Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Alltaf gaman að horfa á myndböndin hjá strákunum í Draazil en þeir halda úti hressandi og um leið sjokkerandi youtube rás þar sem þeir ræða um tölvuleiki og auðvitað sýna viðbrögð í hryllings tölvuleikjunum og öskra eins og enginn sé morgundagurinn. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá JJ einn af meðlimum Draazil spila hryllingsleikinn Hylophobia.
Yggdrasill leitar nú af vönum íslenskum World of Warcraft (WoW) spilurum til þess að cleara MoP content á næstunni. Yggdrasill er al-íslenskt guild sem langar að cleara allt content í normal og heroic, en þetta kemur fram á Need or seeking guild spjallsvæðinu. Markmiðin eru mjög skýr, spila leikinn, drepa stóra gaura og hafa gaman. Þetta er ekki hardcore guild, heldur bara casual raiding en það væri mjög gaman að geta komist í heroic sem fyrst, þetta og fleiri upplýsingar er hægt að lesa á spjallinu með því að smella hér.
Íslenska StarCraft samfélagið hefur hug á því að halda lanmót í sumar og það í nýja aukapakkanum StarCraft II:Heart of the Swarm (SC2:HotS). Skoðanakönnun er farin í gang á facebook grúppu SC2 samfélagsins og fimmtán spilarar hafa svarað Já um að mæta, tveir ætla ekki mæta og þrettán mæta kannski. Engin dagsetning er komin enda allt á frumstigi en hugað er að halda lanmótið eftir prófin hjá framhaldskólum, HÍ, HR osfr.
Nýi meðlimurinn í herbúðum CCP fer hér með víkingsbræðrum og lærir allt um íslenska hefðir á vetrartímanum, Þorrablótið, næturlífið, spennu, hrylling að borða kæstan hákarl og drekka svarta dauða, sjón er sögu ríkari í nýju myndbandi frá CCP: Mynd: Skjáskot úr myndbandi
Holland náði sínum fyrsta sigur gegn ísland í gærkvöldi í NationsCup XVI Battlefield 3 hjá Clanbasee í 8vs8 Conquest og spilað var í Caspian Border og Grand Baazar. Lineup ICELAND: d0c azorr PBAsydney Dec1ma7ion YaLLaHaBiBi79 MerCurY Fen sh0wd0g Næsti leikur Íslands er á móti Portúgal og keppnisdagur er óákveðin en hann verður á tímabilinu 18. til 25 febrúar 2013. „Því miður þá var þetta tap 🙁 Erfitt að spila með 3 óvana scrimmum, en við ætlum okkur að standa okkur betur næst“ sagði íslenski bf3 landsliðskappinn d0ct0r_who á spjallinu.
Það er alveg á hreinu að sá sem á þessa aðstöðu er ekki í sambandi……, er nett sama um að koma sér í sambúð og síðan er spurning hvort hægt sé að ná sér í kvenmann með þessari glæsilegri aðstöðu?… eða er kvenmaður sem á þess aðstöðu, efast samt eitthvað um það, eða hvað? Miklar vangaveltur 🙂
„Er eins og er að stream-a daglega í League of Legends. Ég er með 2/3 hæstu rating accountanna af Íslendingum í Europe West servernum.“ segir Íslenski LoL spilarinn Hugstar, en hægt er að horfa á twitch.tv hér. Veist þú um aðra íslenska LoL spilara með háa rating?
Þessi skemmtilega mynd gengur nú á milli manna á facebook og sumir vilja segja að þetta séu elite kempurnar í íslenska Counter Strike:Source samfélaginu. Sammála?
Fyrsti leikur íslenska Battlefield 3 landsliðsins verður í kvöld sunnudaginn 3. febrúar klukkan 19:30 (á íslenskum tíma), en þar keppir landsliðið við ungverjaland í NationsCup XVI hjá Clanbase. Nánari upplýsingar hér. Erum við að tala um sigur?
Frá því að Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) var fyrst gefin út í ágúst í fyrra þá var fín spilun hjá íslenska CS:GO leikjasamfélaginu og mátti sjá servera vel sótta. Nú eru einungis tveir íslenskir servera í boði hjá Cobalt og Símanum og þegar litið er á rank á þeim serverum þá sýnir línuritið allt niður á við. Hvert er þitt mat, dauður, lifandi og/eða ekkert varið í hann?
