Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Hvaða lið komast í Íslandsmeistaramótið? – Spennan nær hámarki í lokaumferð GameTíVí PUBG deildarinnar
Núna fer spennan að færast upp í hámark í GameTíVí PUBG deildinni þar sem liðin eru farin að berjast um hvert einasta stig. Þriðja mótið af fjórum fór fram um helgina og var ekki fyrir hjartveika. Eftir fjóra hraða og taktíska leiki var það lið Omni sem steig upp úr rykmekkinum og tryggði sér fyrsta sætið með glæsibrag. Keppnin fór fram á hinum fjórum klassísku kortum Rondo, Taego, Miramar og Erangel. Keppnin er hvergi nærri búin og hvert stig skiptir máli þegar síðasta mótið fer fram. Það verður 2. nóvember 2025 kl. 20:00, og þá verða spilaðir sex leikir sem…
Það eru margar leiðir til að sýna stuðning við viðburð, en 29 ára gamli leikmaðurinn Sigurður Grétar, betur þekktur undir nickinu Steypa, ákvað að ganga alla leið. Hann lét flúra á sig Skjálfta táknið á meðan LANmótið stóð sem hæst. „Mig langar að kenna og þakka artistanum fyrir að vera bæði góður sölumaður og enn betri flúrari,“ segir Steypa í samtali við esports.is með bros á vör. „En þetta var í raun sameiginleg hugmynd frá okkur strákunum, flúraranum og Atla hjá RÍSÍ.“ Þetta var fyrsti Skjálftinn sem Steypa tók þátt í, en hann segist þegar finna að viðburðurinn hafi sérstakan…
Kínverska liðið Lynn Vision, sem hefur verið annað sterkasta lið landsins á alþjóðavettvangi í Counter-Strike 2, hefur verið bannað frá næsta Tier 1-móti ESL eftir að það dró sig úr ESL Pro League Season 22 vegna vegabréfs erfiðleika. Samkvæmt reglum ESL teljast slíkar aðstæður yfirleitt til „óviðráðanlegra atvika“ ef lið geta sýnt fram á að umsóknir hafi verið hafnað vegna aðstæðna sem liðið gat ekki stjórnað. En í tilviki Lynn Vision var það ekki raunin, að vþí er fram kemur á hltv.com. Liðið hafði ítrekað staðfest við ESL að öll ferðaskjöl væru í lagi, en þegar á reyndi kom í…
Það er fátt meira hættulegt í leikjaheiminum en að fylgja í fótspor sígilds meistaraverks, en Ghost of Yōtei tekst það með ótrúlegum glæsibrag. Þar sem forverinn Ghost of Tsushima markaði tímamót fyrir aðdáendur bardagalist samúræja, tekst nýja ævintýrinu ekki aðeins að standast samanburðinn, heldur ganga enn lengra. Í leiknum fylgjum við Atsu, ungri konu sem lifði af þegar hópur grimmdarfullra manna, Yōtei Six, slátraði fjölskyldu hennar á nyrstu eyju Japans, Ezo. Sextán árum síðar er hún snúin aftur, herjuð af minningum og með sverð föður síns að vopni, staðráðin í að hefna þeirra sem sviptu hana öllu sem hún átti.…
Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) leitar að öflugum og skipulögðum mótastjóra sem hefur brennandi áhuga á rafíþróttum og skipulagi. Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) er leiðandi í þróun rafíþrótta á Íslandi. Við vinnum með 26 aðildarfélögum sem sinna æskulýðsstarfi fyrir börn og ungmenni um land allt og sjáum um skipulagningu móta og viðburða í rafíþróttum. Helstu verkefni og ábyrgð: Skipulagning og framkvæmd á rafíþróttamótum og öðrum tengdum viðburðum Samskipti við þátttakendur, félög og samstarfsaðila vegna móta Gerð og viðhald mótaskipulags og keppnisreglna Yfirsýn yfir kynningu og skráningu rafíþróttamóta sambandsins Eftirfylgni með gæðum og árangri viðburða Samskipti við styrktaraðila og mótastjórnir sambandsins Hæfniskröfur: Reynsla af…
