Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Margir utan Bandaríkjanna hafa tekið eftir undarlegu mynstri í nýja Battlefield 6. Flestir spilarar sjá það ekki strax, en vandamálið í Battlefield 6 byrjar um kl. 17:00 ET, eða um kl. 21:00 á íslenskum tíma, þá virðist vígvöllurinn tæmast og í staðinn taka bottar við. Frá DICE hefur þó ekkert heyrst. Fyrir leikmenn í Asíu og Evrópu hefur þetta orðið daglegur viðburður. Um leið og tíminn rennur fram hjá 21:00 tæmist serverinn og kerfið fer að búa til „bot lobbies“ í stað þess að para saman virka notendur. Það sem verra er: að yfirgefa slíka lobbý og reyna aftur skilar…
Gametíví trákarnir leggja í hann í kvöld kl. 20 og keyra af stað í leiknum RV There Yet? í beinni á www.twitch.tv/gametiviis Leikurinn er sjarmerandi leikur í teiknimyndastíl þar sem leikmenn reyna að halda ferðabílnum sínum gangandi um leið og þeir kljást við lífshættulega brattar brekkur og spurninguna sem allir ferðalangar kannast við: „Are we there yet?“ GameTíví strákarnir taka á móti áhorfendum með sínum kunnuglega húmor og smitandi nördaorku, og ef marka má fyrri streymi er ólíklegt að ferðin fari áfallalaust fram. Það verður keyrt, hlegið og líklega sprengt eitthvað á leiðinni, en alltaf með bros á vör.
Leikjaáhugamenn geta stillt á Gametíví í kvöld, sunnudaginn klukkan 20, þegar Plortedo heldur af stað í nýja geimævintýrið The Outer Worlds 2. Streymt verður beint á twitch.tv/gametiviis þar sem áhorfendur fá að fylgjast með Plortedo kafa ofan í undarlega, kaldhæðna og háglansandi veröld Obsidian Entertainment. Fyrsti leikurinn hlaut lof fyrir beitta samfélagsádeilu og gamansama sögu, og ef marka má fyrstu myndbrot úr framhaldinu er The Outer Worlds 2 jafn súrrealískur og hann er stór. Plortedo ætlar að kanna hversu langt hægt er að fara áður en alheimurinn hrynur, hvort nýr NPC reynist betri félagi en hnífur í magann, og hvort…
Næsta kynslóð Xbox verður „Lúxus og háklassa upplifun“ að sögn Sarah Bond, forseta Xbox, sem ræddi framtíð leikjatölvunnar í viðtali á YouTube-rás Mashable. https://www.youtube.com/watch?v=yDmwJ7tuoD8 Sarah lýsti nýju leikjatölvunni sem vandlega mótaðri upplifun í hæsta gæðaflokki og gaf í skyn að Microsoft sé að þróa tæki sem brúar bilið milli hefðbundinnar leikjatölvu og öflugrar leikjavélar á borð við háklassa PC. „Þú hefur rétt fyrir þér að næsta kynslóð Xbox verður mjög lúxus, mjög háklassa og vandlega hönnuð upplifun,“ sagði Sarah. „Þú sérð þegar ákveðna hugsun hjá okkur í [ASUS ROG Xbox Ally] handtölvunni, en ég vil ekki gefa of mikið upp…
Eftir langan tíma í leynd og dulúð hefur íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress loks stigið fram og afhjúpað næsta kafla í sinni einkennilegu og kaldhæðnu sýn á lífið sjálft. Leikurinn Walk of Life er kominn út í Early Access á Steam, og býður upp á hressan og háðslegan leik þar sem lífið sjálft verður að keppni, þar sem spilarar keppast um að finna sér vinnu, ljúka námi, borga leigu og halda haus, áður en allt fer í kaldakol. Leikurinn er hannaður bæði fyrir þá sem vilja slást í för við vini í stofunni og þá sem kjósa að glíma við lífið…
Þrýstingur um aukinn hagnað hjá Microsoft setur Xbox í uppnám: Starfslok, verðhækkanir og hætt við væntanlega leiki
