Brasilíska liðið Legacy hefur unnið sinn stærsta sigur til þessa eftir að hafa lagt 3DMAX að velli í stórskemmtilegum úrslitaleik á CS Asia Championships (CAC) 2025 í Shanghai. Mótið var haldið um helgina og í verðlaun voru ein milljón dollara.
Legacy hafði þegar skrifað sig í sögubækurnar með því að komast í úrslitakeppni á alþjóðlegu móti í fyrsta sinn síðan BLAST.tv Austin Major í júní. En fyrirliði liðsins, Lucas “lux” Meneghini, og hans menn fóru lengra en nokkur bjóst við. Þeir lögðu 3DMAX, sem talið var mun sterkara lið, og tryggðu sér þar með fyrsta stóra Counter-Strike titilinn í sögu félagsins. Legacy var stofnað árið 2023 og hefur fram að þessu spilað aðallega á svokölluðum „tier-two“ mótum.
Þessi sigur markar líka nýtt upphaf fyrir Eduardo “dumau” Wolkmer og Bruno “latto” Rebelatto, tvo unga leikmenn sem hafa lengi verið taldir framtíðarvon brasilísks CS.
Þrælspennandi úrslit: Legacy 3 – 2 3DMAX
Leikurinn byrjaði á kortinu Nuke, sem 3DMAX hafði valið, en þar tók Legacy frumkvæðið strax og vann örugglega 13–6. Frakkarnir svöruðu þó af krafti, tóku Dust2 13–11 og síðan Inferno 13–5, og virtust hafa öll tökin á leiknum.
En Legacy gafst ekki upp. Á Train náðu þeir dramatískum 13–10 sigri, jöfnuðu seríuna og fóru inn á lokakortið, Ancient, með brennandi sjálfstraust. Þar gjöreyðilögðu þeir 3DMAX 13–6 og tryggðu sér CAC 2025 titilinn með stæl.
Latto var valinn MVP mótsins eftir að hafa spilað stöðugt frábærlega alla leiðina. Hann topp-fraggaði með 82 dráp og hélt uppi 1.19 „rating“ yfir fimm kort.
Eftir leikinn sagði fyrirliðinn Lux við sjónvarpsmenn:
„Við höfum gengið í gegnum mikið síðustu mánuði. Við vorum ekki að spila sem lið, vorum ekki lið. Að vinna þetta mót er tilfinning sem ég á ekki orð yfir. Við höfum verið þrjá mánuði fjarri heimili, en þessi bikar gerir allt þess virði.“
Á sama degi og Legacy lyfti bikarnum í Shanghai mætir annað brasilískt lið, FURIA, í úrslitum Thunderpick World Championship á Möltu gegn Natus Vincere. Brasilískur Counter-Strike gæti því átt sinn stærsta dag í ár.
Myndir: Skjáskot úr myndbandi







