Nýr spilasalur fyrir tækninörda, ævintýralanga og forvitna leikjaunnendur opnar í dag við Grensásveg 16. Þar stendur VRWorld nú tilbúið með ferskan sýndarveruleika, klassíska arcate stemningu og tæknilausnir sem ætla sér að blása nýju lífi í afþreyingarmenningu borgarinnar.
Áherslan hjá VRWorld er skýr, það á að bjóða upp á upplifun sem hverfur ekki úr minni. Á staðnum má finna háþróaðar VR-arenur, hreyfikerfi sem bregðast við hverri hreyfingu og búnað sem á að draga leikmann beint inn í nýjan heim. Þeir sem kjósa eitthvað léttara geta hoppað í klassíska arcade-leiki sem minna á gullaldarskeið spilasalanna, þar sem það fyrsta sem grípur mann er hrein gleði og adrenalín.
Reksturinn er stilltur þannig að bæði byrjendur og reynslumiklir leikmenn geta mætt án nokkurrar grunnkunnáttu, þar sem starfsfólk tekur á móti gestum og leiðir þá inn í heim VR-tækni á þægilegan hátt.
VRWorld stefnir á að verða fjölhæfur afþreyingarstaður, hvort sem um ræðir staka heimsókn, hópefli fyrirtækja, afmælisveislu eða kvöldstund þar sem vinir ákveða að prófa eitthvað nýtt.
Verðin eru hagstæð og miðuð við að hvetja fólk til að prófa sig áfram, til dæmis kostar í Arcade- og Kids Zone frá 500 krónum, hefðbundnir VR-leikir frá 1000 krónum og heill klukkutími í VR-Arena frá 7500 krónum. Þetta er uppbygging sem gerir bæði stuttar heimsóknir og lengri VR-ævintýri raunhæf og aðlaðandi.
Opnun VRWorld markar skemmtilega viðbót við menningarflóru Reykjavíkur. Hér sameinast nostalgía gömlu spilasalanna og nýjustu tækni sýndarveruleikans í einum stað, og verður fróðlegt að sjá hvernig viðtökurnar verða.
Ljóst er þó að þeir sem leita að nýrri upplifun, hvort sem þeir vilja reyna á snerpu, hugrekki eða einfaldlega hverfa inn í annan heim, hafa nú fengið nýjan samkomustað.
Myndir: vrworld.is












