Close Menu
    Nýjar fréttir

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026
    1 2 3 … 354 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Skjálfti í fullum gangi – Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Skjálfti í fullum gangi – Myndaveisla

    By Chef-Jack27.09.2025Updated:27.09.20253 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla

    Skjálfti er í blússandi gangi um helgina í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi. Mótið stendur yfir fram á morgun sunnudag þegar úrslitaleikir í League of Legends og Counter-Strike 2 fara fram, og verða verðlaunaafhendingar í beinu framhaldi með pompi og prakt.

    Lokahnykkurinn í undirbúningi fyrir stærsta LAN-viðburð ársins

    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla

    Íþróttahúsið í Digranesi tekur á sig nýtt hlutverk sem heimkynni Skjálfta. Myndir úr undirbúningnum í vikunni sýna hvernig skipulagið mótast smám saman.

    Myndaveisla

    Með fylgja myndir frá föstudeginum sem fanga andrúmsloftið á mótsstað og sýna gleðina meðal keppenda og áhorfenda.

    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla

    Fjölbreytt dagskrá og nýir tímar

    Dagskráin á Skjálfta er stútfull. Auk tölvuleikjanna sem mörgum tengjast sterkum minningum frá hápunkti Skjálftamótanna fyrir tuttugu árum, Counter-Strike og Quake, eru nú nýrri leikir orðnir fastir liðir. Þar má nefna League of Legends, Super Smash Bros, Apex Legends og Fortnite sem draga að sér nýja kynslóð keppenda.

    Sérstök atriði eru einnig á dagskránni. Í dag kl. 14:00 stígur Steindi Jr. á svið ásamt félögum sínum í hópnum Rauðvín og klakar og spilar fyrir áhorfendur. Einnig fara fram sýndarviðureignir í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike og LOL sem bjóða upp á spennandi glugga inn í keppnisheim íslenskra rafíþrótta.

    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla

    Pressi mættur með Þór

    Mbl.is tók skemmtilegt viðtal við Viktor Orra Gíslason, betur þekktan sem Pressa, sem keppir á Skjálfta með liðinu Þór í Counter-Strike. Hann er meðal þeirra sem halda mótsstemningunni lifandi með frammistöðu sinni á sviðinu. Lesa má viðtalið í heild sinni á mbl.is.

    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla
    Skjálfti í fullum gangi - Myndaveisla

    Frítt inn, stemming í boði allra

    Frítt er inn fyrir gesti sem vilja kíkja á mótið, sjá leiki í beinni og njóta stemningarinnar á staðnum. Hægt er að kynna sér dagskrána í heild sinni með því að smella hér.

    „Fram úr okkar björtustu vonum“

    „Skjálfti hefur gengið fram úr okkar björtustu vonum,“

    segir Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, í samtali við esports.is. Hann bætir við að þátttaka, skipulag og stemning á mótinu hafi sannað að Skjálfti eigi enn sérstakan stað í hjarta íslensks rafíþróttasamfélags.

    Saga Skjálfta

    Skjálfti á sér langa og litríka sögu. Hann hófst innan vébanda Símans Internet (áður Landssíminn) haustið 1998 þegar leikjaþjónninn skjalfti.simnet.is fór í loftið þann 9. október. Á árunum 2003–2005 náði Skjálfti hápunkti hvað umfang og vinsældir varðar. Þá voru mótin haldin að jafnaði fjórum sinnum á ári, yfirleitt í febrúar, vori, sumri og hausti, og hvert þeirra laðaði að sér hundruð keppenda og áhorfenda.  Nánar um Skjálfta hér.

    Myndir: Rafíþróttasamband Íslands / Atli Már

    https://esports.is/wp-content/uploads/2025/09/ljosleidarinn.mp4

    Apex Legends counter strike Counter Strike 2 Counter-Strike 1.6 Fortnite Battle Royale GameTíví Jökull „Kaldi“ Jóhannsson League of Legends Mót framundan Rafíþróttasamband Íslands Skjálfti Super Smash Bros Viktor "Pressi" Gíslason Þór
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    • Dusty
      Fyrsta íslenska VRS mótið
      20.08.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.