum og skrifa: net.connect 146.185.29.236:28055 Mynd: playrust.com

Lesa meira