Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Facebook grúppa fyrir Íslenska Live-Stream leikjaunnendur er ansi active og eru fjölmargir sem peista twitch linkum þegar viðkomandi byrjar að streama. Gaman er að fylgjast með spilurum á twitch og skapast oft skemmtilegar umræður á meðan spilarinn spilar sinn uppáhalds leik. Stofnandi grúppunnar er Birkir Fannar en hann kemur reglulega fram á Twitch sem Leikjarinn og hefur vegnað nokkuð vel þar. Þegar þetta er skrifað þá eru komnir 92 meðlimir og hvetjum við alla að joina grúppuna með því að smella á eftirfarandi vefslóð: www.facebook.com/groups/573176462819909/ Mynd: af facebook grúppu Ice Stream Veistu um Íslenska facebook leikjagrúppu?  Láttu okkur vita…

Lesa meira

Úrslitin í Tuddanum online verða haldin í verslun Tölvulistans á Suðurlandsbraut á morgun laugardag, 7 nóvember. Þetta er í annað sinn sem keppnin er kláruð live í Tölvulistanum og í fyrsta skipti sem nú verður bæði keppt til úrslita í LoL og CS:GO, að því er fram kemur í facebook viðburði hér.  Aðstaðan hefur aldrei verið glæsilegri þar sem Tölvulistinn hefur útbúið áhorfendasvæði sem tekur 50 manns í sæti þar sem leikirnir verða sýndir á 84“ risaskjá. Það verður hörkuprógramm allan daginn sem hefst á slaginu 12:00 með „best of three“ viðureign í League of Legends þar sem Gamestöðin mætir…

Lesa meira

Þetta er úrslitaleikurinn í haustdeild Tuddans, sem er Íslandsmeistaramótið í tölvuleikjum. Bæði lið hafa lagt mikla vinnu síðastliðna þrjá mánuði við að koma sér á þennan stað, og þetta er uppskera þess erfiðis, hvort liðið endar á að vera Íslandsmeistari á laugardaginn, segir Ólafur Nils Sigurðsson, sérlegur sérfræðingur Vísis í Counter-Strike Global Offensive eða bara CS. Nánari umfjöllun er hægt að lesa á visir.is með því að smella hér. https://www.youtube.com/watch?v=2yAa5W8Y0VE Fleira tengt efni: Úrslitin í Tuddanum

Lesa meira

Ónefnd kona, sem talin er vera frá Bretlandi, reyndi að tæla kærasta sinn með því að senda honum kynþokkafullar myndir af sér í kattarkonubúningi. Á vefmiðli Dv segir að markmið konunnar var að ná kærastanum úr tölvunni en hann var einmitt að spila tölvuleikinn Grand Theft Auto V þegar hún sendi myndirnar. Eftir fyrstu myndina, sem var af konunni liggjandi í búningunum, fékk konan mynd af stýrispinna sem svar. Konan skipti þá um stellingu og tók mynd af brjóstaskorunni á sér og sendi kærastanum með skilaboðunum: Fær þetta þig til að skipta um skoðun? Kærastinn svaraði því hins vegar neitandi…

Lesa meira

Nú er unnið hörðum höndum að gera húsnæði við Grensásveg 16 tilbúið fyrir okkur tölvunördana, en þar mun nýja Ground Zero húsnæðið vera staðsett. Ástæðan fyrir flutningnum er að húsnæðið sem Gound Zero er í núna við Frakkastíg 8 verður rifið í nóvember. Framkvæmdir við Grensásveg 16 í fullum gangi: Áætlað er að Gound Zero flytur um mánaðarmótin október/nóvember næstkomandi. Myndir af framkvæmdum: af facebook síðu Ground Zero. Aðrar myndir: skjáskot af google korti.

Lesa meira

Ný heimasíða hjá meisturunum CCP Games var opnuð nú á dögunum sem inniheldur meðal upplýsingar um leikina EVE: Valkyrie og Gunjack. Í herbúðum CCP Games var nýju heimasíðunni fagnað með glæsilegri köku og brauðtertu sem búið var að skrifa ccpgames.com með mæjónesi. Launched a new CCP web site today and had some cake to celebrate! https://t.co/VvnF4xrikh pic.twitter.com/B3fb46PFm2 — Hilmar Veigar (@HilmarVeigar) October 15, 2015 Kíkið á herlegheitin á vefslóðinni www.ccpgames.com

Lesa meira

Í gær var haldið Hearthstone leikjamót í Ground Zero.  Spilað var brackets fyrirkomulagið, en um 26 keppendur voru skráðir til leiks og shoutcaster mótsins var Kristján Atli. Úrslit urðu: 1. sæti: Birkir Grétarsson 2. sæti: Arnar Vilhjálmur Arnarsson 3. sæti: Anton Geir Andersen 4. sæti: Kári Gunnarsson Í verðlaun var 10 þúsund krónur í beinhörðum peningum ásamt Somic G95 heyrnatól og 7 þúsund krónur gjafabréf í Nexus. Mynd: af facebook síðu Ground Zero

Lesa meira

Það er eins og ég þurfi að sanna mig frekar í þessum tölvuleikjaheimi, því ég er stelpa, segir Melína Kolka Guðmundsdóttir í samtali við visir.is, en Melína er virk í tölvuleikjasenunni hér á landi. Melína starfar hjá fyrirtækinu Ground Zero, sem hefur verið mikilvægur þáttur í heimi tölvuleikja á Íslandi, en þar geta gestir komið og spilað leiki. Melína hefur skipulagt ýmsa viðburði á þessu sviði og vonast til þess að fá fleiri konur í senuna. Nánari umfjöllun er hægt að lesa á visir.is með því að smella hér.

Lesa meira

Comic Con þekkja nú margir en sýningin er haldin í San Diego þar sem grínistar og bíómynda aðdáendur koma saman og sýna cosplay búninga sem hafa t.a.m. unnið í að hanna allt árið.  Thomas DePetrillo tók þetta skrefinu lengra og mætti í búning sem er eftirlíking af Iron Man í Avengers 2: Age of Ultron þar sem Robert Downey Jr lék eftirminnilega sem Tony Stark. Það tók Thomas 2 ár að hanna búninginn, 1.600 klukkustundir og það tekur hann um 20 mínútur að klæða sig í búninginn.  Myndir er hægt að skoða á vef Daily Mail hér.   A photo…

Lesa meira