Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Atari hefur keypt útgáfurétt að fimm þekktum leikjum frá Ubisoft. Um er að ræða Cold Fear, Child of Eden, I Am Alive, Grow Home og Grow Up. Markmiðið er að endurvekja leikina fyrir nýja kynslóð spilara og koma þeim á nútíma leikjavélar. Wade Rosen forstjóri Atari sagði að fyrirtækið og Ubisoft ættu sameiginlegt markmið um að skapa heima sem spilarar tengja við. Hann bætti við að bæði endurútgáfur og nýjar útgáfur væru í kortunum. Lesið nánar um kaupin á vefnum psfrettir.com. Mynd: Steam

Lesa meira

Mótið í Icelandic PUBG League (IPL) hefst í kvöld, 31. ágúst klukkan 20:00, þar sem 18 lið munu mæta til leiks í spennandi PUBG keppni. Þetta er fyrsta mótið af fjórum í nýrri GameTíVí-deild og hefur vakið mikla athygli fyrir spennandi vetrarvertíð sem fer í hönd. Mótið mun hefjast með sex spennandi leikjum í kvöld, þar sem verðlaun verða veitt fyrir hvert mót, þar á meðal Elko gjafabréf, PlayStation LED lampa, bíómiða og margt fleira. Verðlaun fyrir þá sem koma í fyrsta, annað og þriðja sæti: Fyrsta sætið: Elko gjafabréf SUPE Deskmat, stórar músamottur PlayStation LED lampi Annað sætið: 2…

Lesa meira

Ljósleiðaradeildin í Counter-Strike 2, ein af stærstu reglulegu keppnum landsins, heldur áfram í september með fjölda spennandi viðureigna. Liðin munu berjast um hvert einasta stig í átt að úrslitakeppninni þar sem aðeins sterkustu liðin standa eftir. Í ár verða sex deildir í keppninni þar sem leikið verður í Round Robin kerfi áður en úrslitin ráðast í play-off.  Sem viðbót við mótið sjálft verður boðið upp á sýningarleik milli tveggja efstu liðanna á Skjálfta í lok september. Útsendingar verða í beinni á RÍSÍ TV, þar sem fylgst verður með öllum leikjum auk umfjöllunar í kringum mótið. Tímabil deildarinnar spannar frá 2.…

Lesa meira

Eftir sumarhlé er GameTíví komið aftur í beinar útsendingar og hefst fyrsta þátturinn á mánudagskvöld (1. ágúst) klukkan 20:00 á twitch.tv/gametiviis. Þar taka strákarnir forskot á haustinu með fjölbreyttri dagskrá sem lofar bæði spennu og fjöri. Aðalviðfangsefnið að þessu sinni er hinn nýi og listræni ævintýraleikur PEAK, þar sem hópurinn ætlar að klífa saman á toppinn. Í beinni útsendingu verður einnig dregið út eintak af íslenska leiknum Echoes of the End. Þátturinn verður ekki aðeins bundinn við spilun heldur er á dagskrá: Fréttir vikunnar úr leikja- og rafíþróttaheiminum Hið sívinsæla Fótboltahorn Yfirlit yfir ferð Óla og Dóa á Gamescom í…

Lesa meira

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) hefur tilkynnt nýja Fortnite-keppni sem hefst sunnudaginn 1. september. Um er að ræða einstaklingskeppni þar sem allt að 100 spilurum gefst kostur á að skrá sig til leiks. Keppnin stendur yfir í sjö vikur og fer fram í svokölluðu Swiss-fyrirkomulagi. Að því loknu taka við opin úrslit þar sem spilarar etja kappi um lokasigurinn. Úrslitin fara fram 22. nóvember og verður þar stigið lokaskrefið í þessari metnaðarfullu keppni. Með mótinu heldur RÍSÍ áfram að efla íslenskt rafíþróttalíf með reglulegum viðburðum sem veita spilurum tækifæri til að spreyta sig á alþjóðlega vinsælum leik. Mynd: fortnite.com

