Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Aðeins sterkustu lifa af þegar GameTíVí fer í loftið með Battlefield 6 í beinni útsendingu, nú á föstudagskvöldið 10. október klukkan 21:00 á twitch.tv/gametiviis. Streymið verður ekki aðeins tileinkað hernaðarbrjálæði og samstarfi, heldur markar kvöldið líka útgáfudag leiksins sjálfs, sem kemur formlega út sama dag á PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC. Strákarnir ætla að sökkva sér í háspennu bardaga, springjuregn og kaótískt samstarf þar sem ekkert er heilagt, hvorki jeppar, þyrlur né viðkvæm sálfræði herforingjanna. Eins og venjulega verður streymið kryddað með húmor, óvæntum atvikum og óhóflegu magni adrenalíns. Battlefield 6 hefur þegar vakið mikla athygli fyrir raunsæi,…

Lesa meira

Nintendo heldur áfram hörðu átaki gegn leikjaræningjum og hefur nú lagt fram 4,5 milljóna dollara skaðabótakröfu á hendur manni sem gengur undir nafninu „Archbox“. Maðurinn starfaði sem stjórnandi á Reddit-samfélagi sem helgað er dreifingu ólöglegra Switch-leikja. Samkvæmt kærunni saka Nintendo hinn ákærða, sem heitir Williams í raun, um að hafa rekið og stutt við vörslu og dreifingu leikja þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og formlega viðvörunarseðla um að hætta starfseminni. Í kæru fyrirtækisins kemur fram að Archbox hafi nýtt Reddit til að kynna starfsemi sína og tengja notendur við netsíður þar sem boðið var upp á ROM-skrár og önnur gögn sem…

Lesa meira

Íslandsmeistaramót í FC 26 fór fram nú á dögunum á vegum Fotbolti.net, GameTíví og Arena Gaming Smáratorgi. Mótið var opið öllum aldurshópum og spilað á PlayStation 5, þar sem leikmenn mættust í þriggja leikja riðlakeppni áður en stigahæstu keppendurnir tryggðu sér sæti í útsláttarkeppni. Meðal keppenda í riðli G voru Aron Þormar Lárusson, Alexander Aron Hannesson, Tindur og Olgeir. Aron sigldi toppsætinu í höfn með tveimur sigrum og einu jafntefli, samtals sjö stig, og tryggði sér þar með efsta sætið í riðlinum. Alexander fylgdi fast á hæla hans með sex stig og fór einnig áfram í útsláttarkeppnina, á meðan Tindur…

Lesa meira

Það verður sannkölluð blanda af myrkri og meistaratöktum í kvöld þegar GameTíví fer í beina útsendingu klukkan 20:00 á twitch.tv/gametiviis. Að þessu sinni spila strákarnir tvo glænýja titla sem hafa vakið mikla athygli í leikjaheiminum: Silent Hill f og Ghost of Yōtei. Í hinum dularfulla og hryllilega heimi Silent Hill f er von á köldum svita og taugatrekki þegar gamli góði japanski hrollurinn gerir endurkomu. Þeir sem kjósa að halda sig nær sverðinu en skugganum fá sitt í Ghost of Yōtei, þar sem samúræjar, heiður og himinblár snjór mætast í stórbrotnum bardögum og útsýni beint úr listaverki. Að auki verða…

Lesa meira

ESL hefur tilkynnt að Impact Women’s League, ein stærsta kvennadeild heims í Counter-Strike, verði lögð niður að loknu áttunda tímabili mótsins. Samkvæmt yfirlýsingu frá fyrirtækinu er ástæðan einföld: reksturinn hefur ekki staðið undir sér. Netleikir þessa tímabils standa nú yfir, en lokaúrslitin fara fram um miðjan nóvember á DreamHack Winter í Stokkhólmi. Þar rennur lokakaflinn upp í sögu keppni sem hefur verið burðarás kvenna í Counter-Strike um árabil. The future of ESL Impact: pic.twitter.com/nul6ReGGo0 — ESL Impact (@ESLImpact) October 3, 2025 Óraunhæfur rekstur Í tilkynningu ESL kemur fram að þrátt fyrir mikinn metnað og fjárfestingu hafi mótið ekki skapað sjálfbæran…

