Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Það verður nú að segjast að þetta AWP skot í leiknum Counter Strike: Global Offensive er rugl flott. Það var Íslenski CS:GO spilarinn Hamstur sem náði þessu AWP Noscope eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi: https://www.youtube.com/watch?v=GYG9oHW_8hY Youtube channel Mynd: skjáskot úr myndbandi
„Núna er komið að því að Gamestöðin mun kveðja Smáralindina,“ þetta kemur fram í tilkynningu frá Gamestöðinni á facebook, en verslunin hættir á morgu 24. júlí eftir þriggja ára veru í Smáralindinni og verður því útibúið í Kringlunni eitt eftir. Mynd: facebook / Gamestöðin
Í byrjun júlí bætti Íslenska CS:GO liðið WarMonkeys við tveimur meðlimum, en það eru þeir Þórir, TurboDrake, CS1.6 goðsögnin og verður hann þjálfari liðsins ásamt Aroni Ólafs sem stjóra liðsins. Þórir hefur gríðarlega keppnisreynslu og eru vandfundnir menn með meira innsæi eða ástríðu í þessum leik. Hann hefur ekki verið að keppa upp á síðkastið en það má segja að sem stofnandi TuDDans sé maðurinn ein helsta klappstýra Counter-Strike á Íslandi, segir í tilkynningu. IGL Dói (Critical) hafði eftirfarandi að segja um ráðninguna: “Það er mjög spennandi að fá einhvern til að deila ábyrgðinni með að skipuleggja ný plön og…
ZenGaming tekur hér nokkuð mörg 1v1 í leiknum Counter-Strike: Global Offensive (CS: GO). Íslenski víkingurinn flottur með wappann: https://www.youtube.com/watch?v=BTHBFmPMiqA Youtube rás ZenGaming Fleiri myndbönd er hægt að horfa á Youtube rás ZenGaming með því að smella hér og ekki verra að strákurinn fái nokkur subscribe í leiðinni. Látum nokkur vídeó fylgja hér með: https://www.youtube.com/watch?v=UW_97aKNUDc https://www.youtube.com/watch?v=WWSU4zEK4jI https://www.youtube.com/watch?v=smjWt6__f4s Mynd: skjáskot úr myndbandi
Lanmótið Tuddinn var haldið síðastliðna helgi í Íþróttahúsinu í Digranesi þar sem keppt var í Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO). Góð þátttaka var á lanmótið en hvorki meira né minna en 43 lið sem mættu til leiks. Það voru WarMonkeys sem sigruðu lanmótið, en úrslitin voru eftirfarandi: 1. sæti – WarMonkeys 2. sæti – VECA 3. sæti – Seven 4. sæti – GODS Í verðlaun var: 1. sæti: 200.000 kr í peningum ásamt 100.000 gjafabréfum frá Tölvulistanum 2. sæti: 100.000 kr í peningum ásamt 50.000 gjafabréfum frá Tölvulistanum 3. sæti: 50.000 kr í peningum ásamt 50.000 gjafabréfum frá Tölvulistanum Einnig var…
Nörd Norðursins kemur hér með fróðlegt og skemmtilegt leikjarýni á nýjasta Doom leiknum sem margir hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu eftir að sýnt var brot úr leiknum á E3 í fyrra. Slök fjölspilun segir ritstjóri og yfirnörd Norðursins Bjarki Þór Jónsson sem gefur leiknum 4.5 af 5 möguleikum, nánar hér. Með fylgir DOOM gameplay frá RadBrad: https://www.youtube.com/watch?v=AmP_wdxn7Qw Mynd: skjáskot úr myndbandi
Tölvuleikjafyrirtækið CCP stefnir á að efla starfsemi sína hér á landi á næstunni en meðal annars verður horft til þess að styrkja EVE online leikinn með því að nýta þá þekkingu og tækni sem hefur byggst upp hjá fyrirtækinu undanfarin 13 ár síðan leikurinn kom út. Þetta segir Stefanía G. Halldórsdóttir, nýr framkvæmdastjóri fyrirtækisins á Íslandi í samtali við mbl.is, en nánar um málið er hægt að lesa á mbl.is með því að smella hér. Mynd: ccpgames.com
Samansafn eða á góðri engilsaxnesku „Montage“ af skemmtilegum augnablikum í Tom Clancy’s The Division, að hætti Íslensku meisturunum í DRAAZIL https://www.youtube.com/watch?v=lCa4czApgo4
Framleiðendur tölvuleiksins Battlefield 4 illuminati settu væntanlega nýtt viðmið fyrir svokölluð „páskaegg“ (e. easter eggs) í tölvuleikjum þegar þeir útbjuggu nýjasta leikinn í þessari vinsælu tölvuleikjaröð. Þurftu spilendur að búa yfir mikilli þrautseigju við leit, góða kunnáttu við að leysa þrautir og geta þýtt Morse kóða á erlend tungumál. Páskaegg í tölvuleikjum eru aukaatriði eða falin skilaboð sem eru falin hinum hefðbundna notenda, en hægt að finna með eftirtektasemi, heppni eða þrautseigju við að leita slíkra hluta. Er afraksturinn mismikilvægur, en í þessu tilfelli virðist sá sem fann páskaeggið allavega vera nokkuð sáttur. Hægt er að sjá þessa flóknu og löngu leið…
Það hefur ekki farið framhjá mörgum að nýr Star Wars Battlefront leikur kom á markaðinn 17. nóvember. Árið 2013 gerði Walt Disney 10 ára samning á framleiðslu Star Wars tölvuleikja við tölvuleikjarisann Electronic Arts. Það er síðan leikjastúdíóið DICE sem að hefur undanfarin tvö og hálft ár unnið að framleiðslu Star Wars Battlefront og það ekki að ástæðulausu. DICE er þekkt fyrir framleiðslu sína á Battlefield leikjaseríunni og fyrrum framleiðendur Star Wars Battlefront 1 og 2 hafa aldrei farið leynt með það að þeir hafi sótt innblástur sinn í Battlefield 1942 sem kom út árið 2002 og er einmitt úr…
