Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Eins lengi og ég man eftir mér, skrifar Samúel Karl Ólason á Leikjavísi, hefur ákveðin bölvun legið yfir tölvuleikjum sem gerðir eru eftir kvikmyndum. Langflestir þeirra hafa einfaldlega verið hræðilegir. Þó eru auðvitað til undantekningar eins og Spider-man 2, Goldeneye og nú Mad Max. Leikurinn fjallar um Max Rockatansky og ferðir hans um auðnina sem heimurinn varð að eftir að vatnið kláraðist og heimsstyrjöld skall á. Myndin byggir ekki á sögu kvikmyndarinnar Mad Max: Fury Road heldur styðst hann við sama söguheim. Mad Max kemst í hann krappann og missir allt sitt í hendur stríðsherrans Scabrous Scrotus, sem Max særir…
Íslenski Call of duty spilarinn frægi lennzy er kominn á fullt í CS:GO og tekur hér snilldar ace: https://www.youtube.com/watch?v=epiCNJwVkIA Mynd: skjáskot úr myndbandi
Góð síða fyrir CS:GO playerinn sem langar að finna létta leið til þess að breyta aðeins til í crosshair stillingunum sínum og bæta við binds og fleira. tools.dathost.net
Leikjafréttir í samstarfi við Senu, ætla að gefa eitt eintak af Uncharted: The Nathan Drake Collection sem kemur út fyrir PlayStation 4 nú í vikunni. Það eina sem þú þarft að gera er að setja “like” á síðuna þeirra á Facebook ofl. í þeim dúr, en nánar um læk leikinn á Leikjafréttir hér. Í eftirfarandi myndbandi er GameSpot með góða umfjöllun um leikinn… bon apetit: https://www.youtube.com/watch?v=EOn7LvB8x9I Mynd: Skjáskot úr myndbandi
Geðveikt flashback af DreamHack Open Summer 2015 þegar Cristopher „GeT_RighT“ Alesund nær frábæru ACE-i. https://www.youtube.com/watch?v=MP1IvFBjbeM Mynd: skjáskot úr myndbandi
Jökull „Kaldi“ Jóhannsson hefur skrifað undir atvinnumannasamning í tölvuíþróttum við bandaríska liðið Tempo Storm. Jökull keppir undir merkjum Tempo Storm í leiknum Hearthstone, þar sem hann kallar sig Kaldi. Ég spilaði Starcraft áður og hafði eitthvað upp úr því, en ekkert í fullu starfi. Síðan byrjaði ég á þessu af fullum krafti í byrjun árs, segir Jökull í samtali við Viðskiptablaðið, en hann er 22 ára gamall. Utan þess að keppa fyrir hönd liðsins á mótum heldur hann úti síðu á streymisíðunni Twitch, auk þess sem hann hefur tekið að sér að lýsa mótum og keppnum í Hearthstone. Þetta er…
Í gær fór fram mikilvægasti leikur Íslands gegn Frökkum í CS:GO heimsmeistaramótinu, þar sem keppt var BO3 og sigurvegari myndi tryggja sér þáttökurétt á lokamótinu sem haldið er í Belgrade, höfuðborg Serbíu dagana 8. – 11. október næstkomandi. Því miður náði Íslenska liðið ekki að tryggja sér sigur, 16-12 (map: de_cache) og 16-10 (map: de_dust2) fyrir Frakkland, en engu að síður frábær árangur hjá lítilli þjóð eins og Íslandi. Skemmtilega umfjöllun hér, sem birt var á vefnum visir.is rétt fyrir leik. Íslenska lineup: Pétur Örn „peterr“ Helgasson Víðir „Veejay“ Jóhannsson Páll Sindri „pallib0ndi“ Einarsson Kristján „Kruzer“ Finnsson Ólafur Bárði „ofvirkur“…
Íslenska landsliðið í Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) undirbýr sig nú að kappi fyrir heimsmeistaramótið í þessum vinsæla tölvuleik. Ísland í dag kíkti við á æfingu og fékk að spreyta sig með strákunum. Eins og fram hefur komið þá mun Ísland mæta Frökkum í 16 liða útsláttakeppni í heimsmeistaramótinu á morgun fimmtudag 1. október klukkan 15:30 og keppt verður BO3. Mynd: skjáskot úr myndbandi
Stúdentaráð Háskóla Íslands í samstarfi við Stúdentakjallarann ætlar að sýna leik milli Íslands og Frakklands í lokaleik undankeppni heimsmeistaramótsins í CS:GO. Hér er um að ræða tilraunarverkefni til að kanna áhugann á frekari útsendingum. Keppnin fer fram á morgun fimmtudag 1. október og keppt verður BO3. Smellið hér fyrir nánari upplýsingar og munið að bjóða sem flestum á viðburðinn. Mynd: af facebook síðu Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Þá er búið að tilkynna 16 liða útsláttakeppnina og mun Ísland mæta Frökkum í heimsmeistarakeppninni. Keppnin fer fram á morgun fimmtudag 1. október og keppt verður BO3. Allt verður í beinni og verður hægt að horfa á viðureignina með því að smella hér. Átta lið komast áfram og keppa um 13 milljónir í úrslitakeppninni sem fram fer í Belgrade, höfuðborg Serbíu dagana 8. – 11. október næstkomandi. Áfram Ísland.
