Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Áhorfendur geta stillt sig inn á rafræna leikvanginn þegar GameTíví heldur sitt árlega FC mót í kvöld klukkan 20 á Twitch-rásinni GameTiviis. Spennan er rafmögnuð og spurningarnar brenna á vörum allra. Lærir Dói loksins á hlaupatakkann eða verður hann enn fastur í varnarleiknum? Mun Óli Jóels sanna yfirburði sína og taka leikinn? Eða rís Tasty upp og valtar yfir félaga sína líkt og enginn sé morgundagurinn? Þá má heldur ekki afskrifa Monty sem getur með einu marki breytt öllu – ef hann nær að setja boltann í netið. Viðburðurinn er orðinn fastur liður í dagskrá GameTíví og sameinar leikgleði, keppnisskap…

Lesa meira

Samkvæmt nýjustu fregnum stendur bandaríski leikjarisinn Electronic Arts frammi fyrir einni stærstu viðskipti leikjaiðnaðarins. Hópur einkafjárfestingarfyrirtækja, þar á meðal Silver Lake, ásamt opinbera fjárfestingasjóði Sádi-Arabíu (PIF), vinnur nú að því að kaupa EA í heild sinni fyrir allt að 50 milljarða dollara, eða um 7.100 milljarða króna. Samkvæmt heimildum Wall Street Journal gæti samningurinn verið kynntur opinberlega strax í næstu viku. Ef af verður myndi hann teljast stærsta „leveraged buyout“ í sögunni, en til samanburðar var metið hingað til yfirtaka Texas-orkufyrirtækisins TXU árið 2007 sem nam 32 milljörðum dollara. Sádi-arabíski sjóðurinn PIF hefur á síðustu árum lagt háar fjárhæðir í…

Lesa meira

Á PC Gaming Show Tokyo var nýr horror leikur afhjúpaður sem fær kaldan svita að renna niður bakið. Hann ber heitið Huntsman og er frumraun smástudíósins OnTheHouse Studios. Leikurinn er borinn uppi af ekta köngulóafælni og lofar að verða ein allsherjar martröð fyrir þá sem eiga erfitt með átta fætur og of mörg augu. Í tilkynningu frá Ten Image Publishing kemur fram að í Huntsman stígur leikmaðurinn í hlutverk öryggisvarðar hjá Atherton Laboratories þegar allt fer á annan endann. Tilraunir vísindamanna hafa losað úr læðingi köngulær sem skríða nú um ganga rannsóknarstöðvarinnar. Spilarinn stendur vopnlaus og í algjörum minnihluta, með…

Lesa meira

Skjálfti er í blússandi gangi um helgina í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi. Mótið stendur yfir fram á morgun sunnudag þegar úrslitaleikir í League of Legends og Counter-Strike 2 fara fram, og verða verðlaunaafhendingar í beinu framhaldi með pompi og prakt. Lokahnykkurinn í undirbúningi fyrir stærsta LAN-viðburð ársins Íþróttahúsið í Digranesi tekur á sig nýtt hlutverk sem heimkynni Skjálfta. Myndir úr undirbúningnum í vikunni sýna hvernig skipulagið mótast smám saman. Myndaveisla Með fylgja myndir frá föstudeginum sem fanga andrúmsloftið á mótsstað og sýna gleðina meðal keppenda og áhorfenda. Fjölbreytt dagskrá og nýir tímar Dagskráin á Skjálfta er stútfull. Auk tölvuleikjanna…

Lesa meira

Steam notandinn SonixLegend hefur slegið met sem fáir gætu ímyndað sér. Valve veitti honum nýverið sérstakt „Game Collector“ heiðursmerki eftir að hann náði yfir 40.000 keyptum leikjum á reikningnum sínum. Þar með er hann fyrsti notandinn til að ná þessum ótrúlega áfanga. Samkvæmt SteamDB eru þó titlarnir á reikningnum hans margfalt fleiri eða um 97.000 talsins, en aðeins hluti þeirra telst til viðurkenndra leikja sem gilda fyrir merkið. Heildarverðmæti safnsins er metið á yfir 640 þúsund bandaríkjadali (um 77 milljónir króna), sem þýðir að það væri hrein martröð að týna lykilorðinu eða missa aðgang að þessum fjársjóði. Þrátt fyrir þetta…

