Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Esports.is býður nú öllum klönum og liðum að eignast sitt eigið heimili á vefnum. Um er að ræða sérstaka undirsíðu þar sem helstu upplýsingar um liðið verða aðgengilegar, allt frá leikmönnum og myndum til tengla á samfélagsmiðla og helstu afrekum. Þetta er kjörið tækifæri fyrir lið sem vilja styrkja ímynd sína, verða sýnilegri í samfélaginu og eiga sér formlegt vefsvæði innan stærsta miðils landsins um rafíþróttir. Sem dæmi má nefna að Oldies Samsteypan hefur þegar fengið sér undirsíðu, sem má skoða hér: Oldies Samsteypan Lið sem hafa áhuga geta sent inn umsókn á netfangið [email protected] Þar nægir að gefa upp…
Það verður sannkölluð Borderlands 4 veisla í GameTíví í kvöld þegar streymið hefst klukkan 20. Þar verður ekki aðeins tekið forskot á sæluna í einum stærsta skotleik ársins heldur bíður áhorfendum fjölbreytt dagskrá með leikjum, gjöfum og léttu spjalli. Í beinni útsendingu verður gefið út nokkur eintök af Borderlands 4, þannig að heppnir áhorfendur geta tryggt sér leikinn. Í Fantasy-hlutanum verður rifjað upp hvernig spilarar hafa mótað lið sín og hvort breytingar hafi skilað árangri, pakkar opnaðir ofl. Á dagskránni er líka yfirferð á helstu fréttum vikunnar úr leikja- og rafíþróttaheiminum, þannig að kvöldið lofar góðri blöndu af hasar, nördalegum…
Bandaríska rafíþróttaliðið NRG er nýkrýndur heimsmeistari í Rocket League eftir glæsilegan sigur á RLCS World Championship 2025 sem fram fór í LDLC Arena í Lyon, Frakklandi. Þar höfðu þeir betur gegn Team Falcons í úrslitaleiknum með yfirburðatölunum 4–1. Sem efsta liðið frá Norður-Ameríku mætti NRG til leiks með háar væntingar, en fáir höfðu þó gert ráð fyrir því að þeir myndu keyra í gegnum mótið með jafn afgerandi hætti. Fyrsti leikur þeirra var þrunginn spennu, þar sem þeir lögðu Ninjas in Pyjamas 3–2, áður en þeir tryggðu sér öruggan sigur 3–1 á Team Secret og fögnuðu því sæti í úrslitakeppninni.…
Sunnudaginn 21. september verður stigið á svið í öðru móti af fjórum í GameTíví deildinni í tölveiknum PUBG: Battlegrounds. Skráning er þegar hafin og stefnan er sett á fjölmennara mót, fleiri lið og meira fjör en í upphafsmótinu. Það er heldur ekki of seint fyrir ný lið að stökkva inn í slaginn núna, því enn er nægur fjöldi stiga í boði til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Deildarkeppnarkvöldin eru fjögur talsins, þar sem hvert kvöld býður upp á sex leiki: 21. september (kl. 20:00 – 6 leikir) 12. október (kl. 20:00 – 6 leikir) 02. nóvember (kl. 20:00 –…
Auðkýfingurinn Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX, átti nýlega samtal við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP Games, um mögulegt samstarf. Musk greindi frá þessu sjálfur á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann sagði að samræðurnar hefðu meðal annars snúist um gerð gervigreindartölvuleiks. Í orðsendingu frá CCP til mbl.is er staðfest að fundur hafi farið fram, en fyrirtækið heldur spilunum þétt að sér. Þar kemur fram að Hilmar og Musk hafi rætt saman um þá möguleika sem gervigreindin býður upp á, og að CCP sé ávallt opið fyrir nýjum tæknilausnum sem geti styrkt sköpun og þróun innan leikjaiðnaðarins. Also had a good…
