Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Í gær, laugardaginn 24. ágúst, upplifðu leikjaspilarar óvenjulegt augnablik þegar poppstjarnan Lady Gaga tók þátt í sérstökum viðburði í leiknum Dress To Impress á Roblox. Þar gafst heppnum aðdáendum tækifæri til að spila hlið við hlið með Lady Gaga sjálfri, og meðal þeirra var íslensk stelpa sem komst að í gegnum útdrátt úr samfélagshóp leiksins. Viðburðurinn hófst á sérstökum forviðburði þar sem Lana, ein af skipuleggjendum Dress To Impress, stýrði beinni útsendingu með spurninga og svörum við Mother Monster. Aðdáendur höfðu áður fengið tækifæri til að senda inn spurningar, en aðeins hluti þeirra komst í gegnum síuna. Þegar klukkan sló…
FaZe hefur opinberað að pólverjinn Jakub „jcobbb“ Pietruszewski taki sæti Jonathan „EliGE“ Jablonowski í leikmannahópi liðsins. Tilkynningin fylgir í kjölfar þess að EliGE var færður á bekkinn fyrr í vikunni. Time for a new era. Welcome to FaZe CS @1jcobbb 🤝 pic.twitter.com/q9xQ8LPkmB — FaZe Esports (@FaZeEsports) August 22, 2025 Betclic, félag jcobbb fram til þessa, greindi í gær frá því að leikmaðurinn hefði verið keyptur af liði í efstu röð (Tier 1). Sögusagnir höfðu þegar tengt hann við FaZe og nú er það orðið staðreynd. JCobbb hefur sýnt sterka takta á árinu 2025 með meðaleinkunnina 1,11 í leikjum sínum með…
Sigurvegarar Gamescom Award 2025 voru kynntir með pompi og prakt í Köln í gær 22. ágúst. Úrslitin voru tilkynnt á hátíðinni þar sem þúsundir gesta fylgdust með beinni útsendingu. Ljóst er að leikjaárið 2025 býður upp á fjölbreytta upplifun, þar sem bæði stór fyrirtæki og sjálfstæðir hönnuðir sópuðu að sér verðlaunum. Resident Evil Requiem í lykilhlutverki Capcom átti stórleikinn að þessu sinni þegar Resident Evil Requiem hlaut fjögur verðlaun, þar á meðal Best Visuals, Best Audio og Most Epic Game. Leikurinn var einnig valinn Best Sony PlayStation Game og staðfesti þar með stöðu sína sem ein mesta stórframleiðsla ársins. Nýjungar…
Nú er formlega blásið til leiks í Icelandic PUBG League (IPL), þar sem opnað hefur verið fyrir skráningu í fyrsta mót af fjórum í nýrri GameTíví-deild. Stjórnendur deildarinnar hvetja lið eindregið til að tryggja sér sæti sem fyrst og leggja áherslu á að þátttakan verði fjölmenn og kraftmikil. Á nýrri heimasíðu IPL má finna allar helstu upplýsingar um reglur, stigatöflu og skráningar, auk yfirlits yfir lið og annað sem tengist deildinni. Að venju verður unnið með svokölluð Magma-skjöl, en hlekkir á þau eru aðgengileg í skráningarskjalinu sjálfu. Upphaf nýrrar deildar er tákn um ferskt upphaf í íslensku PUBG-senunni og stefnt…
Sunnudaginn 24. ágúst verður haldið sérstakt minningamót í Rocket League þar sem íslenska samfélagið kemur saman til að heiðra minningu Árna Fannars Aðalsteinssonar, betur þekktur sem Arconix96, sem lést langt um aldur fram. Í mótinu verður blandað saman liðum og keppt í vinalegu en jafnframt samkeppnishæfu umhverfi þar sem markmiðið er fyrst og fremst að minnast vinar sem hafði djúp áhrif á Rocket League samfélagið á Íslandi. Bein útsending verður frá mótinu á Twitch-rás RLÍS og hefst hún klukkan 17:00. Þar geta áhorfendur fylgst með leikjunum, andrúmsloftinu og þeirri stemningu sem skapast þegar gamlir félagar og nýir sameinast í leiknum…
