
Liam „MaiL09“ Tügel, aðeins 16 ára gamall sænskur leikmaður, hefur náð ótrúlegum árangri í Counter-Strike 2. Hann komst nýlega í efsta sæti á heimslista FACEIT með 4.860 ELO, sem er einstakt afrek fyrir leikmann á hans aldri.
FACEIT er vettvangur þar sem spilarar taka þátt í keppnisleikjum í tölvuleikjum eins og Counter-Strike 2. Þar er boðið upp á stigakerfi, mót og deildir sem spilarar um allan heim nota til að mæta jafningjum sínum og reyna að klífa upp heimslistann. FACEIT hefur með árunum orðið eins konar stökkpallur fyrir unga leikmenn sem vilja brjótast inn í atvinnumennskuna.
At only 16 years old, @MaiL09cs the Swedish prodigy, has just reached #1 Elo worldwide on FACEIT.
If he holds the top spot until the end of the season, he’ll become the youngest FACEIT Champion in history, breaking the record held by @donk1337 by 6 months and 9 days! https://t.co/b9Liw8xpsB pic.twitter.com/JcD3f2L25v
— FACEIT CS2 (@FACEITcs) September 3, 2025
MaiL09 hefur sýnt ótrúlegt úthald og aga. Hann hefur spilað yfir 3.500 leiki á FACEIT og unnið 57% þeirra. Afrekið er ekki aðeins tölfræði á blaði, heldur sýnir hann jafnan yfirburði í sínum leik og þroska sem margir tengja frekar við reyndari spilara.
Þessi ungi Sví er ekki ókunnugur sviðsljósinu. Hann hefur áður spilað með GODSENT og Johnny Speeds, en í dag er hann lykilmaður hjá Metizport. Með því liði tryggði hann sér sigur í Svenska Elitserien síðastliðið sumar og er nú á góðri leið að setja sitt mark á alþjóðlegan vettvang.
Metizport situr í dag í 79. sæti á Valve Regional Standings og stefnir á að ná inn í 32 liða hóp StarLadder Budapest Major í nóvember. Ef það tekst er ljóst að MaiL09 á eftir að fá enn meiri athygli frá helstu liðum heimsins.
Það sem gerir árangur hans sérstaklega athyglisverðan er að hann er á leiðinni að slá met Danil „donk“ Kryshkovets, sem varð yngsti FACEIT-meistari hingað til. Ef MaiL09 heldur efsta sætinu út tímabilið verður hann yngsti meistari sögunnar og tekur þannig við keflinu af einum stærsta undrabarni Counter-Strike.
Framtíðin virðist því björt fyrir MaiL09. Hann hefur þegar sýnt að aldur er engin hindrun þegar hæfileikar, vinnusemi og metnaður mætast á leikvelli sem CS2.
Mynd: FACEIT