Lesa meira

Óvænt tíðindi komu upp í ESL Pro League þegar FaZe Clan dró sig úr leik gegn G2 Esports í seinni hluta mótsins. Tilkynningin barst aðeins fáum klukkustundum áður en leikurinn átti að hefjast og vakti þegar mikla athygli innan Counter-Strike samfélagsins. Á vef hltv.org kemur fram að ágreiningur reis milli FaZe og mótshaldara um hvaða leikmenn liðið mætti nýta í keppninni. FaZe hafði í hyggju að gera breytingu á liðsuppstillingu sinni og setja Twistzz inn í stað rain, en samkvæmt reglum ESL verður lið sem fær boð í mótið að halda lágmarki þriggja leikmanna úr upprunalegum hópi sem tryggði þátttökuréttinn.…

Lesa meira

Það er nóg um að vera hjá Dusty, einu fremsta rafíþróttafélagi landsins, sem nú hefur fengið sitt eigið heimili á eSports.is. Nýja undirsíðan veitir áhorfendum og stuðningsfólki innsýn í starfsemi félagsins, leikmenn þess og afrek. Þar má finna upplýsingar um liðin, myndir og tengla á samfélagsmiðla, auk yfirlits yfir helstu afrek liðsins í keppnum. Esports.is býður öllum íslenskum rafíþróttaklönum og liðum að fá slíka undirsíðu að kostnaðarlausu, þar sem þau geta kynnt sig á faglegan hátt og byggt upp tengingu við íslenskt samfélag rafíþrótta. Dusty hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð rafíþróttafélaga á Norðurlöndum og hefur markað…

Lesa meira

Hápunktur Skjálfta 2025 reyndist úrslitaleikurinn í Counter-Strike þar sem tvö lið í fremstu röð sögðu til sín með háspennuleik.  Dusty og SAGA leiddu saman hesta sína í leik sem var svo spennandi að salurinn titraði í takt við hverja lotu, þar sem ekkert var gefið eftir og hver umferð skrifaði nýjan kafla í sögu íslenskra rafíþrótta. Dusty sýndi áhorfendum hvers vegna nafnið þeirra hefur lengi verið samnefnari fyrir stöðugleika og yfirburði. Með nákvæmri ákvarðanatöku og járnvilja sigldu þeir leiknum í höfn og tryggðu sér titilinn Skjálftameistarar 2025. Sigurlið Dusty skipuðu: PANDAZ – Ásmundur Viggósson peter – Pétur Örn Helgason RavlE -…

Lesa meira

Þegar stemningin náði hámarki í aðalsalnum á Skjálfta 2025 birtist enn einn viðburður sem sýndi á einlægan hátt fjölbreytileika og þrótt íslensks rafíþróttalífs. Að þessu sinni var ekki keppt um stig eða titla, heldur var boðið upp á hreina og klára skemmtun í formi sýningarleikja milli efstu liða í tveimur sterkustu deildum landsins. Í Counter-Strike mættust tvö fremstu lið Ljósleiðaradeildarinnar, þar sem Dusty sýndi að gamla þrautsegjan er enn í fullu gildi. Með útsjónarsemi og óbilandi yfirvegun tókst liðinu að leggja andstæðingana að velli. Á sama tíma var KIA-deildin í League of Legends ekki láta sitt eftir liggja. Þar tókust…

Lesa meira

Á Skjálfta var stigið inn í heim hins sígilda bardagaleiks Guilty Gear Strive, þar sem hver rammi skiptir máli og eitt kombó getur ráðið öllu.  Að þessu sinni reyndist enginn eiga roð í Alex Örn Hrólfsson, sem tryggði sér fyrsta sætið eftir æsispennandi viðureignir. Guilty Gear Strive er leikur sem hefur um árabil notið vinsælda meðal ástríðufullra bardagaspilara um heim allan, en hann er þekktur fyrir að blanda saman öfgafullum hasar, háu tempói og listilega hönnuðum persónum sem hver um sig krefst nákvæmrar leikni. Það var ekkert „neutral“, bara hreint setplay frá upphafi til enda. Alex Örn sýndi bæði seiglu…

Lesa meira