Það verður að segjast að í herbúðum PUBG er hart tekið á svindlurum. Nýjustu tölur frá Anti-Cheat Team sýna að á tímabilinu 25. til 31. ágúst voru alls 170.165 notendur bannaðir fyrir brot á reglum leiksins.
Langstærsti hluti brotanna tengist svindlum, eða 162.329 tilfelli, en einnig voru leikmenn teknir úr umferð fyrir dráp á liðsfélaga, n.t. Team Kill (5.789), ólöglegt teaming (1.667) og misnotkun (380).
Auk bannanna á notendum var gripið til víðtækra aðgerða gegn búnaði. Alls voru 51.463 tæki bönnuð, sem hafði bein áhrif á 79.327 notendur. Með þessu er PUBG að reyna að tryggja sanngjarnt leikjaumhverfi og gera svindlurum sífellt erfiðara fyrir að komast aftur inn í leikinn.
PUBG: BATTLEGROUNDS er frítt í spilun, sem gerir það sérstaklega mikilvægt að halda utan um öryggi og heiðarleika í leiknum. Anti-Cheat Team leggur áherslu á að spilarar tilkynni svindl og ólöglegan hugbúnaðar í gegnum innbyggt kerfi leiksins. Þá hvetur teymið notendur til að virkja Steam Guard Mobile Authenticator til að vernda aðgang sinn fyrir misnotkun.
PUBG lofar að halda áfram baráttunni gegn svindlurum og segir að markmiðið sé skýrt: að viðhalda heiðarlegu og sanngjörnu leikjasamfélagi.
Mynd: pubg.com