Eftir rúmlega tuttugu ára viðveru á sviði Counter-Strike hafa stjórnendur bandaríska félagins Complexity ákveðið að hætta keppni í CS2. Ástæðan er sögð fjárhagslegur þrýstingur sem hefur gert reksturinn óviðráðanlegan. Félagið var stofnað árið 2003 og hóf keppni í Counter-Strike árið 2004. Á þessum tveimur áratugum hefur liðið unnið til margvíslegra verðlauna og sigra í stórmótum. Þar má nefna sigurinn í BLAST Premier Spring 2020 European Finals skilaði Complexity 335 þúsund Bandaríkjadölum sem samsvarar um það bil 46,2 milljónum íslenskra króna. Complexity tók þátt í fjölmörgum CS2 mótum á þessu ári, þar á meðal á IEM Katowice, Melbourne, Cologne og PGL…
„Þetta er í þriðja sinn sem ég held þetta námskeið,“ segir Tómas og bendir á stöðuga eftirspurn eftir námskeiðum fyrir lýsara í rafíþróttum (myndir)
Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) stóð nýverið fyrir námskeiði í rafíþróttalýsingu, svokölluðu „casting“, sem ætlað er þeim sem vilja bæta sig sem lýsendur í rafíþróttum. Á námskeiðinu var farið yfir margvíslega þætti, allt frá undirbúningi og frammistöðu lýsanda til stjórnar sýninga, hlutverks lýsenda og viðtala. Námskeiðið fór fram í húsnæði Rafmenntar við Stórhöfða 27 í Reykjavík og kostaði 19.900 krónur. Að þessu sinni tóku fimm manns þátt, en samkvæmt Tómasi Jóhannssyni, yfirlýsanda í Counter-Strike hjá RÍSÍ, hefur alltaf verið góð aðsókn að námskeiðinu sem nú fór fram í þriðja sinn. „Það sem vakti mesta lukku var undirbúningurinn. Námskeiðið er uppbyggt til að…
TFCL og Quick Esports League hafa tilkynnt að önnur útgáfa af Post-Season Cup í Team Fortress 2 fari fram dagana 5. til 7. september 2025. Keppnin er opin öllum leikmönnum, óháð reynslu eða styrkleika, og verður skipt í þrjár deildir eftir færnistigi. Verðlaunaféð nemur 800 bandaríkjadölum, sem samsvarar um 111 þúsund krónum miðað við núverandi gengi, auk medalía sem veittar verða sigurvegurum í hverri deild. Keppt verður samkvæmt double-elimination fyrirkomulagi þar sem liðin þurfa að tapa tvisvar til að detta úr leik. Flestar umferðir verða leiknar í best-of-3, en úrslitaleikurinn í best-of-5. Að auki er aðeins einum leikmanni í hverju…
Rafíþróttasamfélagið á Íslandi hittist á ný, eftir gott sumarfrí, til baráttu þegar PUBG scrim mót fór fram í gær sunnudaginn 17. ágúst. Þátttakan var ókeypis og skráðu sig alls 15 lið til leiks. Þar mátti sjá bæði þekkt nöfn úr íslensku PUBG-senunni og nýliða sem reyndu með sér í harðri samkeppni. Eftir sex leiki stóðu leikmenn OMNI uppi sem sigurvegarar með samtals 71 stig. Í öðru sæti endaði Agent000 með 65 stig, og í þriðja sæti lenti Fresh með 54 stig. NLG Red og Hraunbitar fylgdu fast á eftir í fjórða og fimmta sæti. Lið eins og Hlandblettur, Hot Drop…
Twisted Minds hrepptu heimsmeistaratitilinn í PUBG: BATTLEGROUNDS á Esports World Cup 2025: „Nú getum við kallað okkur heimsmeistara“
Lið Twisted Minds lyfti bikarnum í PUBG: BATTLEGROUNDS á Esports World Cup 2025 eftir dramatískt lokakvöld nú um helgina þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í síðasta leik. Þetta er annar sigur liðsins á heimsleikunum á aðeins tveimur vikum, en Twisted Minds höfðu áður tryggt sér titilinn í StarCraft II. Liðið átti jafna frammistöðu í riðlakeppninni og tryggði sér sæti í úrslitum með öruggum stigum. Þegar á lokasviðið var komið spilaði Twisted Minds stórvel, vann tvo „chicken dinners“ í sex leikjum og skapaði sér forskot sem reyndist gulls ígildi. https://www.youtube.com/watch?v=LBsaK9RuRag Í lokaumferðinni féllu tveir leikmenn þeirra snemma úr leik,…