Lesa meira

ESL hefur opinberað liðalista fyrir IEM Chengdu 2025 sem fram fer í Kína dagana 3. til 9. nóvember. Þar mætast sextán af sterkustu liðum heims í Counter-Strike á einu síðasta stórmóti ársins. Eftirfarandi lið hafa tryggt sér sæti á mótinu: FaZe Clan Natus Vincere (NAVI) Astralis MOUZ Team Falcons F2 Esports Lynn Vision 3DMAX HEROIC Virtus.pro Team Spirit Team Vitality FURIA Esports pAIN Gaming The MongolZ TYLOO Í tilkynningu frá ESL kemur fram að keppnin hefst með riðlakeppni sem leikinn verður í tvöföldu útsláttarfyrirkomulagi (BO3) dagana 3. til 6. nóvember. Sex bestu liðin halda svo áfram í úrslitakeppni sem fram…

Lesa meira

GTSIceland (rafíþróttadeild í kappakstursleikjum) hefur gert stórt skref fram á við með nýju samstarfi við Gametíví og Senu sem mun styrkja bæði gæði útsendinga og upplifun fyrir áhorfendur á keppnum í úrvalsdeild í vetur. Gametíví mun lána GTSIceland stúdíóið sitt í Arena fyrir allar keppnir úrvalsdeildarinnar, en aðstaðan var þegar nýtt með góðum árangri á síðasta keppnistímabili í opnu og 2. deild. Þetta samstarf er talið jafngilda því að stíga aftur upp á gæðastigið sem GTSIceland bauð áður upp á í samvinnu við RÍSÍ. Þar verða hljóð- og myndgæði til fyrirmyndar, auk þess sem notkun OBS gefur möguleika á öflugra…

Lesa meira

Team Falcons tryggði sér annan sigur í röð í Club Championship á Esports World Cup í Riyadh, Saudi Arabíu, og hlaut sjö milljónir dollara í verðlaun sem jafngildir um 900 milljónum íslenskra króna. En á sama tíma hafa vaknað spurningar um sanngirni og hlutleysi mótsins. Greiddir stuðningsmenn „Superfans“, sem fengnir voru til að hvetja áhorfendur, segja að stuðningur hafi verið stilltur í þágu Falcons. Einn var bannaður fyrir að halda á skilti með orðinu „king“, þar sem það þótti viðkvæmt í ljósi þess að konungurinn er æðsti leiðtogi Sádi-Arabíu. Leikmenn Aurora kvörtuðu jafnframt yfir því að leysigeislar hefðu verið notaðir…

Lesa meira

Stór skref hafa verið tekin í ritskoðun tölvuleikja á alþjóðavettvangi. Greiðslumiðlunarfyrirtæki hafa undanfarna mánuði þrýst á dreifingaraðila eins og Steam og Itch.io til að fjarlægja hundruð fullorðinsleikja, að frumkvæði samtakanna Collective Shout. Á sama tíma hafa gögn bent til þess að þessi þróun tengist pólitísku átaki í Bandaríkjunum, svonefndu Project 2025. Þar er stefnt að víðtækri íhaldsstefnu í bandarísk lög, allt frá massabrottvísunum innflytjenda til afnáms fjölbreytni- og jafnréttisáætlana. Í skjölum verkefnisins er einnig kveðið á um að banna klám og loka fyrirtækjum sem veita aðgang að slíku efni. Titlar á borð við Grand Theft Auto og Saints Row eru…

Lesa meira

Undirbúningur fyrir Icelandic PUBG League (IPL) er kominn á lokasprettinn, en deildin markar upphaf nýrrar keppnislotu í PUBG á Íslandi. Um er að ræða fyrsta mót af fjórum í nýrri GameTíVí-deild sem boðar spennandi vetrarvertíð fyrir leikinn. Nú þegar hafa 15 lið tryggt sér sæti í mótinu, en skráning stendur enn yfir. Stefnt er að 18 liðum, en mótið fer fram þrátt fyrir að sú tala náist ekki að fullu. Upphafskvöldið fer fram 31. ágúst og hefst klukkan 20:00 með sex spennandi leikjum, en verðlaun verða í boði í hverju móti fyrir sig. Á heimasíðu IPL má finna allar helstu…

Lesa meira