Ný skýrsla frá Bloomberg greinir frá því að Microsoft hafi sett Xbox-deild fyrirtækisins undir þrýsting um aukinn hagnað, með markmið um 30 prósenta framlegð, langt yfir meðaltali í leikjaiðnaðinum. Slíkt markmið hefur, samkvæmt heimildum, haft víðtæk áhrif innan fyrirtækisins og leitt til uppsagna, hækkunar á verði og jafnvel niðurfellingar stærri leikjaverkefna, þar á meðal væntanlegs titils eins og Perfect Dark. https://www.youtube.com/watch?v=ofUi9DR9sc4 Bloomberg bendir á að svo há framlegð sé óvenjuleg, nema hjá fyrirtækjum sem ganga sérlega vel. Frá árinu 2018 hefur meðalhagnaður í leikjaiðnaðinum samkvæmt gögnum S&P Global Market Intelligence náð hæst 22,1 prósenti árið 2020, en hefur síðan lækkað…
Valve hefur gefið út nýja uppfærslu í Counter-Strike 2 sem hefur hrist upp í bæði leiknum og markaðnum í kringum hann. Nýja viðbótin við Trade Up Contract kerfið gerir leikmönnum nú kleift að skipta fimm Covert vopnum í einn hníf eða hanska. Hljómar saklaust, en þessi einfalda breyting setur af stað fjármálahrun í skins hagkerfi leiksins. Samkvæmt Pricempire lækkaði markaðsvirði Counter-Strike-skinna um meira en tvo milljarða dollara á örfáum klukkustundum, þar sem ein dýrasta eign leikmanna breyttist í skraut án sérstöðu. Samfélagsmiðlar loga af viðbrögðum. Sumir fagna breytingunni og segja að Valve hafi „endurfært hnífinn til fólksins“, en aðrir gráta…
Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn setti nýjan gæðastaðal fyrir rafíþróttir á Skjálfta – Viðtal
Helgina 26. til 28. september varð íþróttahúsið í Digranesi vettvangur stærsta rafíþróttaviðburðar ársins, Skjálfta 2025. Þar komu saman hundruð keppendur úr öllum áttum, tæknifólks og áhorfenda í þriggja daga leikveislu sem sameinaði keppni, samvinnu og hreina nördaorku undir einu þaki. Helgin var full af viðureignum, verðlaunum og gleði. Björn Gíslason hlaut Hvatningarverðlaun Rafíþróttasambands Íslands, Neisti frá Drangsnesi var valinn með bestu treyjurnar, Nikulás fékk verðlaun fyrir besta uppsetningu, B2B sigraði í Apex Legends, Juce Kid vann í Smash Bros. Ultimate, Athyr í Smash Bros. Melee og Alex í Guilty Gear Strive. Meðal eftirminnilegustu atvika helgarinnar voru tveir sérstakir sýningarleikir. Í…
Bókmenntahátíðin Iceland Noir snýr aftur í nóvember 2025 og það með glæsibrag. Á meðal aðalgesta verður enginn annar en George R.R. Martin, höfundur „A Song of Ice and Fire“ heimsins sem Game of Thrones spratt úr og hefur nýlega fært sagnalist sína yfir í leikjaheiminn með Elden Ring. Hátíðin fer fram í hjarta Reykjavíkur dagana 12. til 15. nóvember, þegar svartasta skammdegið hefur tekið yfir. Þá sameinast rithöfundar, leikjahönnuðir, kvikmyndagerðarmenn og sögumenn úr öllum áttum í því sem skipuleggjendur lýsa sem „hátíð sköpunar í myrkri“. Iceland Noir var stofnuð árið 2013 af Ragnari Jónassyni og Yrsu Sigurðardóttur, upphaflega sem vettvangur…
Battlefield 6 hefur slegið rækilega í gegn og sett nýtt met fyrir seríuna. Að sögn Electronic Arts hefur leikurinn selst í yfir sjö milljónum eintaka á fyrstu þremur dögunum frá útgáfu, þann 10. október 2025. Aldrei áður hefur Battlefield-leikur náð jafn hraðri útbreiðslu, og segja forsvarsmenn EA að þetta sé aðeins upphafið á stærra ævintýri í sögu seríunnar. Samkvæmt tölum frá útgefandanum voru spilaðir rúmlega 172 milljónir leikja á netinu fyrstu þrjá dagana, og áhorf á Battlefield 6 efni fór yfir 15 milljón klukkustundir á streymisveitum. Þetta er met bæði í virkni og sýnileika, og setur leikinn í hóp mest…
