Close Menu
    Nýjar fréttir

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    1 2 3 … 354 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans
    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    By Chef-Jack29.05.20262 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    Dusty hafði betur gegn Þór í úrslitaleik Stórmeistaramóts Ljósleiðarans laugardaginn 23. maí og tryggði sér þar með titilinn eftir 3-2 sigur í BO5-seríu. Mikil stemning var í Next Level Gaming í Egilshöll þar sem leikurinn var sýndur í beinni útsendingu. Fyrsti leikur hófst klukkan 18:00 og ljóst var frá upphafi að hart yrði barist.

    Veto-ferlið í úrslitaleiknum var eftirfarandi: Þór bannaði Inferno og Dusty bannaði Vertigo. Þór valdi Anubis sem fyrsta kort og Dusty valdi Mirage. Þór valdi Nuke sem annað kort og Dusty valdi Overpass. Dust2 varð úrslitakortið ef til oddaleiks kæmi.

    Anubis var fyrsta kort kvöldsins og þar byrjaði Þór betur. CT‑leikurinn hjá liðinu stóð vel fyrir sínu og Dusty átti erfitt með að brjóta upp varnirnar. Þór vann kortið 13-9 og tók 1-0 forystu í seríunni. Dusty jafnaði hins vegar strax á Mirage, þar sem liðið vann mikilvægar lotur undir lokin og tryggði sér 13-11 sigur. Staðan var þá 1-1.

    Á Nuke tók Þór aftur yfir og vann kortið með 13-4 sigri, sem kom liðinu í 2-1 forystu. Á Overpass jafnaði Dusty leikinn á ný. Kortið var jafnt framan af, en Dusty hafði betur á lokakaflanum og vann 13-11, sem gerði stöðuna 2-2 og tryggði oddaleik á Dust2.

    Á Dust2 var Dusty með yfirhöndina frá byrjun. Liðið náði snemma forskoti, vann lykilskotbardaga og Þór fann ekki taktinn. Dusty vann kortið 13-4 og tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans.

    Með sigrinum staðfesti Dusty stöðu sína sem eitt sterkasta lið landsins í Counter-Strike.

    Mynd: Rafíþróttasamband Íslands

    counter strike Counter Strike 2 Dusty Íslenskt efni Rafíþróttasamband Íslands
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.