Aðeins sterkustu lifa af þegar GameTíVí fer í loftið með Battlefield 6 í beinni útsendingu, nú á föstudagskvöldið 10. október klukkan 21:00 á twitch.tv/gametiviis. Streymið verður ekki aðeins tileinkað hernaðarbrjálæði og samstarfi, heldur markar kvöldið líka útgáfudag leiksins sjálfs, sem kemur formlega út sama dag á PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC. Strákarnir ætla að sökkva sér í háspennu bardaga, springjuregn og kaótískt samstarf þar sem ekkert er heilagt, hvorki jeppar, þyrlur né viðkvæm sálfræði herforingjanna. Eins og venjulega verður streymið kryddað með húmor, óvæntum atvikum og óhóflegu magni adrenalíns. Battlefield 6 hefur þegar vakið mikla athygli fyrir raunsæi,…
Nintendo krefst 4,5 milljóna dollara af Reddit-stjórnanda vegna ólöglegrar dreifingar Switch-leikja
Nintendo heldur áfram hörðu átaki gegn leikjaræningjum og hefur nú lagt fram 4,5 milljóna dollara skaðabótakröfu á hendur manni sem gengur undir nafninu „Archbox“. Maðurinn starfaði sem stjórnandi á Reddit-samfélagi sem helgað er dreifingu ólöglegra Switch-leikja. Samkvæmt kærunni saka Nintendo hinn ákærða, sem heitir Williams í raun, um að hafa rekið og stutt við vörslu og dreifingu leikja þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og formlega viðvörunarseðla um að hætta starfseminni. Í kæru fyrirtækisins kemur fram að Archbox hafi nýtt Reddit til að kynna starfsemi sína og tengja notendur við netsíður þar sem boðið var upp á ROM-skrár og önnur gögn sem…
Íslandsmeistaramót í FC 26 fór fram nú á dögunum á vegum Fotbolti.net, GameTíví og Arena Gaming Smáratorgi. Mótið var opið öllum aldurshópum og spilað á PlayStation 5, þar sem leikmenn mættust í þriggja leikja riðlakeppni áður en stigahæstu keppendurnir tryggðu sér sæti í útsláttarkeppni. Meðal keppenda í riðli G voru Aron Þormar Lárusson, Alexander Aron Hannesson, Tindur og Olgeir. Aron sigldi toppsætinu í höfn með tveimur sigrum og einu jafntefli, samtals sjö stig, og tryggði sér þar með efsta sætið í riðlinum. Alexander fylgdi fast á hæla hans með sex stig og fór einnig áfram í útsláttarkeppnina, á meðan Tindur…
Það verður sannkölluð blanda af myrkri og meistaratöktum í kvöld þegar GameTíví fer í beina útsendingu klukkan 20:00 á twitch.tv/gametiviis. Að þessu sinni spila strákarnir tvo glænýja titla sem hafa vakið mikla athygli í leikjaheiminum: Silent Hill f og Ghost of Yōtei. Í hinum dularfulla og hryllilega heimi Silent Hill f er von á köldum svita og taugatrekki þegar gamli góði japanski hrollurinn gerir endurkomu. Þeir sem kjósa að halda sig nær sverðinu en skugganum fá sitt í Ghost of Yōtei, þar sem samúræjar, heiður og himinblár snjór mætast í stórbrotnum bardögum og útsýni beint úr listaverki. Að auki verða…
ESL hefur tilkynnt að Impact Women’s League, ein stærsta kvennadeild heims í Counter-Strike, verði lögð niður að loknu áttunda tímabili mótsins. Samkvæmt yfirlýsingu frá fyrirtækinu er ástæðan einföld: reksturinn hefur ekki staðið undir sér. Netleikir þessa tímabils standa nú yfir, en lokaúrslitin fara fram um miðjan nóvember á DreamHack Winter í Stokkhólmi. Þar rennur lokakaflinn upp í sögu keppni sem hefur verið burðarás kvenna í Counter-Strike um árabil. The future of ESL Impact: pic.twitter.com/nul6ReGGo0 — ESL Impact (@ESLImpact) October 3, 2025 Óraunhæfur rekstur Í tilkynningu ESL kemur fram að þrátt fyrir mikinn metnað og fjárfestingu hafi mótið ekki skapað sjálfbæran…