Lesa meira

Smásölurisinn Costco hefur tekið þá ákvörðun að hætta sölu á Xbox leikjatölvum, leikjum og fylgihlutum í verslunum sínum vestanhafs. Ástæðuna má rekja til mikilla verðhækkana sem tengjast auknum tollum, hærri framleiðslukostnaði og hnökrum í aðfangakeðju, að því er fram kemur á cbr.com. Verðið á Xbox Series X hefur hækkað úr um 500 dollurum í 600 dollara, og ódýrari útgáfan, Xbox Series S, hefur farið úr 300 dollurum í 380 dollara. Microsoft hefur bent á að þessar breytingar séu afleiðing „markaðsaðstæðna“, þar á meðal nýrra tolla og hækkandi framleiðslukostnaðar. Í kjölfar þessara hækkana hefur Costco fjarlægt allar Xbox-vörur úr verslunum sínum…

Lesa meira

Gran Turismo 7 heldur áfram að skrifa sig inn í sögubækur akstursleikja. Nú þegar serían hefur farið yfir 100 milljón seld eintök, stendur fyrir dyrum stór uppfærsla sem ber heitið „Spec III“. Hún kemur út í desember og er kærkomin gleðifrétt fyrir íslenska Gran Turismo samfélagið. Með uppfærslunni bætast við tvær nýjar brautir, Yas Marina Circuit og Circuit Gilles-Villeneuve. Átta nýir bílar koma til leiks, ásamt glænýjum upphafsatriði, Dunlop-dekkjum og sérhæfðu greiningarkerfi. Þá hækkar hámarksstig „Collector Level“ og þar með opnast ný tækifæri fyrir safnara. Einnig verður kynnt endurbætt vikulegt áskorunarkerfi, nýr „Seasonal Menu“ hluti, auknar viðbætur í Circuit Experience…

Lesa meira

Astralis, eitt þekktasta nafn heims í Counter-Strike, hefur gengið í gegnum tímamót. Félagið sem heldur utan um hið goðsagnakennda lið var nýlega keypt af Fusion Esports Group, danskur fjárfestahópur sem setur stefnuna hátt. Að hópnum standa Jakob Lund Kristensen og Jonas Gundersen. Jakob er ekki ókunnugur sviðsljósinu, en hann er meðstofnandi bæði Astralis og BLAST og hefur yfir áratugarreynslu í rafíþróttum. Jonas, sem áður keppti sjálfur sem atvinnumaður, kemur inn með alþjóðlega innsýn og var nýverið framkvæmdastjóri hjá Ninjas in Pyjamas, sem fór á markað hjá Nasdaq á síðasta ári. Með í fjárfestahópnum eru einnig frumkvöðlar á borð við Sander…

Lesa meira

Team Fortress 2 heldur áfram að sýna að leikurinn lifir og hrærist með samfélaginu. Nú stendur til að blása til Jump World Cup, stærsta stökkveisla sem hefur verið haldið í sögunni. Þar munu sextán bestu stökkvarar heimsins takast á í fjögurra manna liðum sem tákna heilu heimsálfurnar. Keppt verður bæði í Soldier og Demoman flokknum á fjórtán sérhönnuðum kortum. Mótið fer fram laugardaginn 27. september klukkan 13:00 að íslenskum tíma og verður í beinni á EssentialsTF Twitch-rásinni. Verðlaunapotturinn er rúmlega 5.000 bandaríkjadalir, eða um 700.000 íslenskar krónur, og keppa liðin um hinn eftirsótta titil: „Best Continent“. Áhorfendur geta einnig átt…

Lesa meira

Rafíþróttahátíðin Skjálfti 2025 fer fram í Digranesi í Kópavogi dagana 26.–28. september og er helgin stútfull af spennandi viðureignum. Skipuleggjendur hafa nú birt keppnisdagskrána og ljóst að gestir fá úrval af vinsælustu leikjum nútímans. Á föstudeginum hefst fjörið með Guilty Gear Strive klukkan 18, áður en fyrstu viðureignir í Counter-Strike 2 og League of Legends taka yfir kvöldið fram á nótt. Laugardagurinn verður sannkölluð veisla fyrir keppnisþyrsta spilara. Þar er á dagskrá Smash Bros Melee, Fortnite, Apex Legends, Smash Bros Ultimate, Action Quake og ekki má gleyma klassísku Counter-Strike 1.6. Allt frá hádegi og fram eftir kvöldi mun íþróttasalurinn í…

Lesa meira