Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Það er allavegana smá líf í íslenska Css samfélaginu, en nú leita tveir spilarar þeir Frikadeller og Redhawk að Counter Strike:Source clani og eru báðir 19 ára og hafa meðal annars spilað með hinu fræga íslenska clani Shockwave. Nánari upplýsingar um strákana er hægt að lesa á spjallinu með því að smella hér.

Lesa meira

Skráning stendur yfir í Íslenska leikjasamfélaginu Icelandz Elitez [ICEZ], en í dag eru um 25 meðlimir og nóg er að búnaði í herbúðum [ICEZ], TeamSpeak 3 Server, Battlefield 3 server og er hugur í mönnum að fjölga serverum ef áhugi er fyrir höndum.  Í dag spila [ICEZ] aðallega BF3 clan, en meðlimir spila fjölmarga leiki DayZ, Diablo3, Guild Wars 2, Arma3 svo eitthvað sé nefnt. Allar nánari upplýsingar um [ICEZ] er hægt að nálgast á spjallinu með því að smella hér.

Lesa meira

Í október 2011 var tölvuleikurinn Battlefield 3 gefin út og hefur frá því verið einn sá vinsælasti leikur allt til ársins 2013.  Í meðfylgjandi myndbandi sem birt var í morgun eru m.a. hinir þaulreyndu og hönnuðir BF3 Lars Gustavsson og Patrick Bach í viðtali og segja frá því hvernig leikurinn varð til og eftirfylgni á leiknum fram til þessa og framhaldið, Battlefield 4.

Lesa meira

Alltaf gaman að horfa á myndböndin hjá strákunum í Draazil en þeir halda úti hressandi og um leið sjokkerandi youtube rás þar sem þeir ræða um tölvuleiki og auðvitað sýna viðbrögð í hryllings tölvuleikjunum og öskra eins og enginn sé morgundagurinn. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá JJ einn af meðlimum Draazil spila hryllingsleikinn Hylophobia.

Lesa meira

Yggdrasill leitar nú af vönum íslenskum World of Warcraft (WoW) spilurum til þess að cleara MoP content á næstunni.  Yggdrasill er al-íslenskt guild sem langar að cleara allt content í normal og heroic, en þetta kemur fram á Need or seeking guild spjallsvæðinu. Markmiðin eru mjög skýr, spila leikinn, drepa stóra gaura og hafa gaman. Þetta er ekki hardcore guild, heldur bara casual raiding en það væri mjög gaman að geta komist í heroic sem fyrst, þetta og fleiri upplýsingar er hægt að lesa á spjallinu með því að smella hér.

Lesa meira

Íslenska StarCraft samfélagið hefur hug á því að halda lanmót í sumar og það í nýja aukapakkanum StarCraft II:Heart of the Swarm (SC2:HotS).  Skoðanakönnun er farin í gang á facebook grúppu SC2 samfélagsins og fimmtán spilarar hafa svarað Já um að mæta, tveir ætla ekki mæta og þrettán mæta kannski. Engin dagsetning er komin enda allt á frumstigi en hugað er að halda lanmótið eftir prófin hjá framhaldskólum, HÍ, HR osfr.

Lesa meira

Holland náði sínum fyrsta sigur gegn ísland í gærkvöldi í NationsCup XVI Battlefield 3 hjá Clanbasee í 8vs8 Conquest og spilað var í Caspian Border og Grand Baazar. Lineup ICELAND: d0c azorr PBAsydney Dec1ma7ion YaLLaHaBiBi79 MerCurY Fen sh0wd0g Næsti leikur Íslands er á móti Portúgal og keppnisdagur er óákveðin en hann verður á tímabilinu 18. til 25 febrúar 2013. „Því miður þá var þetta tap 🙁 Erfitt að spila með 3 óvana scrimmum, en við ætlum okkur að standa okkur betur næst“ sagði íslenski bf3 landsliðskappinn d0ct0r_who á spjallinu.

Lesa meira