Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Lanmótið Skjálfti verður haldið helgina 26. til 28. september í íþróttahúsinu í Digranesi. Sjá einnig: Skjálfti snýr aftur í Digranes Á mótinu verður keppt í Counter-Strike 2, League of Legends, auk klassískra leikja á borð við Counter-Strike 1.6 og Quake. Pláss er fyrir 240 keppendur og því um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst. Skjálfti er stærsti LAN-viðburður ársins og mikil eftirvænting ríkir eftir að sjá keppendur mæta á svæðið í haust. Skráning fer fram á skjalfti.rafithrottir.is
Skráning er hafin fyrir Haustmót Kids Coolshop sem fram fer í Arena gaming dagana 20. til 21. september. Mótið er ætlað iðkendum aðildarfélaga Rafíþróttasambands Íslands og er von á allt að 150 keppendum víðs vegar af landinu. Keppt verður í vinsælum leikjum á borð við Minecraft, Valorant og Fortnite þar sem ungir spilafélagar fá tækifæri til að sýna hæfileika sína á sviði rafíþrótta. Athugið að þátttaka er eingöngu fyrir aðildarfélög RÍSÍ. Nánari upplýsingar er að finna í gegnum tölvupóstfang sambandsins: [email protected]
Kraftvéladeildin í Dota 2 fer af stað laugardaginn 6. september og stendur fram í 21. nóvember þegar úrslitaleikir verða háðir. Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ) og verður leikið í Round Robin deild þar sem öll liðin mætast áður en best settu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppni. Kraftvéladeildin hefur fest sig í sessi sem ein af helstu reglulegu keppnum í Dota 2 hér á landi og búast má við spennandi baráttu um hvert einasta stig fram að úrslitum. Mynd: dota2.com
KIA-Deildin í League of Legends hefst á morgun 3. september og stendur yfir til 22. nóvember þegar úrslitin fara fram. Keppnin er sett upp sem Round Robin deild þar sem öll lið mætast áður en best settu liðin halda áfram í úrslitakeppni. Til gamans verður boðið upp á sérstakan Showmatch á Skjálfta í lok september, þar sem tvö efstu liðin í deildarkeppninni takast á. Að mótinu stendur Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ), sem gerir ráð fyrir mikilli spennu og jöfnum viðureignum í vetur. Mynd: leagueoflegends.com
GameTíVí-deildin í PUBG hófst í gær, sunnudaginn 31. ágúst, með sex viðureignum þar sem 18 lið öttu kappi. Liðið OMNI stóð uppi sem sigurvegari eftir fyrstu umferðina með 88, stig sem skiluðu þeim öruggu forskoti á toppnum. Hlandblettur náði frábærum árangri og fór upp um fimm sæti í heildarstigum, endaði í öðru sæti með 59 stig. KNGR og Trudalestin fylgdu fast á eftir með 55 og 51 stig hvort um sig. Þar fyrir neðan mátti sjá hörð átök um sæti í miðjunni þar sem Hraunbitar, Team Iceland og Fresh börðust fyrir sætabreytingum, en Hot Drop og Nic Cage Fan Club…
Atari hefur keypt útgáfurétt að fimm þekktum leikjum frá Ubisoft. Um er að ræða Cold Fear, Child of Eden, I Am Alive, Grow Home og Grow Up. Markmiðið er að endurvekja leikina fyrir nýja kynslóð spilara og koma þeim á nútíma leikjavélar. Wade Rosen forstjóri Atari sagði að fyrirtækið og Ubisoft ættu sameiginlegt markmið um að skapa heima sem spilarar tengja við. Hann bætti við að bæði endurútgáfur og nýjar útgáfur væru í kortunum. Lesið nánar um kaupin á vefnum psfrettir.com. Mynd: Steam
Mótið í Icelandic PUBG League (IPL) hefst í kvöld, 31. ágúst klukkan 20:00, þar sem 18 lið munu mæta til leiks í spennandi PUBG keppni. Þetta er fyrsta mótið af fjórum í nýrri GameTíVí-deild og hefur vakið mikla athygli fyrir spennandi vetrarvertíð sem fer í hönd. Mótið mun hefjast með sex spennandi leikjum í kvöld, þar sem verðlaun verða veitt fyrir hvert mót, þar á meðal Elko gjafabréf, PlayStation LED lampa, bíómiða og margt fleira. Verðlaun fyrir þá sem koma í fyrsta, annað og þriðja sæti: Fyrsta sætið: Elko gjafabréf SUPE Deskmat, stórar músamottur PlayStation LED lampi Annað sætið: 2…
Ljósleiðaradeildin í Counter-Strike 2, ein af stærstu reglulegu keppnum landsins, heldur áfram í september með fjölda spennandi viðureigna. Liðin munu berjast um hvert einasta stig í átt að úrslitakeppninni þar sem aðeins sterkustu liðin standa eftir. Í ár verða sex deildir í keppninni þar sem leikið verður í Round Robin kerfi áður en úrslitin ráðast í play-off. Sem viðbót við mótið sjálft verður boðið upp á sýningarleik milli tveggja efstu liðanna á Skjálfta í lok september. Útsendingar verða í beinni á RÍSÍ TV, þar sem fylgst verður með öllum leikjum auk umfjöllunar í kringum mótið. Tímabil deildarinnar spannar frá 2.…
Eftir sumarhlé er GameTíví komið aftur í beinar útsendingar og hefst fyrsta þátturinn á mánudagskvöld (1. ágúst) klukkan 20:00 á twitch.tv/gametiviis. Þar taka strákarnir forskot á haustinu með fjölbreyttri dagskrá sem lofar bæði spennu og fjöri. Aðalviðfangsefnið að þessu sinni er hinn nýi og listræni ævintýraleikur PEAK, þar sem hópurinn ætlar að klífa saman á toppinn. Í beinni útsendingu verður einnig dregið út eintak af íslenska leiknum Echoes of the End. Þátturinn verður ekki aðeins bundinn við spilun heldur er á dagskrá: Fréttir vikunnar úr leikja- og rafíþróttaheiminum Hið sívinsæla Fótboltahorn Yfirlit yfir ferð Óla og Dóa á Gamescom í…
Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) hefur tilkynnt nýja Fortnite-keppni sem hefst sunnudaginn 1. september. Um er að ræða einstaklingskeppni þar sem allt að 100 spilurum gefst kostur á að skrá sig til leiks. Keppnin stendur yfir í sjö vikur og fer fram í svokölluðu Swiss-fyrirkomulagi. Að því loknu taka við opin úrslit þar sem spilarar etja kappi um lokasigurinn. Úrslitin fara fram 22. nóvember og verður þar stigið lokaskrefið í þessari metnaðarfullu keppni. Með mótinu heldur RÍSÍ áfram að efla íslenskt rafíþróttalíf með reglulegum viðburðum sem veita spilurum tækifæri til að spreyta sig á alþjóðlega vinsælum leik. Mynd: fortnite.com
