Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Nú styttist í að íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP opni fyrir spilun á nýjustu afurð sinni, fjölspilunarleiknum DUST 514. Sem kunnugt er verður leikurinn aðeins fáanlegur á PlayStation 3 leikjatölvunni og það gjaldfrjálst, en þetta kemur fram á fréttavefnum visir.is. Svokölluð Beta-útgáfa af DUST 514 fer í loftið þann 22. janúar næstkomandi. Síðustu ár hefur CCP unnið að þróun tölvuleiksins en hann markar að mörgu leyti tímamót í leikjasögunni. Síðustu mánuði hefur leikurinn verið í lokaðri spilun, nú er komið að því að hefja opna prufukeyrslu. Á dögunum var DUST 514, sem er fyrstu persónu skotleikur, tengdur við fjölspilunarleik CCP, EVE Online,…

Lesa meira

Strákarnir í Draazil halda úti hressandi og um leið sjokkerandi youtube rás þar sem þeir ræða um tölvuleiki og auðvitað sýna viðbrögð í hryllings tölvuleikjuunum og öskra eins og enginn sé morgundagurinn. Núna hafa þeir sett saman myndband sem er samansafn af bestu hræðsluópunum úr hinum og þessum myndböndum, sjón er sögu ríkari: Facebook síða Draazil

Lesa meira

„Það er orðið fámennt hjá okkur eftir að um 50-60 meðlimum var hent út fyrir að vera inactive“, segir captain Hjorleifsson á spjallinu og ræðir þar um clanið Team Frostbite Iceland sem að íslenska leikjasamfélagsins IceEz gekk til liðs við í nóvember 2012. „Við erum að leita af +18 spilurum sem spila eitthvað á virkum dögum og um helgar [yfirleitt erum við að spila milli ca 19:30 til 00:00], vera með mic fyrir TeamSpeak 3“, þetta og fleiri upplýsingar er hægt að lesa á spjallinu með því að smella hér. Mynd: Skjáskot af meðlimaskrá á heimasíðu teamfrostbite.com

Lesa meira

Úrslitaleikur í Counter Strike:Source online mótinu var haldin í kvöld [7. janúar 2013], en þar kepptu Shockwave vs Ten5ion og keppnisfyrirkomulagið var Bo3.  21 lið voru skráð í mótið sem hófst 18. desember 2012 og þessi skráning kom mörgum á óvart enda ekki búist við svo mörgum liðum í mótið.  Að meðaltali voru um 35 manns sem horfðu á úrslitaleikinn og í kringum 20 css spilarar voru samankomin á mumble að hlusta á ruglið í hverjum öðrum sem kepptust við að setja út á allt og alla, en þó kom hrós inn á milli. Fyrst var mappið Season spilað og…

Lesa meira

Þá er stóra stundin runnin upp en úrslitaleikur hjá liðunum Shockwave og Ten5ion í Counter Strike:Source online mótinu verður í kvöld mánudaginn 7. janúar 2013 klukkan 21°° og keppnisfyrirkomulagið verður alveg eins og var í undanúrslitunum. Lineup hjá Shockwave: SKEVO TMZY CAZT GKR HEJHEJ HUNDENE Lineup hjá Ten5ion: andrehh reynz1 skipid peter Capping Það má vænta hörku úrslitaleik og ekkert verður gefið eftir enda hér um að ræða einum af þeim íslensku elite liðunum. SourceTV er: connect 194.105.226.115:27021 Tölvuvirkni ætlar að gefa vinningsliðinu 10 þúsund í beinhörðum peningum og kunnum við Tölvuvirkni bestu þakkir fyrir.

Lesa meira

Felix sýnir hér skemmtileg random skot úr AK í leiknum Counter Strike 1.6 og eitt ansi nett AK pre shot í Inferno. Þess ber að geta að fjallað var um BF3 myndband sem að Felix gerði sem hægt er að horfa á með því að smella hér. Hvetjum alla þá sem eiga gamalt og gott og/eða nýtt íslenskt leikjamyndband að láta okkur vita, sjá nánari upplýsingar hér.

Lesa meira

Í gærkvöldi endaði meistaramótið Malaysian National Championship í leiknum Heroes of Newerth með sigri Orange eSports og fyrir það fengu þeir 100.000 dollara eða um 13 milljónir íslenskra króna.  Orange eSports liðið var aldrei í neinum vandræðum og engin lið ógnaði þeirra sigurför í mótinu sem endaði eins og áður sagði með sigri þeirra Orange eSports, en í öðru sæti urðu HonPortal og fengu 10 þúsund dollara í verðlaun og í það þriðja lenti liðið MUFC eSports sem fengu í verðlaun 3 þúsund dollara. Mynd af Orange eSports: Team Razer

Lesa meira

Með nýju ári þá er alltaf gott að fara yfir hlutina og sjá hvað má bæta og laga. Breyting á comment kerfi við fréttir Til að byrja með þá hefur ávallt verið hægt að skrifa athugasemdir við fréttir og hefur comment kerfi facebook verið notað frá því að nýi vefurinn fór í loftið í byrjun árs 2012, en ástæðan fyrir því að það kerfi var notað var að notendur töluðu um að þeir hefðu ekki áhuga á að skrá sig og þar sem fjölmargir eru á facebook þá var farið þá leið að hafa facebook comment kerfi.  Nú er eins…

Lesa meira

Nýr íslenskur Zombie server fyrir leikinn Counter Strike:Source hefur verið settur upp.  Það er eSports.is notandinn Sinx sem á veg og vanda að uppsetningu á servernum.  „Það gæti tekið smá stund að downloada öllu zombie stuffinu, en ekkert lengur en 1-2 mín“, segir Sinx á spjallinu um leið og hann kynnti serverinn. Viltu koma einhverju á framfæri? Hvetjum alla til að nota spjallið okkar til að tilkynna og segja frá einhverju skemmtilegu sem er að gerast í íslenska leikjasamfélaginu og við komum til með að vekja athygli á því með að skrifa frétt, tilkynna bæði á twitter og eins á…

Lesa meira

Greint var frá í byrjun árs að eSports.is hefur sett af stað Youtube rás og óskað eftir gömlum og/eða íslenskum gaming myndböndum.  Fjölmargir hafa haft samband við eSports.is og gefið leyfi á að birta myndböndin sín sem verða birt hér á næstu dögum og vikum. Fyrstu í röðinni er spilarinn Bunzi í League of legends og eins með nickið Litla í leiknum World of Warcraft, en hann sýnir hér snilldar takta í leikjunum og fyrsta myndbandið ( League of legends ) hér að neðan náði ágætum vinsældum á reddit og þar fyrir neðan eru myndbönd í leiknum World of Warcraft…

Lesa meira