Þegar litið er á lista yfir söluhæstu leiki á PlayStation er óhjákvæmilegt að taka eftir því hversu ráðandi ákveðin titlar eru. Ný gögn sýna að Grand Theft Auto V og Minecraft sitja í efstu sætunum, og staðfesta þannig stöðu sína sem einir vinsælustu tölvuleikir allra tíma á PlayStation. Á eftir fylgja vinsælar Call of Duty útgáfur sem mynda verulega þéttan kjarna í sölutoppi leikjatölunnar. Hvort sem um er að ræða Modern Warfare eða Black Ops undirstrikar listinn að þessi leikjasería hefur í raun tryggt sér fastan sess í hugum spilara ár eftir ár. Ekki má heldur gleyma Red Dead Redemption…
Pete Hines, fyrrverandi yfirmaður Bethesda og einn reyndasti talsmaður leikjaiðnaðarins, hefur varpað fram áleitnum spurningum um framtíð áskriftarþjónusta á borð við Xbox Game Pass. Í nýlegu viðtali við dbltap.com sagði hann að slíkar leiðir gætu ekki talist sjálfbærar nema tryggt væri að þau sem þróa leikina fengju sanngjarna umbun og viðurkenningu fyrir vinnuna. Hines sat á fremstu víglínu þegar Bethesda var keypt af Microsoft árið 2021 fyrir rúmlega sjö milljarða bandaríkjadala. Hann segir að samstarfið hafi upphaflega virst eðlilegt, enda hafi Bethesda átt langa sögu með Xbox allt frá útgáfu The Elder Scrolls III: Morrowind á Xbox árið 2002. Fljótlega…
Team Fortress 2 heldur áfram að blása lífi í keppnislífið með glænýju tímabili í vinsæla 2v2-keppnisfyrirkomulagi MGE.tf. Í ár er stigið stórt skref þar sem Norður-Ameríka tekur þátt í fyrsta sinn með sínu eigin tímabili (Season 1 NA), samhliða öðru tímabili Evrópu (Season 2 EU). Keppnin hefst með átta vikna deild þar sem lið mætast í stuttum en krefjandi viðureignum. Að loknu tímabilinu taka úrslitin við, þar sem sigurvegarar hljóta vegleg verðlaunafé. Skráningar eru þegar hafnar og standa til 19. september, þannig að leikmenn hafa ekki mikinn tíma til að tryggja sér sæti í þessari keppni. Hvort sem þú ert…
Krónprinsinn Múhameð bin Salman, stundum kallaður MbS, hefur verið skipaður formaður stjórnarnefndar Esports World Cup Foundation til næstu þriggja ára. Í tilkynningu kemur fram að ákvörðunin var tekin á ríkisstjórnarfundi í Riyadh nú á dögunum og undirstrikar vaxandi áhrif Sádí-Arabíu í alþjóðlegu rafíþróttaumhverfi. Stofnunin hefur haldið því fram að hún sé sjálfstæð í rekstri þrátt fyrir fjárstuðning frá Public Investment Fund. Skipun krónprinsins dregur þó í efa aðskilnaðinn, enda situr hann jafnframt í forsvari fyrir Savvy Games Group sem er í eigu sama sjóðs. Savvy Games Group á meðal annars ESL FACEIT Group og heldur utan um stærstu mót heims…
CCP Games býður nú íslenskum spilurum að stíga inn í nýjasta heim fyrirtækisins þegar EVE Vanguard verður kynnt í sérstökum viðburði þann 18. September og hefst klukkan 19. Um er að ræða nýjan skotleik í þróun hjá CCP og verður þetta einstakt tækifæri til að prófa leikinn í fyrsta sinn. Viðburðurinn, sem fer fram í samstarfi við GameTíví, Nörd norðursins og Leikjaspjallið, ber heitið EVE Vanguard Nemesis og verður leikurinn settur upp í öllum tölvum Arena Gaming. Þátttakendur geta því stokkið beint inn í hasarinn án endurgjalds og upplifað nýja vídd í skotleikjaflórunni. Starfsmenn CCP Games verða á staðnum, taka…
