Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) tekur þátt í fjölmörgum samstarfsverkefnum með evrópskum aðilum. Nú leitar sambandið eftir þátttakendum til að svara könnunum sem tengjast þessum verkefnum, en um er að ræða stuttar spurningar sem einungis taka örfáar mínútur að svara.
Kannanirnar varða margvísleg og mikilvæg málefni, meðal annars áhuga á tölvuleikjum, geðheilbrigði ungmenna og notkun sýndarveruleika (VR).
Fyrsta könnunin (taka þátt hér) beinist að því hvernig nýta megi tölvuleiki sem verkfæri til að efla tengsl milli einstaklinga, sérstaklega þeirra sem standa á tímamótum í lífinu.
Önnur könnunin (taka þátt hér) tengist verkefni sem skoðar notkun ungmenna á VR og áhuga þeirra á að taka þátt í þróun nýrrar VR upplifunar.
Sú þriðja (taka þátt hér) er ætluð fagfólki sem starfar með ungmennum, svo sem kennurum, þjálfurum og starfsfólki félagsmiðstöðva. Þar er áherslan lögð á mögulegt gildi VR í ungmennastarfi og hvort fagaðilar sjái tækifæri til að taka þátt í frekari þróun á slíkri upplifun.
RÍSÍ hvetur alla sem áhuga hafa til að taka þátt og styðja þannig við mikilvægt starf í þágu ungmenna og framtíðar rafíþrótta á Íslandi.
Mynd: Pixabay




